Frjáls verslun - 01.04.1960, Síða 35
að fyrirgreiðslu ríkisstjórnarinnar
við lagasetningu um stofnun verzl-
unarbanka. Svar hafði borizt frá
viðskiptamálaráðuneytinu, þar sem
skýrt var frá því, að ráðuneytið
væri því hlynnt að málið næði
fram að ganga. Var þessum já-
kvæðu undirtektum fagnað af
fundarmönnum og svohljóðandi
tillaga samþykkt einróma:
„Aðalfundur Verzlunarspari-
sjóðsins haldinn 5. marz 1060 á-
lyktar, með tilvísun til tillögu sam-
þykktrar á aðalfundi sparisjóðs-
ins 7. marz 1959, að stjórn spari-
sjóðsins í samráði við stjórnir
heildarsamtakanna vinni mark-
visst áfram að stofnun verzlunar-
banka.
Jafnframt lýsir fundurinn ánægju
yfir þeim áfanga, sem þegar hefir
náðst í málinu.“
Höskuldur Ólafsson sparisjóðs-
stjóri, las upp og skýrði endur-
skoðaða reikninga sparisjóðsins,
og voru þeir samþykktir sam-
hljóða.
í stjórn sjóðsins voru endur-
kjörnir þeir Egill Guttormsson,
stórkaupmaður og Þorvaldur Guð-
mundsson, forstjóri, en bæjarstjórn
Reykjavíkur hafði endurkjörið í
stjórnina Pétur Sæmundsen, við-
skiptafræðing.
Fundurinn var mjög fjölsóttur
og kom fram mikill einhugur fyrir
heillarikri þróun Verzlunarspari-
sjóðsins og stofnun verzlunar-
banka.
Svipmyndir frá aðalfundl Vorzlunarspari-
sjóðsins. Við borðið á efstu myndinni eru
frá vinslri: Höskuldur Ólafsson, sparisjóðs-
stj., Hjörtur Jónsson, kaupm. (fundarstj.),
Þorvaldur Guðmundsson, forstj., Egill Gutt-
ormsson, stórkaupm. og Pétur Smmuadsea,
viðskiptafr.
FRJÁLS VERZLUN
35