Frjáls verslun - 01.09.1971, Síða 46
Hraðfrystiiðnaðurinn
Gífurleg endurnýjun framundan
Ráðast verður í umbætur á næstu 2-3 árum, sem ekki kosta minna en
nokkuð á annan milljarð - og jafnframt verður að fá fram almennt
endurmat á umgengni ■ matvælaiðnaðinum
Á síðasta ári, 1970, nam út-
flutningur íslenzkra sjávaraf-
urða rúmum 10 milljörðum
króna. Þar af var um helming-
ur frystar sjávarafurðir. Hrað-
frystiiðnaðurinn er greinilega
og óumdeilanlega mikilvægasta
grein fiskiðnaðarins, og hann
framleiðir verðmætustu útflutn-
ingsvörurnar úr fiskinum, sem
sjómennirnir okkar veiða.
Framvinda í málefnum hrað-
frystiiðnaðarins skiptir því alla
þjóðina gífurlega miklu máli,
og raunar ekki minna máli en
þróun útgerðarinnar, því láta
mun nærri, að hraðfrystiiðnað-
urinn tvöfaldi útflutningsverð-
mæti fisks upp úr sjó. Hrað-
frystiiðnaðurinn er matvæla-
iðnaður, og því gefur það auga
leið að aðstæður allar verða að
vera í samræmi við kröfur á
hverjum tíma um matvæla-
framleiðslu, og um leið kröfur
um fjölbreytta og vandaða
framleiðslu ^ fyrir kröfuharða
neytendur. íslenzkur fiskur er
ekki eini fiskurinn í heimi, og
við ve-rðum því að standast
harða samkeppni. Við höfum
vissulega úrvalshráefni, en fjöl-
þætt meðferð þess í vinnslu og
sala framleiðslunnar eru samt
sem áður úrslitaatriði.
Væntanleg ný löggjöf um
fisk og fiskafurðir í mikilvæg-
asta viðskiptalandi okkar, hvað
hraðfrystar fiskafurðir snertir,
Bandaríkjunum, hefur nú kall-
að á úttekt hraðfrystiiðnaðar
okkar. eins og annars fiskiðn-
aðar, en þó sér í lagi hraðfrysti-
iðnaðarins. Og -hvað kemur á
daginn? Svarið er að vísu ekki
fullmótað á þessu augnabliki,
en það er í nánd. Grófar hug-
myndir liggja fyrir, og Ijóst er,
að endurnýjunar- og úrbóta-
þörfin er gífurleg, auk þess að
sveitarfélögin eru um leið nauð-
beygð til að láta ýmsar aðgerð-
ir í hreinlætismálum, veitu-,
gatna- og hafnarmálum ganga
fyrir og gera þar veruleg á-
tök flest hver, þar sem hrað-
frystiiðnaður er.
FV aflaði sér ýmissa upplýs-
inga, sem þetta varða, og ræddi
sérstaklega við Einar G. Kvar-
an framkvæmdastjóra hjá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
og Guðjón B. Ólafsson fram-
kvæmdastjóra hjá Sjávaraf-
urðadeild SÍS, en fékk auk þess
hjá Efnahagsstofnuninni hlut-
fallstölur um afkomu hrað-
frystiiðnaðarins undanfarin ár.
1— 1.5 MILLJARÐUR
Eins og fram kemur í við-
ræðum við Einar G. Kvaran og
Guðjón B. Ólafsson hér á eftir,
og einnig í upplýsingum í ann-
arri grein, frá Þóri Hilmarssyni
verkfræðingi Tillögunefndar
um hollustuhætti í fiskiðnaði,
virðist tilefni til að áætla, að
óhjákvæmilegar umbætur í
hraðfrystiiðnaðinum á næstu
2- 3 árum kosti ekki minna en
nokkuð á annan milljarð
króna, eða 10—15 milljónir að
meðaltali á hvert hraðfrysti-
hús, sem eru alls rétt innan við
100 talsins. Það kemur einnig
fram, að sums staðar og jafnvel
allvíða þarf að gera ýmsar fleiri
umbætur en þær, sem krafizt er
frá hollustusjónarmiði. og að
vafasamt eða útilokað er að
gera þarna alveg skýr mörk á
milli, þegar til kastanna kem-
ur. Gæti því farið svo, að ráð-
legt yrði talið að gera meiri
endurbætur en reiknað er með
í ágizkunartölunum hér að
framan. Þar getur því verið um
stórar upphæðir að ræða til við-
bótar, þegar þess er gætt, að
nýtt frystihús með búnaði er
nú talið kosta 70-100 milljónir
króna. Nú er t. d. nýhafin
bygging frystihúss á Hornafirði,
sem áætlað er að kosti fullgert
nálægt 100 milljónum.
96 FRYSTIHÚS 1970
Á síðasta ári voru starfrækt
96 frystihús á landinu, 64 innan
vébanda SH, 30 innan vébanda
SÍS og 2 á vegum Sjöstjörn-
unnar hf. í Keflavík, sem er
sjálfstæður útflytjandi.
Framleiðslumagn þessara
frystihúsa var mjög misjafnt,
og sömuleiðis samsetning fram-
leiðslunnar. Nokkur þeirra
frysta einvörðungu rækju, og
önnur að verulegum hluta hum-
ar. Aðeins fimm frystihúsanna
framleiddu meira en 3.000
tonn á árinu, þar af eitt yfir
4.000 tonn, 8 framleiddu 2.000-
3.000 tonn, 22 1.000-2.000 tonn,
en hin minna. Ef framleiðslu-
verðmætið væri tekið til við-
miðunar, yrði niðurstaðan eitt-
hvað frábrugðin þessari, en
ekki verulega.
FRAMLEIÐSLUVERÐMÆTI
UM 5 MILLJARÐAR
Samkvæmt skýrslum Hag-
stofu íslands, nam útflutning-
ur hraðfrystra sjávarafurða ná-
lægt 5 milljörðum króna á ár-
inu 1970. Að meðaltali er það
um 50 milljónir á hús. en það
meðaltal hefur þó lítið gildi í
raun.
Þegar tekið er tillit til birgða-
breytinga milli ára, má segja,
að útflutningsverðmætið í fyrra
svari í stórum dráttum til fram-
leiðsluverðmætisins. Við núver-
andi aðstæður getum við því
44
FV 9 1971