Frjáls verslun - 01.10.1958, Síða 15
Prentað ó trékassahlið
búðaiðnaðurinn þróazt hratt, cinkum eftir 1940.
Skul hér greint nokkru nánar frá sögu þess fyrir-
tækis, sem stærstan skerf hefur lagt til þróunar
í þeirri grein hérlendis.
Á árunum 1927—’30 var flutt inn allmikið af
trékössum, frá Svíþjóð og Noregi. Voru þeir
notaðir sem umbúðir um saltfisk, sem fluttur
var til Suður-Ameríku. Sökum þess, að á þeim
árum var fremur lítil atvinna fyrir trésmiði,
sérstaklega á vetrum, vaknaði sú spurning,
hvort ekki mætti smíða slíka kassa hér heima,
en þeir voru mjög vandaðir að gerð. Helztu
vörutegundir, sem umbúðir þurfti um á þeim
tíma, voru saltfiskur, ísvarinn fiskur, sem flutt-
ur var til Bretlands, smjörlíki og niðursoðin
mjólk. Þegar Sænsk-ísl. frystihúsið tók til starfa,
þurfti það á kössum að halda fyrir frosinn fisk.
Árið 1931 tók svo Kassagerðin til starfa, og
munu fáir hafa talið hana framtíðar-fyrirtæki,
enda var við mjög mikla erfiðleika að stríða
fyrstu árin, þar sem þá voru raunverulega hærri
tollar á efninu en tilbúnum, innfluttum umbúð-
um. Fyrsta árið, sem fyrirtækið starfaði, var
aðalverkefnið að smíða kassa fyrir ísvarinn fisk,
þar næst komu svo umbúðir um saltfiskinn og
frysta fiskinn, sem jukust stciðugt úr því. Árið
1935 tóku að koma fram nýjar og nýjar vöru-
tegundir, sem þörfnuðust umbúða, svo sem land-
búnaðarvörur, til sölu bæði á erlendan og inn-
lendan markað, einnig iðnaðarvörur, svo sem
kex, efnagerðarvörur, sælgæti og fleira.
Fyrstu stríðsárin jókst mjög framleiðsla á
kössum fyrir frystan fisk, sem Bretar neyddust
J)á til að kaupa í stórum stíl. Til dæmis má geta
J)ess, að eitt árið vann verksmiðjan úr 820 std.
af timbri. Lætur nærri, að það hafi verið 3
farmar gamla „Selfoss“. Á þessum tíma hefði
reynzt erfitt að fá tilbúna kassa frá útlöndum.
Á árunum 1941—’42 varð gjörbreyting á um-
búðum fyrir frystan fisk. Trékassar lögðust
alveg niður, og í þeirra stað komu kassar úr
bylgjupappa. Þeir höfðu ýmsa kosti fram yfir
trékassana, t. d. voru ]>eir miklum mun ódýrari,
léttari í flutningum, og að sumu leyti vörðu þeir
vöruna betur. Síðan hefur notkun alls konar
pappaumbúða aukizt gífurlega. Allar frvstar
sjávarafurðir, sem út eru fluttar, eru nú í
pappaumbúðum, þar á meðal frosin síld í pappa-
öskjum, einnig margar landbúnaðarafurðir, að
ógleymdum flestmn iðnaðarvörum fyrir innlend-
an markað.
Síðustu 6 árin hafa verið stór áfangi i tækni-
legri þróun verksmiðjunnar. Á þeim tíma hafa
henni bætzt hinar fullkomnustu vélar til öskju-
framleiðslu, sem hafa gert henni fært að fram-
leiða umbúðir, sem eru fullkomlega sambæri-
legar við J>að bezta af því tagi, sem fáanlegt er
á erlendum markaði. Auk þess hafa J>essar vél-
ar rneðal annars gjört mögulegt að halda, fram
að þessu, sarna verði á öskjum fyrir útflutnings-
vöru, eins og var fyrir 8 árum. Engu að síður
er ]>að knýjandi nauðsvn fyrir verksmiðjuna að
Pappaöskjuframleiðsla. Askjan brotin saman
FRJÁLS VERZLUN
15