Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1963, Page 24

Frjáls verslun - 01.04.1963, Page 24
Fjöll í Kelduhverii. Það er síðasti bær að norðan áður en lagt er upp á Reykjaheiði. Banabylur norðan úr hafi Af Hólsfjöllum lá leiðin niður að Skinnastað í Axarfirði og þar bættist teljtukorn það í hópinn scm að framan getur. Var það systurdóttir Guðrúnar, tíu ára gömul. Nóttina áður en ltaldið var á Reykjaheiði gistu leiðangursfarar á Garði í Kelduhverfi. Um morgun- inn þcgar Þorsteinn sýsluskrifari kom á fætur fór hann út og gáði til veðurs. Þegar hann kom í bæ- inn aftur sagði hann að nú væri banabylur sinn að nálgast langt norðan úr hafi, en ekki var frekar um það rætt. Lestarmennirnir iiöfðu lagt af stað löngu á und- an þeim Guðrúnu, Þorsteini og telpunni, sem komu lausríðandi á eftir. Höfðu þau ætlað sér að fara ekki lengra en í Fjöll um kvöldið og gista þar, en þegar þangað kom fréttu þau að lestarmennirnir hefðu haldið áfram upp á heiði. Vildi Guðrún ekki að þau yrðu viðskila og ákvað að halda ferðinni áfram þótt áliðið dags væri. Þorsteini var þessi ákvörðun mjög á móti skapi, það var í honum uggur, enda loft þungbúið og ekki að sjá annað þá og þegar á stórhríð. Það vissi jafnframt að uppi á heiðinni var óveðrasamt með afbrigðum og villu- gjarnt að sama skapi. Líkin fundust þegar snjóa leysti Og óveðrið lét heldur ekki á sér standa. Innan stundar brast á iðulaus stórhríð, sem stóð alla nótt- ina og næsta dag allan með feikilegu fannkyngi samfara ofsaroki og allmiklu frosti. Þótti strax sýnt að illa myndi fara fyrir ferðafólkinu og vafasamt í alla staði að það kæmist lífs af. Illur boði var það ekki sízt, að strax um nóttina kom einn hestanna niður að bæjum í Kelduhverfi. Var hann með beizlið bundið um hálsinn og reyndist það vera hestur Þorsteins. Töldu menn ekki vafa undirorpið en ganga myndi í byl. Loks var þæfingsófærð af snjó, einkum er nær dró heiðinni og hestarnir óðu snjóinn víða í hné. En Guðrún réði þá sem endra- 24 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.