Frjáls verslun - 01.02.1970, Qupperneq 6
ð
FRJÁLS VERZLUN
1965 1066 1961 1968 1969
Hér er sýnd þróun vöruskiptajafnaðar með sama hætti og inn- og útflutningur á fyrra línuritinu.
Tolla
breyting-
arnar
Eins og kunnugt er, varð ísland aðili að Fríverzlunarsamtökum Evrópu
(EFTA) 1. marz síðastliðinn. Hér er ekki ætlunin að ræða þau mörgu og
margvíslegu áhrif, sem aðildin mun hafa á þjóðarbúskap okkar, heldur ein-
ungis taka einn einstakan þátt til ulmræðu: Tollalækkanirnar, sem við fram-
kvæmum. Tollalækkununum 1. marz má skipta í þrjá höfuðflokka. 1. Lækk-
un tolla af fullunnum vörum gagnvart EFTA-löndum. 2. Lækkun hráefnis-
tolla. 3. Lækkun vélatolla.
1. Lækkun tolla af fullunnum vörum gagnvart EFTA-löndiun nær ein-
ungis til verndartolla, þ. e. einungis tolla af vörum, sem einnig eru fram-
leiddar innanlands. Gagnvart EFTA-löndum lækka þessir tollar um 30%, en
verða óbreyttir gagnvart öðru|m löndiun. Síðasttalda atriðið mun vafalaust
hafa nokkur neikvæð áhrif á viðskiptakjörin, þar sem innflutningur frá
EFTA-landi getur verið hagstæðari fyrir innflytjandann, jafnvei þótt raun-
verulegt útflutningsverð sé lægra í öðru landi. Þetta á alveg sérstaklega við
vörur, sem hafa verið í háum tollflokkum, því þar verður munurinn meiri.
Fyllsta ástæða er því til að varast frekari tollamismunun milli landa, þegar
að næsta áfanga í tollalækkunum gagnvart EFTA kemur, að fjórum árrnn
liðnum. Þótt tollar lækki um 30% verða áhrifin á vöruverð mim iminni, eins
og eftirfarandi útreikningur sýnir. Tekið skal fram, að álagningin er áætluð
af algjöru handahófi, og jafnframt er reiknlað með, að hún breytist ekki að
krónutölu.
Innflutningsverð
ToIIur
Heildsölu- og smásöluálagning
Söluskattur
Nú: Verður:
100,00 100,00
100% 100,00 70% 70,00
100,00 100,00
7,5% 22,50 11% 29,70
Smásöluverð
322,50 299,70
Lækkun smásöluverðs yrði í þessu dæmi um 7%.
2. Lækkun hráefnistolla nemur yfirleitt um 50%. í sumum tilfellum
stendur raunar þannig á, að hráeftii einnar iðngreinar er fullunnin vara í
annarri iðngrein. Hefur því ekki verið unnt að fylgja þessu út í yztu æsar.
í fæstttm tilfellum mun þetta atriði þó skipta verulegu máli.
3. Lækkun vélatolla nær til iðnaðarvéla o!g véla í landbúnaði og fisk-
vinirislu. Þessir tollar lækka almennt niður í 7%. Ekki er auðtvelt að gera
sér grein fyrir, hvers vegna þessir tollar voru ekki felldir algjörlega niður.
Hafi tekjusjónarmið ríkissjóðs ráðið þar um, má ætla, að heppilegra hefði
verið að lækka hráefnistollana ekki alveg eins mikið, en fella vélatollana
algjörlega niður. Hið sama gildir, ef það sjónarmið hefur ríkt, að verndin
haldist almennt óbreytt. Ég fæ ekki betur séð, en verið sé að gera riauðsyn-
leg vélakaup, og enldurnýjun gamalla véla, óþarflega dýra. Vegna þeirrar