Frjáls verslun - 01.04.1963, Qupperneq 31
Stjórn Verzlunarbankans, talið frá vinstri: Höskuldur Ólafsson bankastjóri, Þorvaldur
Guðmundsson stjómarformaður, Magnús Brynjólfsson og Egill Guttormsson
Sfofnlánadeild í afhugun
Aðalfundur Verzlunarbanka íslands hf. var hald-
inn í veitingahúsinu Lidó laugardaginn 6. apríl
Fundarstjóri var kjörinn Geir Hallgrímsson,
borgarstjóri, en fundarritarar Sveinn Snorrason,
hæstaréttarlögmaður og Gunnlaugur J. Briem verzl-
unarmaður.
Formaður bankaráðs Þorvaldur Guðmundsson,
forstjóri, flutti skýrslu um starfsemi bankans á síð-
astliðnu ári. 1 henni kom fram að öll starfsemi
bankans hafði mjög aukizt á árinu. Innstæðu aukn-
ing nam samtals 81,4 millj. kr., þar af varð 77,1
millj. kr. aukning á innstæðum í sparisjóði. Ileild-
arinnstæður í bankanum voru í lok síðasta árs
319,3 millj. kr. Útlánaaukning bankans varð 58,4
millj. á árinu. Bankinn rekur nii útibú að Lauga-
vegi 172 í Reykjavík og að Hafnargötu 31 í Kefla-
vík.
Unnið er nú að athugun á stofnun sérstakrar
stofnlánadeildar við bankann og kom mikill áhugi
fram í umræðum á fundinum á því máli, svo og
nauðsyn þess að Verzlunarbankinn öðlist heimild
til erlendra viðskipta.
Höskuldur Ólafsson, bankastjóri, lagði fram og
skýrði endurskoðaða reikninga bankans fyrir sl.
starfsár. Voru þeir samþykktir einróma.
í umræðum um skýrslu bankaráðs og reikninga
bankans tóku til máls Sigurður Magnússon, Hann-
es Þorsteinsson og Björn Snæbjörnsson. Fögnuðu
ræðumenn viðgangi bankans og lögðu ríka áherzlu
á nauðsyn þess að bankinn hefði jafnvígisaðstöðu
við aðra banka um alhliða viðskiptaþjónustu.
í bankaráð voru endurkjörnir þeir Egill Gutt-
ormsson, stórkaupmaður, Magnús J. Brynjólfsson,
kaupmaður og Þorvaldur Guðmundsson, forstjóri.
Varamenn í bankaráð voru kjörnir Björn Guð-
mundsson, kaupmaður, Vilhjálmur II. Vilhjálms-
son, stórkaupmaður og Haraldur Sveinsson, for-
stjóri. Endurskoðendur voru kjörnir Jón Helgason,
kaupmaður og Sveinn Björnsson, stórkaupmaður.
Fundurinn var fjölsóttur og sátu liann rúmlega
300 manns.
FRJÁLS VERZLUN
31