Frjáls verslun - 01.09.1971, Page 51
Þannig er víða umhorfs utan við frystihúsin nú. Þessu á aS breyta á nœstu misserum.
GBÓ: Sjávarútvegurinn hef-
ur all mikla sérstöðu í íslenzku
þjóðfélagi, hvað það snertir, að
honum eru skammtaðir allir
helztu kostnaðarliðir. svo sem
hráefni, laun og þjónusta, en
hann getur ekki verðlagt sína
vöru á sama hátt og þjónustu-
fyrirtæki og þau fyrirtæki sem
selja sína framleiðslu á innan-
landsmarkaði. Afkoma sjávar-
útvegs byggist á heimsmarkaðs-
verði, — en á það hefur ísland
aðeins takmörkuð áhrif — og
skráningu íslenzks gjaldmiðils.
Það er ein af frumskyldum
stjórnarvalda á hverjum tíma
að gæta þess. að rekstursgrund-
völlur þessarar atvinnugreinar
sé tryggður með réttri gengis-
skráningu. Þetta er tæpast
hægt að fara nánar út í hér, en
þetta er að sjálfsögðu undir-
stöðuatriði, sem þýðingu hefur
í sambandi við möguleika til á-
framhaldandi framþróunar fisk-
iðnaðarins i landinu.
ALLS STAÐAR ÚRBÓTA-
ÞÖRF í SJÁLFUM
REKSTRINUM
FV: Hvað er þá að segja um
það sem við gjarnan köllum
tæknilegt ástand og horfur,
með tilliti til þess, að á döfinni
eru mun strangari kröfur um
hollustuhætti?
EGK: Það var auðvitað orð-
ið Ijóst, að margvíslegar endur-
bætur yrði að gera í hraðfrysti-
iðnaðinum í tiltölulega stóru
stökki, eftir að þessi atvinnu-
grein hafði orðið illa úti og ekk-
ert getað byggt sig upp að
gagni um langt skeið. Að vísu
má segja, að í lengstu lög hafi
verið reynt að bæta vélakost og
tæki, til þess að halda húsun-
um rekstrarhæfum, miðað við
samkeppnisaðstöðu á erlendum
mörkuðum. En það gefur auga
leið, að hús mörg hver gömul,
sem ekki hafa í upphafi verið
byggð með nýrri vélakost og
tækjakost í huga, eru orðin úr-
elt og þarfnast breytinga og
viðbótar, það er jafnvel ekki ó-
algengt, að ekki hafi verið bol-
magn til að framkvæma al-
mennt viðhald.
GBÓ: Og ekki má gleyma
því, að mörg frystihús eru stað-
sett á óhentugum stöðum, mið-
að við flutning og meðferð á
hráefninu úr fiskiskipi í
vinnslustöð. Umhverfi margra
frystihúsa er einnig of þröngt
og hefur þess allt of lítið verið
gætt að hafa nóg athafnasvæði
utan dyra og eins ekki rekstur
frystihúss og ýmis annar rekst-
ur eiga ekki samleið hlið við
hlið. Állt hefur þetta sín áhrif á
rekstursaðstöðu frystihúsanna.
Sem dærni má nefna, að frysti-
hús. sem ekki liggur við höfn,
þarf að kosta a. m. k. 600—800
þús. kr. á ári til að reka einn
vörubil. Æskilegt væri, að
frystihús þyrftu ekki neina b-íla
í sinni þjónustu og mundi þan-n-
ig sparast kostnaður og hráefn-
ið fengi betri meðferð.
GBO: Ein hlið þessa máls
snýr að sveitarfélögunum, og
satt að segja er það furðulegt
að liugsa til þess nú, að víðast
hvar hafa það einmitt verið
frystihúsin með umhverfi sinu
sem hafa orðið að bíða eftir
góðri aðbúð. ne-ma því, sem ó-
hjákvæmilegt er. Líklega hefur
tíðarandinn lagt þetta mat á
aðstæður. En nú er þetta að
breytast, sem betur fer, og öll-
um er ljóst, að sveitarfélögii?
verða að gera mikið átak af
sinni hálfu um leið og frysti-
húsin sjáif.
EGK: Ég tek undir þetta. Og
þegar litið er aftur til þess,
sem ég sagði hér áðan, og orða
Guðjóns getum við lagt dæmið
fyrir á þá leið, að nú þurfi að
bæta fyrir vanrækslusyndir
margra ára. Allt hefur hjálp-
azt að, staða hraðfrystiiðnaðar-
ins í atvinnulifinu og tekju- og
gjaldeyrisöflun hefur löngum
verið vanmetin, hraðfrystihúsin
hafa af ýmsum ástæðum ekki
haft bolmagn til að byggja sig
upp í samræmi við þá stað-
reynd. að þau starfa í matvæla-
iðnaði, sem verður að uppfylla
ört vaxandi kröfur á heims-
markaðnum. Væntanleg ný lög
í Bandaríkjunum knýja á um
úrbætur nú, en þær eru jafn
nauðsynlegar fyrir það.
BRÝNUSTU ÚRBÆTUR EKKI
UNDIR MILLJARÐI
FV: Má skilja þetta þannig,
að ekki nægi að taka rekstur
frystihúsanna til endurskoðun-
ar frá sjónarmiði hollustuhátta?
GBÓ: Já, það má skilja þetta
þannig. Ástæðurnar e-ru með
þeim hætti. að víða er lítið eða
ekkert vit í því, að lappa upp á
húsin, eingöngu til þess að bæta
hreinlætisástandið í þrengsta
skilningi, þótt unnt væri að fá
vottorð út á það, sem svo alls
ekki er víst. Á sumum stöðum
verður ó-hjákvæmilegt að
byggja alveg ný hús. En hitt er
nauðsynlegt að hafa í huga um
leið, að ýmislegt má laga í
skipulagi og starfsemi hrað-
frystiiðnaðarins, sem verður þá
að gera kröfu til á sama tíma.
FV: En hvað getið þið ímynd-
FV 9 1971
49