Frjáls verslun - 01.10.1958, Qupperneq 19
starfa. í öllum öðrum deildum er megináherzían
lögð á að fullgera þá heildarmynd úr efnivið frá
hagstofum einstakra ríkja sambandslýðveldisins.
Forstöðumaður þessarar deildar er dr. Szameltat,
sem áður er getið, en einn af fulltrúum hans,
þjóðhagl'ræðingurinn Guckes, ungur og elskuleg-
ur maður, sá að mestu leyti um dvöl okkar þre-
menningarma í Wiesbaden og skipulagði hvern
dag af þýzkri nákvæmni.
Hinar sjö deildirnar eru þessar: Deild þjóð-
hagsreikninga og almennrar fræðilegrar sam-
ræmingar, matvæla- og landbúnaðardeild (fisk-
veiðaskýrslur meðtaldar), iðnaðarskýrsludeild,
deild verzlunarskýrslna og samgönguskýrslna,
deild verðlags- og launaskýrslna, bygginga-
skýrslna og félagsmáleína, fjármála- og skatta-
deild og loks deild mannfjöldaskýrslna og menn-
ingarmálefna (þar með skólaskýrslur, dómsmála-
skýrslur, heilbrigðisskýrslur, kosningaskýrslur
o. fl.).
Við félagarnir heimsóttum flestar deildirnar,
en dvöldumst lengst í iðnaðarskýrsludeildinni
og nutum góðrar handleiðslu aðalfulltrúans þar,
herra Kunz, og annarra fulltrúa, svo sem þeirra
herra Riidigers, er sér um framleiðsluvísitöluna,
dr. Antons, er annast fyrirtækjatalninguna í
iðnaðinum, dr. Flöters, sem sér um árlegar iðn-
aðarskýrslur og dr. Pfaffs, sem hefir með sér-
skýrslur handiðnaðarins að gera.
Flest starfsfólk er í skipulagsdeild almennra
statistískra rnála, 548 alls, þar af 220 í véladeild,
og í samgöngu- og verzlunardeildinni 545 alls.
Sams konar vélar ocj hér á landi.
Það er að jafnaði gestkvæmt í Statistisches
Bundesamt, því að þangað fara margir, sem
vilja kynna sér rekstur slíkra stofnana, og sú
deild sem allir skoða, er véladeildin, sem er hluti
af skipulagsdeild statistískra málefna.
Skýrsluvélar þær, sem eru notaðar, eru næst-
um því eingöngu IBM vélar, sams konar eða
svipaðar og þær, sem hér eru í notkun hjá Hag-
stofu íslands. Þó eru 2 elektróniskar vélar not-
aðar og ein frönsk vél. Þar sem hagstofur hinna
einstöku ríkja vinna að nokkru leyti úr frum-
skýrslunum, taldi herra Richter, sem hefir um-
sjón með undirbúningi véltökunnar, að elektrón-
isku vélarnar væru margar hverjar ekki við hæfi
stofnunarinnar nema til örfárra verka.
Leigan fyrir IBM vélarnar er um 80 þúsund
mörk á mánuði, en heildarkostnaður við þýzku
hagstofuna á þessu ári er áætlaður milli 25 og
26 milljónir marka. Ivostnaður við hagstofur ein-
stakra ríkja er vitaskuld ekki meðtalinn, en þess
má geta, að starfsfólk þeirra allra er sízt færra
en á aðalhagstofunni.
Við götun, endurgötun og leiðréttingar vél-
spjalda vinna um 80 stúlkur, sem hafa jafn-
langan vinnutíma og annað starfsfólk, en 10
mínútna vinnuhlé á hverjum klukkutíma. Með-
alafköst gatara á mánuði voru 30900 spjöld árið
1957, en 19800 árið 1950.
Annað dæmi um afkastaaukningu er það, að
árið 1950 komu 1240 skýrslur um innflutning
eða útflutning í hlut hvers starfsmanns deildar-
innar, en 2430 árið 1957.
Hér verður látið staðar numið við lýsingu á
þessari heimsókn. Hún er vafalaust mjög yfir-
borðsleg fyrir þá, sem eru kunnugir störfum
slíkra stofnana, en of þurr og upptalningakennd
fyrir aðra, en ég vona þó, að þeir, sem hana lesa,
séu nokkru fróðari en áður um þessa statistísku
stofnun, sem talin er einhver hin fullkomnasta í
heimi.
Að lokum get ég þó elcki stillt mig um að segja
frá oíurlitlu atviki, sem kom fyrir mig og annan
ferðafélaga minn, áður en við kvöddum hagstof-
una og Wiesbaden.
Við sátum inni á lítilli veitingakrá síðla kvölds,
er miðaldra maður settist við borðið hjá okk-
ur. Hann kvaðst vera málarameistari frá Kassel
og hafa erindi að reka í Wiesbaden. Er hann
varð þess áskynja, hvað við vorum að gera
þarna í borginni, dró hann skýrslueyðublað upp
úr vasanum og sagði eitthvað á þessa leið: „Sjáið
þið, þeim finnst ástæða til að hafa mig með.“
Hann var greinilega upp með sér af því, að þýzka
hagstofan skyldi telja ástæðu til þess að láta
hann gefa mánaðarlega skýrslu um hinn litla
atvinnurekstur hans.
Við félagarnir litum hvor á annan, en sögðum
ekki neitt.
Sjónvarpsdagskrór ó segulböndum
I Bandarílcjunum er farið að nota sérstök segul-
bönd, tveggja tommu breið, til þess að taka upp
sjónvarpsdagslcrár í litum. Síðan er hœgt að endur-
varpa dagskránum á stöðum í mikilli fjarlœgð frá
upptökustaðnum og einnig að geyma þœr um lang-
an tíma.
FRJÁLS VERZLUN
19