Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1971, Side 59

Frjáls verslun - 01.09.1971, Side 59
stórt átak af því tilefni. Þó er ýmislegt smávægilegra, sem þarf að lagfæra. Við höfum unnið að því smátt og smátt 1 mörg ár, að bæta úr þar sem þess var þörf. Við erum þess vegna tiltölulega vel settir. En auðvitað verður að hafa það í huga, að hér gengur allt út á fisk. Vestmannaeyingar hugsa líklega meira í fiski en aðrir íslendingar. Þetta kemur ein- hvern veginn af sjálfu sér, að við reynum að fylgjast með þró- un í fiskiðnaðinum og má ef til vill segja. að fáuum standi það nær en okkur. Er ástandið svipað hjá hinum frystihúsunum í Eyjum? — Ég get nú ekki dæmt um það, en þó held ég að víðast sé það viðunandi. Hér eru 5 hús, 4 stór og eitt minna, og alls staðar er nú unnið að end- urbótum í ýmsum smærri at- riðum. Þarf bærinn að leggja út í miklar framkvæmdir? — Ekki úr því sem komið er. Vatnsveitan, sem vissulega var lögð m. a. fyrir fiskiðnaðinn, hefur kostað mikið átak, en nú höfum við nóg, gott vatn. Þetta átak var í rauninni grundvöll- ur áframhaldandi fiskiðnaðar hér í Eyjum, þótt unnt væri að notast við klórblandaðan sjó. Að öðru leyti er ekki um stór- felld átök að ræða af bæjarins hálfu. Þó þarf sitthvað að lag- færa. FLATEYRI Einar Oddur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hjálms hf. á Flateyri. — Hvernig hyggist þið snúast við nýjum kröfum í hreinlætismálum? ,,Við ætlum okkur að endur- bæta frystihúsið og umhverfi þess, eins og krafizt verður, um annað er ekki að ræða. Það er auðvitað engin neyð, þetta hefði þurft að gera hvort sem var. Nú er það auðveldara en áður, eftir skárra árferði og betri afkomu síðustu misserin. Þurfið þið að gera mikið? „Það er talsvert. Við höfum látið gera grófa áætlun, sem felur í sér endurbætur innan húss og utan, og telst til, að kostnaður verði ekki undir 10 milljónum. Framkvæmdir eru nú í undirbúningi, og ég geri ráð fyrir, að við tökum þær fyrir smám saman og sérstak- lega á næsta ári. En hreppurinn? „Hreppurinn þarf sérstak- lega að leggja i gatnagerð og annan frágang á yfirborði, þ. á m. á höfninni, sem var byggð fyrir fjórum árum. Fyr- ir utan það að ljúka við plan hafnarinnar, hefur verið áætlað að kostnaður verði um "iVi milljón. Þar í er að vísu nokk- uð meira en það, sem telst næst frystihúsinu og höfninni, en talið er ráðlegt að taka fyrir nokkru stærri áfanga, frá hag- rænu sjónarmiði. Vatn er hér mjög gott, og holræsi í góðu lagi, þannig að þar er ekki um að ræða nein vandamál, sem snúa að ■ fisk- iðnaðinum." DEUTZ ER VANDANUM VAXINN! Loftkœldar DEUTZ-dráttarvélar fást með drifi á öllum hjólum, vökvastýri, samhœfðum (sýnkrón-) gírkassa, tvíhraða aflúrtaki og í 14 staerðarflokkum frá 25 til 160 hö. • HAMARS-moksturstœki framleidd í eigin verkstœðum. Abyrgðarskírteini með hverri vél. Fullkomin viðhaldsþjónusta. DEUTZ-dráttarvélin er kjörin fyrir íslenzka staShœtti. HF. HAMAR, véladeild SÍMI 22123, TRYGGVAGÖTU FV 9 1971 57

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.