Frjáls verslun - 01.04.1963, Side 5
gerist sömu hlutir á sviði auglýsinga sem í háþró-
uðum iðnaðarlöndum Evrópu og Ameríku. Þróun
auglýsingagerðar er hér enn á byrjunarstigi. Allt
tekur sinn tíma. Hér hefur þessi þróun þó tekið
geysistökk á síðustu árum. Hver þjóð verður að
eignast sinn eigin stíl, þar sem byggt er á hefð og
miðað við þær aðstæður sem þjóðfélagið býr við.
Við getum ekki byggt á niðurstöðum evrópskra og
bandarískra fagmanna sem staðreyndum, sem gildir
fyrir hinn íslenzka markað. Ahrifa beggja þessara
markaða, Evrópu og Bandaríkjanna, gætir hér og
blandast í mikinn hrærigraut.
Framleiðendur og neytendur hér hafa ekki öðl-
ast þann almenna skilning á gæðamati auglýsinga,
sem ríkir í löndum þessum. Mikil nauðsyn er á því,
að hér fari fram ýtarleg markaðskönnun, svo hægt
sé að byggja auglýsingastarfsemi okkar á einhverj-
um grunni, og væri það verðugt verkefni verzlunar-
og iðnaðarsamtakanna að skipuleggja þá könnun.
í flestum löndum Evrópu og Ameríku eru starf-
andi stór auglýsingafyrirtæki, sem hver um sig hafa
í sinni þjónustu fjölda sérhæfðra manna, t. d. hefur
Unilever-auglýsingafyrirtækið LINTAS í Hamborg
milli fjögur og fimm hundruð manns í þjónustu
sinni.
Sérhæfing á sviði auglýsinga er orðin mikil og
stefnir til enn meiri sérhæfingar. Svo mikil er þessi
sérhæfing orðin, að ástæða hefur þótt til að setja
saman skýringarlista fyrir þá, sem ekki þekkja eins
til, og eru þar taldir á milli þrjátíu og fjörutíu
fagaðilar. Auglýsingafyrirtæki þessi standa á milli
framleiðandans og kaupandans, þau hafa sína eigin
markaðskönnun, þar sem óskir neytandans eru
kannaðar og þær niðurstöður látnar framleiðend-
um í té. Þau segja til um það útlit á auglýsingum
og umbúðum, sem markaðnum hæfir og vinna síð-
an eftir þeim niðurstöðum.
Eitt atriði, sem svona fyrirtæki vinna að og er
um leið mikið atriði í allri auglýsingagerð, er að
kynna sér og bera saman söluaðferðir hinna ýmsu
fyrirtækja, sem keppa um markaðinn. Yfirleitt er
um fjölda fyrirtækja í hverri vörutegund að ræða,
jafnvel tugi, svo mikilvægt er að vita hvað hefur
selt vöruna, og er það margt sem máli skiptir. Tölur
um fjölda framleiðslumerkja í V.-Þýzkalandi sýna
m. a. þessa skiptingu:
Sjónvarpstegundir 64
Hjólbarðar 24
ísskápar 37
Smjör 90
Hæsta prósenttala eins merkis af heildarsölu
vörutegundar var í sölu hjólbarða; fyrsta fyrir-
tækið er með 35,4% af sölu, annað 27,4% og þriðja
9%, svo að ekki verður mikið til skiptanna fyrir hin
fyrirtækin 21 að tölu, eða tæp 30%. Sjá má af þessu,
að margir eru um kálið, og nauðsynlegt hverju
því fyrirtæki, sem auka vill hlutdeild sína, að halda
vel á sínu. Hlutverk auglýsingafyrirtækis er ekki
að sanna hvaða vörutegund sé bezt, heldur að halda
fram beztu eiginleikum þeirrar vörutegundar, sem
þeim er falið að vinna fyrir. En framleiðandinn
fær samt allar niðurstöður, sem verða af almennum
markaðskönnunum, og eiga þær að auðvelda honum
að framleiða betri vöru. í þessum stóru auglýsinga-
fyrirtækjum en teiknarinn í flestum tilfellum orðinn
hjól í stórri vél, í stað þess að hér er það verk
teiknarans og framleiðandans í sameiningu að leysa
öll vandamál auglýsinganna.
í Bandaríkjunum er það orðið svo, að teiknarar
eiga erfitt með að halda velli sem sjálfstæðir aðilar.
Meginhluti teiknara er fastráðinn hjá stórum aug-
2eit
gewinnen
Vereinfachen sparen
durch
eine
Femsprech-
Nebenstellen-
anlage'
der
Deutschen
Bundespost
Wencíen
Sie sich bitte
an dén
Beratungs-
dienst Ihres
zustándigen
Fernmelde*
amts
FRJÁLS verzlun
5