Frjáls verslun - 01.09.1971, Blaðsíða 37
VANDIÐ VALIÐ
VELJIÐ MOON-SILK
SNYRTIVORUR
Halldór Jónsson hf Hafnarstræti 18 • Reykjavík Sími 22170
FRYSTIHÚS
FISKKAUP
FISKSALA
HRAÐFRYSTIHOS
Þórðar Óskarssonar hf.
Akranesi. Sími 93-1570.
Verðlagsdómi, einn stærsta
þröskuldinn í veginum fyrir
nægilega virku verðlagseftir-
liti. Almennt talað telur verð-
lagsstjórinn sig þó standa í
vinsamlegu sambandi við kaup-
menn. Þeir taki heimsóknum
yfirleitt kurteislega og af skiln-
ingi, og hlusti á ábendingar og
taki tillit til þeirra Hann seg-
ist ekki vita, hve mörgum sinn-
um sé kært árlega til Verð-
lagsdóms, en flest séu þetta
,,smámál“, þ. e. a. s, ekki er
um þung viðurlög að ræða, og
málin fara sjaldnast til Hæsta-
réttar. Við spurðum hann,
hvort skrifstofan ynni ekki öll
kærumál sín, og sagði hann að
svo væri ekki.
SKYLDUR
VIÐSKIPTAAÐILA
Til að skrifstofa verðlags-
stjóra geti gegnt hlutverki
sínu ber öllum innflytjendum
að skila verðreikningum yfir
allar innfluttar vörur til skrif-
stofunnar innan 10 daga frá
tollafgreiðslu. og er óheimilt
að selja vörurnar fyrr en verð-
reikningi hefur verið skilað.
Verðútreikningum er skilað í
tvíriti á þar til gerðum eyðu-
blöðum og heldur skrifstofan
öðru, en hitt fær innflytjand-
inn til baka, stimplað af stofn-
uninni. Þá ber öllum, sem selja
vörur til verzlana að skila
skrifstofu verðlagsstjóra afriti
af sölureikningum vikulega
MISMUNANDI VERÐ
Margir virðast álíta að þetta,
svo og sjálft eftirlitið, eigi að
tryggja, að verðlag sé yfirleitt
hið sama alls staðar, hvernig
sem á stendur. Menn skilja t. d.
stundum ekkert í því, hvers
vegna sama tannkremstegund-
in er ekki alls staðar með sama
verði og fyllast grunsemdum.
Ástæðan þarf þó engan veginn
að vera sú, að um rangt verð-
lag sé að ræða. Við eina könn-
un skrifstofunnar á verði á til-
tekinni tannkremstegund komu
í ljós hvorki meira né minna
en tólf mismunandi verð — og
voru öll rétt. Skýringar eru
ýmsar, en aðallega ein, að um
misjafnlega gamlar birgðir sé
að ræða, og að verðbreytingar
erlendis hafi átt sér stað.
VERÐMERKINGAR ERU
VANDAMÁL
Þegar verðlagsstjórinn er
spurður að því, hvert sé aðal-
FV 9 1971
35