Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1963, Side 32

Frjáls verslun - 01.04.1963, Side 32
„Við verðum að fara í matarkúr aftur, Hinrik." ★ Heppnin er kvenkyns og að fleiru leyti eins og kona: Krjúpirðu fyrir henni, fyrirlítur hún þig. Þú ættir að steyta linefann framan í hana. Þá verður það máske hún, sem krýpur. — William Faulkner. ★ Ég er á þeirri skoðun, að sem fann upp brúðu- leikhúsið, hafi gert mannkyninu meiri greiða en sá, sem fann upp óperuna. — William Itazlitl. ★ Svefntöflur gera alla jafna. Ef allir Ameríkumenn tækju fjórar Nembutal-töflur tvö þúsund kvöld í röð, myndi það nægja til að gera okkur alla jafna. Við yrðum allir að fábjánum. — Norman Mailer. ★ í new York hefur Indíáninn Ilvíta skýið verið ráðinn til að annast barnagarðinn í hóteli einu. Þetta hefur gefizt svo prýðilega vel, að mestu óláta- belgirnir verða alveg eins og lömb, ef Indíánahöfð- ingi er nærri. Litil telpa var að lesa í bók, og þá greip móðir hennar fram í og spurði: „Hvað ertu að lesa, væna mín?“ „Ég veit það ekki, mamma,“ anzaði sú litla. „En þú last samt upphátt.“ „Já. En ég hlustaði ekki á það.“ ★ ítalirnir vilja endilega telja okkur trú um, að allar nýjungar í karlmannafötum upp á síðkastið séu þeim að þakka. Þetta er tóm tjara. Þröngar buxur, lítill kragi og hátt upphnepptur jakki er ekkert annað en endurnýjaður stíll, sem kom upp í Englandi snemma á öldinni. — Bernard Weatlierill klæðskeri íLondon. ★ Sérhvert heilbrigt þjóðfélag verður að gefa svig- rúm fyrir nýjar og óvenjulegar hugmyndir, fyrir frumlega einstaklinga, handa öllum þeim manneskj- um, sem að einu eða öðru leyti eru „öðruvísi". — ,,Facts“, ástralskur bæklingur. „Mér þykir mikið fyrir því að tilkynna yður, að hin þrótt- mikla ræða yðar til vamar ritskoðun i sjónvarpinu verður að ganga í gegnum ritskoðun nú þegar." 32

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.