Frjáls verslun - 01.09.1971, Síða 39
vandamálið, sem skrifstofa
hans eigi við að etja í sam-
skiptum við kaupmenn, svarar
hann hiklaust: Verðmerking-
arnar. „Vandamálið í eftirlit-
inu er að fá kaupmenn til að
verðmerkja þær vörur, sem
þeir hafa á boðstólum. Verð-
merking er skylda samkvæmt
ákvörðun Verðlagsnefndar. Það
hefur gengið ótrúlega illa að
fá kaupmenn til að virða þessa
reglu. Hún er búin að vera í
gildi í mörg ár, en tæpast er
hægt að tala um bein fyrir-
mæli til kaupmanna um verð-
merkingar fyrr en eftir 1957.
Mér er raunar óskiljanlegt,
hvað kaupmenn eru tregir í
þessum efnum,“ segir verð-
lagsstjórinn og hristir höfuðið.
ÓNÁKVÆM VIGTUN
Vandamál númer tvö er, að
dómi verðlagsstjórans, óná-
kvæmni í vigtun, sem jafngild-
ir auðvitað ónákvæmni í verð-
lagningu. Þessi ónákvæmni
verkar oftast bæði til hækkun-
ar og lækkunar, en er mjög
ábsrandi. Þegar ekki er um
einhliða ónákvæmni að ræða,
t. d. eingöngu til hækkunar,
lætur verðlagsstjóri sér nægja
að gera athugasemdir, nema
um stórfelld og síendurtekin
brot sé að ræða Þá er kært til
Verðlagsdóms.
TRÚ, EN EKKI OFTRÚ!
Þegar verðlagsstjóri er spurð-
ur um persónulegt álit á opin-
berum. afskiptum af verðlags-
málum, svarar hann á þessa
leið:
„Ég tel, að aðstæður á hverj-
um tíma ráði mestu um þörf-
ina fyrir slík afskipti. Á tím-
um verðbólgu og spennu í efna-
hagslífinu tel ég að ekki verði
hjá því komizt að ríkisvaldið
hafi hönd í bagga rrleð þróun
verðlagsmálanna. Ég hef ekki
trú á því, að við slíkar aðstæð-
ur geti samkeppni tryggt sann-
gjarna eða eðlilega verðmynd-
un. Tel ég, að reynslan hafi
ljóslega sýnt þetta hér hjá okk-
ur. Það er svo önnur hlið á mál-
inu, hversu víðtæk hin opin-
beru afskipti þurfi að vera og
með hverjum hætti þeim skuli
fyrir komið.
Annars er ástæða til að vara
við oftrú á gildi opinberra verð-
lagsákvæða. Þau eru liður í
hinni almennu efnahagsmála-
stjórn, er ætlað að veita lið í
baráttu við verðbólgu og dýr-
tíð, en geta auðvitað með eng-
um hætti komið í staðinn fyrir
vakandi eftirlit og dómgreind
hins almenna kaupanda."
Hvað sem því líður er al-
mennt talið, að skrifstofa hans
ræki hlutverk sitt eins og efni
og ástæður leyfa. Að vísu er
ekki víst að kaupmenn sætti
sig við heimsóknir frá verð-
lagsstjóra, þótt embættismönn-
um hans sé yfirleitt tekið af
fyllstu kurteisi. En verðlags-
stjórinn og embættismenn hans
gera ekki annað en skyldu sína,
hvað sem ágreiningi um ein-
stök mál kann að líða. Það er
kannske ekki nema eðlilegt í
landi verðbólgu, að trúin á
verðlagseftirlit verði meiri en
hún er víðast hvar annars
staðar í siðmenntuðum lönd-
um. Menn sjá allt hækka, og
gruna verzlunarstéttina um
græsku. En allt hækkar þrátt
fyrir opinbera verðlagningu og
verðlagseftirlit, og það er mik-
ið rædd spurning, hvaða gildi
svona starfsemi hafi.
KAUPUM
allar tegundir fisks.
FRAMLEIÐUM
hraðfrystan fisk, saltfisk, skreið.
SELJUM
ís.
FISKVINNSLUSTÖÐ
KAUPFÉLAGS AUSTUR-SKAFTFELLINGA,
HÖFN, HORNAFIRÐI
SÍMI 97-8200-8204
ÖNNUMST SKIPA- OG VÉLA-
VIÐGERÐIR, NÝSMÍÐI,
ÝMIS KONAR
HAMAR HF.
Tryggvagötu, Reykjavík.
FV 9 1971
37