Frjáls verslun - 01.09.1971, Side 71
starfsmennirnir ykju við þekk-
ingu sína, og enda þótt það
væri nokkur ókostur út af fyr-
ir sig, að þurfa að stefna starfs-
fólki alls staðar að úr 'heimin-
um á einn og sama staðinn, þá
hefði kynningin einnig sitt gildi
og kynni af sem flestum stöð-
um og aðstæðum, sem sköpuð-
ust um leið. Það væri enda
lögð mikil áherzla á það hjá
SAS, að starfsfólkið færi sem
víðast um heiminn, sérstaklega
það sem fengist við sölu-
mennsku. Raunar væri sölu-
mennska í samgönguþjónustu
eins og öðru, atvinnugrein, sem
krefðist mikils af starfsfólkinu,
en um leið hefðu önnur störf
sömu þýðingu, þar sem ekki
þýddi að bjóða viðskiptavinum
aftur góða þjónustu, nema
þeir hefðu reynzlu af því að
hún væri í rauninni góð. Fyrir-
tæki, sem ætlar að standa sig
í harðri samkeppni á alþjóða-
vettvangi, verður að gera
HVlLIÐ MEÐAN ÞÉR VINNIÐ
SAVO-sfóll er vandaður stóll.
B ú S L Ó Ð
HÚSGAGNAVERZLUN
VIÐ NÓATÚN — SlMI 18520
fyllstu kröfur til starfsfólks síns
en það verður einnig að bjóða
því beztu starfsskilyrði. SAS
Training School er liður í þeirri
viðleitni af okkar hálfu.
„RUSH“!
Þegar við komum til baka
frá Damaskus, í fyrstu ferð
SAS þaðan til Stuttgart í
Þýzkalandi. urðu þau mistök,
sem við gátum sjálfum okkur
um kennt, að farangurinn varð
allur eftir í Stuttgart. Það kom
í Ijós, þegar farkosturinn var
lentur í Kaupmannahöfn. Þá
reyndi á þjónustu SAS, sem til
þeirrar stundar hafði gengið
snuðrulaust. Við tilkynntum
skaðann á Kastrupflugvelli, og
leit að farangrinum hófst á
sömu stundu. Ekki leið á löngu,
þar til tilkynning barst um að
hann væri fundinn. Hins vegar
var engin ferð fyrr en seint
daginn eftir, og þá átti vél að
lenda með hann í þann mund
að Flugfélagsvél með okkur inn-
anborðs átti að halda til Kefla-
ví'kur. Atvikin höguðu því svo
til, að einungis 15-20 mínútur
gáfust til að koma farangrinum
á milli véla. Þegar við komum
á Keflavíkurflugvöll vissum
við því ekkert um það, hvort
farangurinn hefði náð okkur.
Og það var ekki fyrr en við
vorum komnir í gegn um toll-
skoðun og út á tröppur. að mál-
ið lá endanlega ljóst fyrir. En
þar stóð þá farangurinn með
merkinu „Rush“, hann var
kominn á undan okkur út að
bíl. . . og við sem vorum að
koma svo til rakleitt frá Aust-
urlöndum, þaðan sem þeir
koma með eiturlyfin, að sagt
er . . . Þvílíkt „Rush“!
Þótt hér væri vissulega að-
eins um eitt atvik að ræða,
sýndi það ljóslega, hversu
þrautþjálfað og samhent starfs-
lið má sín við góðar aðstæður.
En þannig á það líka að vera.
KAUPUM
allar tegundir fisks.
FRAMLEIÐUM
hraðfrystan fisk,
saltfisk, skreið og lýsi.
REKUM FISKBÚÐ
Fiskiðjusamlag
Húsavíkur hf.
Húsavík. Sími 96-41388.
FV 9 1971
69