Frjáls verslun - 01.01.1970, Blaðsíða 6
6
FRJÁLS VERZLUN
STEYPUM ÁVALLT
l)R BEZTU VIDUR-
KENNDU SJAVAR-
EFNUM
B.M .VALLÁ
STEVPUSTÖD
Laugavegi 176
Símar 35756-32563-
38374
LÖGMENN
EYJOLFUR KONRÁÐ JONSSON
JÖN MAGNÚSSON
HJÖRTUR TORFASON
SIGURÐUR SIGURÐSSON
SIGURÐUR HAFSTEIN
MÁLFLUTNENGUR
INNHEIMTA
SAMNINGSGERÐIR
LÖGFRÆÐILEG AÐSTOÐ
Tryggvagötu 8 — Símar: 1-1164, 2-2801 og 1-3205
Símnefni: JUS
FLJÚGIÐ - 0G TAKIÐ
BÍLINN MEÐ
Flugfélag í Bandaríkjunum,
Universal Airlines, hefur sótt um
leyfi flugmálastjórnarinnar til að
taka upp flug innan Bandaríkj-
anna, þar sem fluttar yrðu fjöl-
skyldur, sem hefðu bílinn með.
Áætlar flugfélagið að geta flutt
fjórar manneskjur og bíl þeirra
þvert yfir Bandaríkin fyrir um
400 dollara, sem er um það bil
jafnvirði tveggja og hálfs far-
gjalds í flugvél á sömu leið.
Byggist áætlun þessi á að kaupa
útgáfu af risaflugvélinni Lock-
heed C5A. Myndi vélin geta flutt
46 venjulega ameríska bíla og
fólkið á efri hæð. Hefur félagið
pantað fimm vélar frá Lockheed
og kveðst fá þær 1973 og 1974.
Flug með bíla er þó stundað
þegar á nokkrum stöðum. Mest
mun vera um það í Englandi,
þar sem mikið er um, að bílar
séu fluttir flugleiðis yfir Ermar-
sund til Frakklands.
MOBIL EC0N0MY RUN
HÆTTIR
Sparaksturskeppni Mobil olíu-
félagsins hefur nú verið lögð nið-
ur, í Bandaríkjunum að minnsta
kosti. Ástæðan fyrir því er ein-
faldlega sú, að í þeirri velsæld,
sem fólk lifir við í Bandaríkjun-
um, hefur það tiltölulega lítinn
áhuga á, hvort bíll eyðir litlu eða
ekki. Sézt þetta meðal annars á
því, að sparneytnustu módelin
með minnstu vélarnar seljast lítið.
Fréttum þessum var tekið mis-
jafnlega í Detroit. Kostnaður við
þátttöku var gífurlegur, en aug-
lýsingagildi þess að sigra var svo
mikið, að allir töldu sig verða að
vera með. Sagt er, að einn fram-
leiðandi hafi meira að segja byggt
módel, er var sérstaklega gert
með það í huga að taka þátt í
keppninni, sem hefði farið fram í
apríl í ár.
Keppni þessi hefur einnig verið
haldin árlega í Bretlandi, en ekki
er kunnugt um, hvort hún fer
fram eða ekki.