Frjáls verslun - 01.10.1958, Blaðsíða 4
ili. Að minnsta kosti minnist ég þess ekki að
hafa komið inn í stærri borðsal en þar. Matur-
inn þar er íburðarlítill og ódýr, og mikill fjöldi
starfsfólksins virðist nota sér það, þótt sumir
hafi mat með sér að heiman, en aðrir fari heim.
Margir eiga líka stutt að fara, því að nýtt íbúð-
arhúsahverfi hetir verið reist þarna í næsta
nágrenni, og þar býr margt starfsfólksins. í því
sambandi er rétt að geta þess, að fjöldinn allur
af starfsfólkinu er aðkomufólk frá öðrum stöð-
um á landinu og tiltölulega nýsezt að í Wies-
baden.
I lok síðasta árs var starfsfólk Statistisches
Bundesamt 2120 manns. Þar af voru 1811 starf-
andi í Wiesbaden, 242 í útibúi í Berlín, 51 í
útibúi í Dússeldorf og 16 í útibúi í Hamborg.
Vinnutíminn er frá kl. 7% á morgnana til
5 á daginn, en annar hvor laugardagur er frí-
dagur. Að þessu leyti virðast þó þeir, sem skipa
hærri stöður, hafa nokkra sérstöðu, því að þeir
koma yfirleitt ekki til vinnu fyrr en klukkustund
síðar.
Hlutverk þýzku hagstofunnar.
Statistisches Bundesamt á í raun og veru tíu
ára afmæli á þessu ári sem aðalhagstofa Vestur-
Þýzkalands. Hinn 21. janúar 1948 voru sett lög
um sameiginlega hagstofu fyrir þrjú hernáms-
svæði vesturveldanna, sem þá þegar mynduðu
sjálfstæða efnahagslega heild. Með lögum frá 3.
september 1953 var þó endanlegu skipulagi kom-
ið á stofnunina. Með þeim er lagður grundvöil-
urinn að heildarskipulagi statistískra málefna
vestur-þýzka sambandslýðveldisins.
Það kemur hvarvetna fram, að megintilgang-
urinn með störfum hagstofunnar er að fá heild-
armynd (Gesamtbild) af grunni og gangi efna-
hagsmálanna. Þess vegna er lögð áherzla á að
samræma störf allra þeirra aðila, sem á einn
eða annan hátt leggja skerf til tölfræðilegra
mála.
Á sama hátt og enginn reisir hús án bygging-
arefnis, þá verður engin heildarmynd gerð af
efnahagskerfinu án tölfræðilegs efniviðar. í raun
og veru er hægt að skipta gerð þessarar heildar-
myndar í þrjú stig. Fyrsta stigið er hliðstætt
hlutverki húsameistarans — uppdrátturinn. Á
sama hátt og hús er teiknað og formað í smá-
atriðum, áður en það er byggt, er nauðsynlegt
að gera sér grein fyrir öllum þeim þáttum efna-
hagslífsins, sem eru ráðandi um heildarmyndina,
áður en hafizt er handa um gagnasöfnun. Stat-
istisches Bundesamt hefir það hlutverk á hendi
að gera úr garði öll eyðublöð, sem send eru út
til söfnunar tölfræðilegra upplýsinga á vegum
þýzka ríkisins. Hún er þar bundin lagaákvæðum
þýzka sambandsríkisins og háð samþykki ein-
stakra sambandsríkja. Sér til aðstoðar hefir hún
starfandi fastanefndir (Fachausschússe) á ein-
stökum sviðum efnahagslífsins, sem inna af
hendi margvísleg ráðgefandi störf og tryggja
það enn frekar, að allar spurningaskrár séu
raunhæfar. Jafnframt vinna ad hoc nefndir
(Arbeitskreise) að slíkum málum. Á þessu fyrsta
stigi er lögð áherzla á að gera sér grein fyrir, að
hverju eigi að spyrja og til hvers. Þar er hin
fræðilega hlið málsins aðlöguð hinni raunhæfu.
Annað stigið er svo söfnun upplýsinganna, sem
er hliðstæð efnisútvegun við húsbyggingu. Það
er vitaskuld ekki nauðsynlegt, að sami aðilinn
safni upplýsingunum og samið hefir spurninga-
skrána, ef hún er ýtarlega og vel gerð, en það
er engu að síður þýðingarmikill hlekkur í gerð
heildarmyndarinnar. I Vestur-Þýzkalandi eru
sérstakar hagstofur í hverju sambandsríki
(„statistische Landesámter“), sem hafa á hendi
gagnasöfnunina eftir fyrirmælum Statistisches
Bundesamt og skila upplýsingunum meira og
minna unnum í hendur þess. Við félagarnir
heimsóttum hagstofuna í Hessen. Hún er stað-
sett í Wiesbaden og þar vinna 400—500 manns.
Á sama hátt og þýzka hagstofan ræður gerð
eyðublaðanna í samráði við sérfræðinganefndir,
fer þriðja stigið, öll meginúrvinnslan fram þar,
en ekki í hagstofum einstakra ríkja. Til úrvinnsl-
unnar hefir stofnunin mikinn mannafla og góðan
vélakost og lögð er áherzla á að senda hinar
endanlegu skýrslur sem allra fyrst til Bonn. Á
ýmsum sviðum er því samin hraðskýrsla fyrst
með helztu niðurstöðum, en endanleg skýrsla
síðar.
Hvort sem það er aðgreining gagnasöfnunar-
innar annars vegar og samning spurninga-
skránna og úrvinnslunnar hins vegar, eða hlýðni
Þjóðverja við opinbera aðila og skilningur þeirra
á þýðingu tölfræðilegra athugana, þá blasir sú
staðreynd við, að það heyrir til undantekninga,
ef fyrirtæki sýnir tregðu á að gefa skýrslu..
Gagnasöfnun gengur þar greiðlegar en víða ann-
ars staðar. Þeir dr. Szameltat, forstöðumaður
skipulagsdeildar statistískra málefna, og dr.
Frh. ó bls. 18
4
FRJÁLS VERZLUN