Frjáls verslun - 01.09.1971, Side 29
Skattar
*
Atthagafjötrar úr nýjum efnum
Skattalögin nýju binda fólk við íbúðir sínat í 3 ár — Þau munu meira
að segja virka aftur fyrir sig — Embættismannakerfið gegn einstaklingnum
Margur maðurinn spyr ef-
laust sjálfan sig þessa dagana:
Er búið að innleiða átthaga-
fjötra á íslandi?
Með breytingu á skattalögun-
um, sem gerð var á síðasta Al-
þingi, og sem hlaut staðfestingu
í júní í sumar, er fólki nánast
gert ókleift að selja eigin íbúð
og kaupa aðra í staðinn eða
byggja nýtt húsnæði, nema það
hafi áður búið meira en þrjú
ár í gömlu íbúðinni. Skiptir
engu máli þótt nýja íbúðin sé
keypt strax.
Þetta ástand orsakast af því,
að samkvæmt nýjum ákvæð-
um í skattalögunum, verður
hagnaður af sölu eigin íbúðar
skattlagður, nema eigandinn
hafi búið í henni í þrjú ár, áður
en hann selur. Hingað til hafa
menn getað skipt um húsnæði,
án þess að hafa áhyggjur af
skattlagningu sem þessari, að
vissum, en, í flestum tilfellum,
vel yfirstíganlegum skilyrðum
uppfylltum. Búið er að setja á
fólk fjötra, sem voru ekki til
áður.
„HAGNAÐUR“
Þessi ,,hagnaður“, sem sam-
kvæmt hinum nýju skattalög-
um verður skattlagður, er í
rauninni ekki beinn hagnaður,
nema krónulega séð. Þetta er
hinn margfrægi verðbólgu-
hagnaður. Þegar á það er litið,
að eignir hafa mjög hækkað í
verði á umliðnum árum, og ekki
sízt á allra síðustu árum, er
augljóst, að verulegar upphæð-
ir yrðu skattlagðar, undir þeim
kringumstæðum, að fólk vildi
selja íbúð, sem það hefur ekki
búið í sjálft í full þrjú ár.
Við skulum taka dæmi af fjöl-
skyldu, sem hefur búið í hálft
annað ár í fjögurra herbergja
íbúð í austurhluta Reykjavíkur,
envill af atvinnuástæðum flytja
sig vestur fyrir læk og kaupa
þar aðra fjögurra herbergja
íbúð. Gamla íbúðin var keypt
á 1400 þúsund krónur, en nú
selst hún á 1700 þúsund krón-
ur, vegna verðbólgunnar. Ætl-
unin er að kaupa sams konar
ibúð í vesturbænum, væntan-
lega fyrir svipað verð.
Selji fjölskyldan, verður hún
að greiða skatt af hinum svo-
kallaða hagnaði, í þessu tilfelli
300 þúsund krónum, sem bæt-
ast að fullu ofan á tekjur heim-
ilisins. Skatturinn getur í versta
falli orðið allt að 57.27% af
hagnaðinum. Það gæti því
kostaðfjölskylduna um 171 þús-
und krónur, aukalega, að færa
sig um set. Þetta nýja „flutn-
Nú getur fólk ekki lengur byggt nýtt — eða keypt, þegar það þarf eða vill, eigi það íbúð,
sem þoð hefur ekki búið í sjálft í þrjú ár.
FV 9 1971
27