Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1971, Page 74

Frjáls verslun - 01.09.1971, Page 74
Lngt fólk í atvinnulífinu Birgir Rafn Jónsson forstjóri Sennilega er Birgir Rafn Jónsson yngsti einkaeigandi og forstjóri fyrirtækis af stærri ffráðunni, ef svo má segja, fæddur árið 1943. Hann keypti fyrirtækið Magnús Kjaran heildv. um s.l. áramót og varð um leið yngsti félagi í Félagi ís- lenzkra stórkaupmanna. Hann hóf störf hjá Magnúsi Kjaran h.f. árið 1962, eftir að hafa lok- ið verzlunarprófi og stundað framhaldsnám í eitt ár í verzl- unarskóla í Árósum. Hann byrj- aði sem sölumaður, en varð skrifstofustjóri fyrir fimm ár- um og gengdi síðan að meira og minna leyti störfum fram- kvæmdastjóra. Þegar dánarbú Magnúsar Kjaran stórkaup- manns bauð Birgi fyrirtækið til kaups var það vegna góðrar reynzlu af störfum hans hjá fyirtækinu. Hinir erlendu við- skiptavinir fyrirtækisins þekktu Birgi að góðu einu og ákváðu vafningalaust að halda viðskipt- um sínum áfram við fyrirtækið. Hér skipti mestu máli að fyrir- tækið héldi ýmsum þekktum umboðum fyrir skrifstofuvélar, byggingavörur matvöru og á- fengistegundir. Einna þekktast þessara umboða er Addo, skrif- stofuvélar, en til Addo hefur Birgir farið nokkrum sinnum á námskeið og einnig til Fried- en, sem sömuleiðis framleiðir skrifstofuvélar. Síðan Birgir keypti Magnús Kjaran heildv. hefur tími hans eðlilega farið að langmestu leyti til að mæta þeim breyttu að- stæðum, sem skapast hjá einu fyrirtæki við eigendaskipti. auk þess sem hann hefur flutt sig um set með skrifstofurnar, eða frá Hafnarstræti 5 til Tryggva- götu 8, í stærra húsnæði, til að geta gert þær breytingar, sem hann vinnur nú að. Þess vegna hefur Birgir lítið getað sinnt aðaltómstundaskemmtun sinni, sem er ferðalög, en þau hefur hann stundað af miklu kappi síðustu árin. Hann hefur stundað útivist og flakk, þegar tími hefur gefizt til og farið um mest allt landið og komið á alla jökla landsins. Árið 1967 fór hann þvert yfir Vatnajökul ásamt nokkrum félögum sínum. Hann er félagi í Flugbjörgunar- sveitinni og Ferðafélagi fslands. Það er ekki nema eðlilegt að ferðagarpur á borð við Birgi verði áhugaljósmyndari, en einnig hefur hann tekið tals- vert af kvikmyndum. Af öðrum áhugamálum Birg- is má nefna störf í þágu Junior Chamber, en þar skipaði hann sæti varaformanns. Hann var á sínum tíma einn stofnenda sölumannadeildar Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur í fyrstu stjórn deildarinnar og formaður hennar eitt ár. Magnús Kjaran heildv. er um- boðsverzlun, sem krefst mikill- ar árvekni. „Það halda allir, að þetta sé bara að hirða umboðs- launin“. Þetta er ánægjulegt starf að dómi Birgis, sem seg- ist þó ekki enn hafa gert sér grein fyrir því hvað sé ánægju- legast við jaað að vera orðinn sjálfs sín herra. Þegar hann er spurður að því hvað sé erf- iðast í starfinu, þá svarar hann því ekki beint, en segir: „Að- stöðugjaldið þekkist hvergi í hinum EFTA-löndunum“. Birgir Rafn Jónsson, er kvæntur Ingibjörgu Norberg og eiga þau fjögurra mánaða gaml- an dreng. Bragi Bagnarsson framkvæmda- stjóri Bragi Ragnarsson fram- kvæmdastjóri hjá Kristjáni Skagfjörð h.f. er fæddur á Isa- firði árið 1942. Foreldrar hans eru Ásta Finnsdóttir, Finns Jónssonar alþingismanns og ráðherra og Ragnar Jóhanns- son, fyrrum skipstjóri, nú kaup- maður í Reykjavík. Faðir Ragn- ars var Jóhann Eyfirðingur, kaupm. og útgm. á ísafirði, landskunnur fyrir hnittiyrði sín. Bragi lauk prófi frá Samvinnuskólanum 1962 og var síðan eitt ár hjá útflutn- ingsdeild Sambandsins og eitt ár hjá Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna. Um skeið rak hann það sem hann kallar „rassvasa- heildverzlun“, en árið 1965 tók hann við stjórn nýs fyrirtækis á ísafirði, sem var heildverzl- unin Sandfell h.f. og verzlaði með veiðarfæri og síðar mat- vöru. Eftir þriggja ára for- stjórn réðst hann sem sölumað- ur hjá Kristjáni G. Gíslasyni h.f. og eftir önnur brjú ár flutt- ist hann til Kristjáns Skag- fjörðs h.f. sem framkvæmda- stjóri. Ein af orsökum þess að Braga var veittur þessi trún- aður, er að hans áliti sú, að hann hafði eins og hann segir sjálfur átt í „harðri en vinsam- legri samkeppni1 við Kristján Skagfjörð h.f. meðan hann stjórnaði Sandfelli h.f. 72 FV 9 1971

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.