Frjáls verslun - 01.09.1971, Side 67
ursins og getum annað honum
með sæmilegu móti. Stjórnun-
arkostnaður er ekki hár. Gunn-
ar sonur minn og ég sjáum um
daglegan rekstur fyrirtækisins,
auk þess er einn verkstjóri. Við
höfum vélabókhald, sem við
látum annast fyrir okkur og
bátana, sem við okkur skipta.“
„í samtali okkar hefur komið
fram, að fyrirtækið hefur góð-
mn starfskröftum á að skipa,
nægilegt hráefni og hagkvæm-
an og öruggan vélakost, svo af-
Kaupum
fisk og
fiskafurðir
Seljum
ís
FISKVINNSLAN HF.
Vopnafirði.
raksturinn hlýtur að vera mik-
ill?“
„Jú, við erum vel bjargálna,
en ríkisvaldið sér um að ekki
verði mikið eftir, þegar búið
er að gera upp ársreikningana.
Fyrir s.l. ár verðum við að
greiða um 3,5 milljónir í gjöld,
svo ekki geta sjóðir okkar ver-
ið ýkja gildir. Mér finnst úti-
lokað að ríkisvaldið geti gengið
svo nálægt atvinnufyrirtækj-
um, að þau þoli engin skakka-
föll, eigi varla fyrir hjólbörum
í afgang eftir árið. Að vísu stóð
þetta svolítið til bóta á fyrra
ári, en fyrirtæki er nauð-
syn að geta safnað í öflugan
varasjóð. Það er ekki einungis
þess hagur að geta treyst rekst-
ur sinn á þann hátt, heldur
einnig fólksins, sem vinnur hjá
viðkomandi fyrirtæki, það
skapar því atvinnuöryggi.“
Og með þessum orðum ljúk-
um við spjallinu. Sveinbirni er
ekki til setunnar boðið, því
vinnudagur er að kveldi kom-
inn og í mörg horn er að líta,
áður en nýr dagur hefst.
— emm.
Við gefum yður kost á
að eignast þennan vinsœla ruggustól
úr íslenzku birki frá Hallormsstað.
Leitið upplýsinga í síma 93-8333
Athugið: Þér veitið iðnaði og skógrœkt stuðning
með því að kaupa íslenzkan ruggustól
frá ATON, Stykkishólmi.
HÚSGAGNAGERÐ
STYKKISHÓLMI SIMI 93-8333
FV 9 1971
65