Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1963, Síða 11

Frjáls verslun - 01.04.1963, Síða 11
nú hefir verið byggt. Þau mynda stórt U og af- marka á þrjá vegu útisvæðið, en á fjórða veginn meðfram Héðinsgötu verður steypt girðing. Á hverri lengju verða þrennar dyr eða samtals níu, sem allar vita inn að útisvæðinu. Bílarnir munu svo aka sól- arsinnis meðfram húsinu og verða fermdir og af- fermdir með forklyfturum, sem flytja vörurnar úr húsinu og í. rétt þegar verkið var hafið gerðu trésmiðir verk- fall, 27. júlí til 20. ágúst, sem eðlilega gerði strik í reikninginn, og hefði trúlega framlengt skilafrest- inn til 30. nóvember, samkvæmt ákvörðun um „force-majeuri“ tilvik í verksamningi. í byrjun okt. var að fullu búið að reisa húsið, en eftir að steypa í það gólfið, en það varð að gera síðast vegna hinna ofboðslega þungu tækja, sem notuð voru við að Sé3 inn í iyrsta áianga Tollvöru- geymslunnar við Héðinsgölu, stórvirkir kranar og vélar að verki. Á grundvelli þessa fyrirkomulags hefi ég gert svokallaða „trafik“ og „kapasitets-analysu" og leiðir hún í ljós að fyrirtækið á að geta annað gífurleg- um fjölda afgreiðslna á dag með tiltölulega fámennu afgreiðsluliði, þannig að ég tel mér óhætt að full- yrða að umferðar- og afgreiðslulega séð kemur fyrirtækið til með að uppfylla ströngustu kröfur. Þegar hér var komið sögu var komið fram í júlí- mánuð og því skammt eftir sumars. Stjórn Toll- vörugeymslunnar lagði á það mikla áherzlu að hús- yrði komið upp eftir 3^ mánuð, enda hafði svo verið ráð fyrir gert í útboði. Var mér falið að rann- saka möguleika bjóðenda á að standa við þann hluta tilboðsins. Til þess að gera langt mál stutt, skal hér einungis tekið fram, að ég taldi, að eins og málum var þá háttað, hefði Byggingariðjan hf. meiri möguleika en Steinstólpar hf. til að ljúka verk- inu á tilsettum tíma, og var því hærra tilboðinu tekið. Verksamningur var svo undirritaður 18. júlí sl. og skyldi verkinu lokið samkvæmt útboði ö. nóvember 1962. Framkvæmdir gengu mjög vel í fyrstu og al- gjörlega samkvæmt áætlun, nema að því leyti, að setja upp þakbitana. Fyrri hluta nóvember var byrjað að steypa gólfið, og þegar búið var að steypa ca. Ys hluta af því komu frosthörkur miklar og varð því að hætta steypuvinnu. Gekk mjög erfið- lega að ljúka gólfinu, því eftir hvern frostakafla varð að bíða eftir því að undirlagið þiðnaði. Gekk svo allan desember- og janúarmánuð, og var verk- inu ekki að fullu lokið fyrr en 13. febrúar sl. Er nú eftir að setja endanlegt þéttilag á þak hússins, sem er úr forspenntri steypu, eins og raunar allt húsið að gólfi og sökklum undanskyldum. Þakið er þó búið að þétta til bráðabirgða, þannig að taka mætti það í notkun þeirra hluta vegna. Endanlegt þéttilag, sem er úr efni er „mighty-plati“ heitir, verður að setja á í þurru veðri og frostlausu, og er öllum fyrir beztu að til þess sé vandað sem mest má vera. Kem ég þá að kostnaðarhliðinni. í októbermán- uði sl. gerði ég kostnaðar- og rekstraráætlun fyrir fyrsta áfanga tollvörugeymslunnar. Samkvæmt henni er gert ráð fyrir að húsið kosti tilbúið til reksturs 7.030.000,00 kr. Er þá gert ráð Framhald ó bls. 13 FRJÁLS VERZLUN 11

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.