Frjáls verslun - 01.04.1971, Qupperneq 49
49
FRJÁLS VERZLUN NR. 4 1971 GREINAR OG VIÐTÖL
þeir þingmennirnir Ólafur
Björnsson prófessor og Karl
Guðjónsson fræðslufulltrúi
flytja tillögu um hagstofnun
launþegasamtakanna. Kjara-
barátta hér á landi er þvi
miður rekin á löngu úreltum
forsendum, og þar er gagn-
gerðra breytinga þörf.
fslenzkir atvinnuvegir hafa
hver sitt gildi, gildi þeirra er
þó mismunandi, og það breyt-
ist með framþróun tækni og
auknum kröfum um öruggara
og þægilegra líf í öllum grein-
um. Þar sprettur þörfin fyrir
meiri og fjölbreyttari þjónustu,
sem kallar á sífellt fleira fólk
til þjónustustarfa, á sama
tíma og tæknin tekur við af
mannshöndinni í grundvallar-
atvinnugreinum og í veruleg-
um mæli í úrvinnsluatvinnu-
greinum, og margfaldar fram-
leiðsluna og verðmæti hennar.
Þessi stóraukna framleiðni í
framleiðslugetu allra lands-
manna, er vissulega undirstaða
velmegunarinnar. En hvar og
hvernig á þá að njóta hennar,
ef ekki á að svara kröfunum
um aukna og fjölbreyttari þjón-
ustu og koma til móts við þær,
svo sem tilefni er til? Það
Það væri e. t. v. hagstæðara,
að Reykvíkingar færu almennt
til London í verzlunarerindum
en í sinn eigin miðbæ? Eða
væri betra að verzlanir í Lond-
on rækju hér útibú heldur en
að íslendingar annist sjálfir
verzlunarrekstur? Að þvi
slepptu, hvort framtíð íslenzks
neyzluvöruiðnaðar yrði þá
bjartari? Nei, við skulum ekiki
heimska okkur á því, að skatt-
yrðast út í íslenzka verzlun og
þjónustu, eins og þar séu flær
á beit. Nær væri að hyggja að
því, hvers vegna íslenzk verzl-
un er ekki enn öflugri en raun
ber vitni, og hvort ekki væri
unnt að reka hana með enn
betri árangri en nú fyrir þjóð-
arheildina.
RÍKISAFSKIPTI.
Islenzk verzlun er nú að
raestu leyti frjáls, þ. e. a. s. inn-
flutningsverzlun og innanlands-
verzlun. í útflutningsverzlun
gilda enn miklar hömlur, og
þar er í ýmsum greinum stór-
mikilla umbóta þörf. Það er m.
a. fráleitt, að sáralítið skuli not-
uð sú þekking og reynzla, sem
verzlunin hefur í þjónustu
sinni, og ekki heldur sambönd
hennar að neinu umtalsverðu
marki. En nóg um það að
sinni. Innalandsverzlunin er
BOKHALDSVE LAR
ÁVALLT FYRIRUGGJANDI
Magnús Kjaran
Hafnarstrœti 5 Simi 24140
HEFUR TEPPIN SEM
HENTA YÐUR
TEPPAHUSIÐ
'!!l!!!Í!!!llííííi!ÍIÍ!ílílÍillllÍl|(!tl:lll!ii!!i:iiM;mi!i!i]l!!!ÍÍIl!!!!i!!!!!!!iim!!il!ÍÍÍÍI!í!í!i!!i!!!!!!í!iií!!!iiit!tt!t!tlt!l!!ii