Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1971, Side 60

Frjáls verslun - 01.09.1971, Side 60
Samtí&armenn Sveinbjörn Arnason í Kothúsum í Garði Atvinnureksturinn þarf að búa við sæmilegt rekstraröryggi og starfsfólkið við atvinnuöryggi... en þegar vel gengur, tekur hið opinbera að sér að ráðstafa mestu af Á Reykjanestánni, eða nánar tiltekið nyrst á Rosmhvalanes- inu, stendur lítið strjábýlt þorp, sem heitir því látlausa nafni Garður. Á seinni árum hefur það lítt verið þekkt meðal landsmanna, nema þá einna helzt. ef aflaklær hefur borið a góma. Fyrr á árum og jafnvel öldum, á tímum áraskipanna, var Garðurinn öllu þekktari fyrir mi'kið útræði, enda stutt á mjög fengsæl fiskimið. Á vertíðum var athafnalíf mikið, er fjöldi aðkomumanna, víða að af landinu flykktist í verið. En tímarnir breyttust. Þegar vél- menningin tók að hasla sér völl meðal landsmanna, skipti sköp- um fyrir byggðarlagið. Útvegs- bændur í Garðinum voru fram- farasinnaðir og stórhuga menn, sem fylgdust vel með tímanum. Þeir keyptu vélbáta, þótt þeir væru um leið knúðir til að gera þá út frá nágrannabyggðarlög- unum, vegna hafnaleysis heima fyrir. FISKVERKUNARSTAÐUR En þar sem íbúarnir kusu, þrátt fyrir þessar breytingar, að eiga áfram heima í Garðin- um, lá það í hlutarins eðli, að hann yrði fiskverkunarstaður, og þegar að er gáð, verður ekki annað séð, en Garðurinn hafi gegnt því hlutverki með prýði. Þar hafa risið fjölmargar fis'k- verkunarstöðvar. Satt bezt að segja veit ég ekki tölu þeirra, flestar eru þær litlar og sumar hverjar hrein fjölskyldufyrir- tæki. Eftir afkomu manna að dæma, skila þær góðum arði, svo eigendur þeirra eru áreið- anlega ekki fylgjandi þeirri hugmyndafræði að betra væri að hafa þær færri en stæ-rri. ÞRJÚ FRYSTIHÚS Auk fiskverkunarstöðvanna, eru þar starfrækt þrjú frysti- hús, ótrúleg tala í byggðarlagi, sem telur rúmlega 600 íbúa. Af- koma þessara frystihúsa, virð- ist þegar á allt er litið ábata- söm. Ráðamenn þar eru því lík- lega jafn frábitnir samruna- kenningunni og fiskverkunar- mennirnir, hvað sem allri rekstrarhagfræði líður. enda hefur það flogið fyrir að eitt Sveinbjörn Árnason þeirra, að minnsta kosti, hafi verið blessunarlega laust við mörg þau mein, sem fryst.iiðn- aðurinn hefur átt við að glíma á undanförnum árum. AÐ KOTHÚSUM Ærið var því freistandi að bregða sér niður að Kothúsum, í þeirri von um að geta náð tali af eiganda hússins, Sveinbirni Árnasyni, ræða við hann um reksturinn og önnur afskipti hans af fiskvinnslu, en hann hefur fengizt við flestar grein- ar hennar um æfina, sem nú telur yfir 70 ár, og því flest- um hnútum kunnugur á því sviði. Kothúsafrystihúsið stendur á sjávarbakkanum. ekki langt hagnaðinum fyrir neðan Kothúsaíbúðarhús ið, þar sem Sveinbjörn býr. Öll eru húsin hvitmáluð, með rauðu þaki, snyrtileg og yfir þeim hvílir reisn, þótt ekki séu þau hábyggð. Löng álma teygir sig eftir sjávarbakkanum. Hluti hennar er gömul fiskihús, sem tengjast saman með ný- byggingum. Þar eru fiskmót- taka og pökkunnarsalur. Þvert við austurendann stendur stein- steypt álma. sem í eru frysti- klefar, tæki og vélar. Einnig eru þar kaffistofur og snyrti- herbei'gi. eldhús og nokkur svefnpláss, svo og skrifstofa fyrirtækisins, — og einmitt þar hitti ég Sveinbjörn og fékk að tefja hann frá önnum dagsins með nokkrum spurningum. Varla er hægt að ræða Kothúsin, án þess að glugga örlítið í sögu staðarins. Svein- björn tjáði mér, að þar hafi verið stunduð útgerð frá ó- munatíð, enda viða getið í ann- álum. Árið 1550, þegar allar beztu plógjarðir, sem höfðu útróðrarmenn, voru látnar ganga undir Skálholtsstól. voru Kotthúsin þeirra á meðaí. Um 1890 keypti faðir hans jörðina, sem þá var orðin konungseign, Kothús munu áður hafa heitið Darrastaðir. Ólafur Lárusson, gefur þá skýringu á nafnabreyt- ingunni, að sennilega hafi Darrastaðir farið í eyði, en seinna byggt á tóftunum. Hve- nær það gerðist er ekki vitað, en 1550 var Kothúsanafnið komið á jörðina. RÆTT VIÐ SVEINBJÖRN ÁRNASON „Já, sjórinn hefur verið stundaður héðan frá ómunatíð. Mínar fyrstu bernskuminningar eru einmitt tengdar sjósókninni og öllu sem henni fylgdi. Héðan reri fjöldi áraskipa. og mig minnir að yfir 50 manns hafi verið hérna í veri, þegar flest 58 FV 9 1971

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.