Frjáls verslun - 01.02.1970, Blaðsíða 30
3D
FRJALS VERZLUN
BRAUTRYÐJENDUR
sanngjarnra
IÐGJALDA
HVAÐ SEM TRYGGINGIN NEFNIST
ER AÐ BAKI HENNI ÖFLUGT
TRYGGINGAFÉLAG
Hagtrygging hf.
Eiríksgötu 5 sími 3 85 80
vík, og rak það í fjögur ár.
Hann byrjaði fyrst með nám-
skeið fyrir Matsveina- og veit-
ingaþjónaskólann 1951, en hef-
ur svo verið skólastjóri hans
frá 1955, Og við gefum Tryggva
orðið:
— Matsveina- og veitinga-
þjónaskólinn tók til starfa
haustið 1955, í Sjómannaskól-
anum, og hefur verið þar æ
síðan. Aðstaðan er því miður
ekki nógu góð, ef vel á að vera
þarf að reka svona skóla í sam-
bandi við veitingastað til að
auðvelda verklega kennslu.
Eins og málin standa nú er
verkleg kennsla ekki nógu ít-
arleg, við höfum hreinlega ekki
efni á henni.
— Það má segja, að náminu
sé skipt í tvo flokka, eða
kannske öllu heldur þrjá.
Framreiðslumenn þurfa að
ljúka þriggja ára námi hjá
meistara, en jafnframt stunda
þeir nám hér í skólanum í
þrisvar sinnum fjóra mánuði.
Matreiðslumenn þurfa fjögur
ár, og þeir eru einnig þrisvar
sinnum fjóra mánuði í skólan-
um. Þetta veitir þeim réttindi
til starfa á veitingahúsum og
á farþegaskipum. Svo erum við
með átta mánaða námskeið
fyrir þá, sem vilja gerast mat-
sveinar á fiski- eða flutninga-
skipum. Við erum svo einnig
með námskeið fyrir fram-
reiðslustúlkur, sem annað hvort
vinna sjálfstætt á minni veit-
ingastöðum, eða eru fram-
reiðslumönnum til aðstoðar á
þeim stærri.
— Hvað geta margir stund-
að nám í einu?
— Við reynum að taka alla,
sem vilja. Núna erum við t. d.
með 20 matreiðslumenn í þriðja
bekk, 7 í öðrum og 15 í fyrsta.
Hingað til höfum við útskrifað
84 matreiðslumenn, sem hafa
lokið reglulegu námi frá skól-
anum, en nokkrir hafa fengið
undanþágur, þannig að alls eru
þeir 101, sem stundað hafa nám
hér. Framreiðslumenn eru 112,
126 með þeim, sem hafa íengið
undanþágur frá námstíma.
— Hvað þurfa þeir að vera
gamlir, og hvaða menntunar er
krafist, þegar þeir koma hing-
að?