Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1971, Side 41

Frjáls verslun - 01.09.1971, Side 41
Þetta er mynd úr sal frystihúss, þar sem ástandið er ósköp venjulegt á'okkar mœlikvarða. Að- skotadót á gólfinu og föt upp um veggi. . . Þarna er úrbóta vant hvað umgengni snertir. GAGNASÖFNUN, LEIÐBEININ GAR Tillögunefndin hóf þegar að safna gögnum um hinar marg- víslegu hliðar verkefnis síns. Á grundvelli þeirra, var í nóv- ember 1970 gefin út „Handbók fyrir frystihús —■ hreinlætis- og hollustuhættir“, og stóðu að þeirri útgáfu auk nefndarinnar, Rannsóknarstofnun fiskiðnað- arins og sjávarútvegsmálaráðu- neytið. Bók þessi var gefin út sem handrit, til þess að koma helztu leiðbeiningum sem fyrst á framfæri. Nú er unnið að end- urútgáfu handbókarinnar, og er stefnt að því að gefa út lausablaðahandbók með sem víðtækustum leiðbeiningum fyrir fiskiiðnaðinn. Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna og Ljóstæknifélag íslands hafa gefið út leiðbeiningarrit um rafbúnað og lýsingu í fisk- vinnslu- og frystihúsum, í sam- ráði við Rafmagnseftirlit ríkis- ins og Brunamálastofnun ríkis- ins. Og í marz 1970 gaf Fiskimat ríkisins út nýja reglugerð um eftirlit og mat á ferskum fiski. Allt hnígur 'þetta að því, að auðvelda mönnum úrbætur í tíma. TVEGGJA MILLJARÐA MÁL Nú eru mikilvæg atriði fram- undan, sem er beinn undirbún- ingur og framkvæmd sam- ræmdra aðgerða til úrbóta í fiskiðnaðinum. Úrbótaþörfin er í aðalatriðum tvíþætt annars vegar umbætur í fiskivnnslu- stöðvunum sjálfum, hins veg- ar á umhverfi þeirra og aðbún- aði, í formi vatnsöflunar, frá- rennslis, löndunaraðstöðu o. fl. Nú í sumar óskaði Tillögu- nefndin eftir upplýsingum frá hraðfrystiiðnaðinum, sem er lang stærsti aðili fiskiðnaðar- ins og málið snertir mest, og átti þar að gera grein fyrir úr- bótaþörf í hverju frystihúsi og áætluðum kostnaði. Tillögu- nefndin hafði fyrr á árinu ósk- að eftir hliðstæðum upplýsing- um frá sveitarfélögunum, hvað snertir umhverfi og veitukerfi. Er gert ráð fyrir að upplýsing- arnar liggi fyrir í frumdráttum á næstu mánuðum og að endan- lega verði búið að vinna úr þeim fyrir árslok. Upplýsingaöflun Tillögu- nefndarinnar beinist fyrst og fremst að þörfum vegna bættra hollustuhátta, og mun verða unnið úr upplýsingunum í sam- ræmi við það. Hins vegar er Ijóst, að í framkvæmd verður erfitt að skilja á milli úrbóta í þessu skyni og annarra nauð- synlegra úrbóta. til dæmis á sviði hagræðingar, sem víða er mjög ábótavant. Og í mörgum tilfellum getur það orðið beim línis óhagkvæmt að búta vanda- málin niður. Þess vegna er haft víðtækt samstarf við samtök hraðfrystiiðnaðarins, bygging- arfróða aðila og aðra sérfræð inga, sem þekkingu hafa á mál- efnum sjávarútvegs og fiskiðn- aðar, svo og er gert ráð fyrir náinni samvinnu við lánastofn- anir. Að vissu marki er aðstað- an svipuð gagnvart sveitarfé- lögunum. Þar er vatnsöflunin t. d. víða mikið vandamál, og er vart við því að búast að hún verði leyst fyrir frystihús sér- staklega. Á þessu stigi verður ekki sagt um það með neinni vissu, hvað óhjákvæmilegar úrbætur kosta. En gizkað hefur verið á, að kostnaðurinn geti orðið 1.5 —2.5 milljarðar. og þar af falla líklega nálægt 2/3 í hlut fisk- iðnaðarins. En upphæðin getur vafalaust orðið talsvert 'hærri, ef allt verður reiknað með, sem með einum eða öðrum hætti tengist óhjákvæmilega úrbótum í meðferð hráefnis og hreinlæt- is við fiskvinnsluna. AÐLÖGUNARTÍMI 2—3 ÁR Talið er sennilegt, að nýja löggjöfin um fisk og fiskafurð- ir í Bandaríkjunum taki gildi á komandi vetri. Þá verður að lík- indum veittur nokkur frestur til að koma úrbótunum á. Upp- haflega var talað um þriggja ára aðlögunartíma, en þar sem setning löggjafarinnar hefur dregizt, er hugsanlegt að frest- urinn verði einungis 2 ár. Þ'etta er vissulega skammur tími. Þess vegna er lögð á það höf- FV 9 1971 39

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.