Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1963, Page 26

Frjáls verslun - 01.04.1963, Page 26
upp á heiðina frá Húsavík og teymdu tvo reiðings- hesta. Voru þetta allt Oxfirðingar, Jón nokkur Sig- urðsson timburmaður til heimilis að Skinnastað, Árni húsmaður á sama bæ og Hallgrímur Hall- grímsson frá Akri. Voru þeir á heimleið. Þegar þeir komu nokkuð upp á heiðina brast á þá ofsaveður af landnorðri með slydduhríð. Er þeir komu að Sæluhússtóttum var mjög tekið að draga af þeim sökum þreytu, kulda og vosbúðar. Tóku þeir sér þar hvíld um stund, lögðust fyrir og sofn- uðu. Skjótlega munu þeir þó hafa vaknað aftur, enda veður á þeim tíma hert til muna, komið frost nokkurt og blaut fötin tekin að frjósa að þeim. Jón timburmaður var verst klæddur þeirra þriggja, var í klæðistreyju og léreftsskyrtu einni innanundir, en engri yfirhöfn. Þar við bættist að hann hafði týnt öðrum skónum sínum. Annar fé- laga hans ætlaði þó að bæta úr því með því að lána honum skó af sér, hvað hann gerði. En Jón þraut gönguna fljótlega, og var þá aðframkominn bæði af þreytu og kulda. Var það þá til bragðs tekið að láta Jón á annan klárinn, en hinir tveir héldu áfram gangandi. Ekki hélt Jón samt lengi út, heldur gaf allt frá sér og kvaðst með engu móti geta haldið sér uppi lengur. Bjuggu félagar hans þá um hann í gjá einni á heiðinni, sprettu reiðingnum af öðrum hestinum og breiddu yfir Jón. Hestinn skildu þeir HöíuSreiðar. — Á Reykjaheið'i varð þeim litið lil höfuðsins og sáu það gapa og geispa afskaplega. Heita það síðan Höfuð- reiðar. og eftir hjá honum. Sjálfir héldu þeir áfram út í hríðarsortann, gengu þannig eða ráfuðu um auðn- ina allan daginn til kvölds, lögðust þá fyrir, og sofnaðist eitthvað um nóttina. Sama sagan endur- tók sig daginn eftir, en morguninn þar á eftir var Hallgrímur orðinn svo örmagna að hann treystist ekki til að rísa á fætur. Var Árni nú einn orðinn og úr vöndu að ráða fyrir hann. Hann var villtur, vissi ekkert hvert halda skyldi og hríðin jafn dimm sem áður. Áður en hann skildi við Hallgrím bjó hann um hann eftir föngum og skildi eftir hjá honum hestinn. Að svo búnu hélt hann einn síns liðs út í hríðina. Eftir að hafa gengið lengi dags hitti hann menn úr Kelduhverfi, sem lagt höfðu upp á Tteykjaheiði til að huga að kindum. Árni sagði þeim sinar farir ekki sléttar, hafi hann skilið við tvo menn sitt í hvoru lagi og báða að bana komna. Varð að ráði milli þeirra að Árni sneri aftur með smalamönnum til að freista þess að finna Hallgrím. Fundu þeir hann, en hann var þá örendur. Þegar Árni komst loks með smalamönnum til bæja um kvöldið voru liðnir nær fjórir sólarhring- ar frá því liann lagði upp á heiðina. Var hann nær berfættur orðinn, en þó furðu Htið skemmdur. Leit var hafin að Jóni strax daginn eftir og fannst hann látinn á þeim stað þar sem þeir Árni og Hall- grímur höfðu við hann skilið. Gengu dauðir til baðstofu Öll þessu válegu slys hafa komið meira eða minna róti á hugi fólks og vakið þjóðtrú og þjóðsagna- kennd þess í ríkum mæli, enda hafa spunnizt ýms- ar sagnir um vofur og kynleg fyrirbæri á Reykja- heiði. Ein meðal margra sagna er sú að þar hafi löngum átt að sjást mórauður örn á sveimi, einkum á þeim slóðum þar sem Guðrún á Rauðuskriðu og fylgdarfólk hennar varð úti. Draugsending þessi átti að vera frá þeim austlenzka karli sem hafði í heitingum við Guðrúnu þó nokkru áður. í sam- bandi við þetta sama slys hermdi ein sagan að kvöldið eða nóttina sem slysið varð, hafi maður vestur í Skagafirði þótzt sjá fólk vera að deyja norður á Reykjaheiði. Enn ein saga segir frá því að halda hafi átt í lengstu lög slysinu leyndu fyrir húsfreyjunni á Fjöllum, en hún var systir Þorsteins sýsluskrifara sem varð úti á heiðinni í þessum voða- byl. En það var þýðingarlaust, því fólkið — fimm að tölu — kom á hverju kvöldi fannbarið inn í baðstofu til hennar, og þá vissi hún hvernig komið var. Sú sögn er skráð í Huld að eitt sinn hafi maður, Bjarni að nafni, lagt upp á Reykjaheiði, en þá var sæluhús þar enn uppistandandi. 26 FRJALS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.