Frjáls verslun - 01.12.1973, Blaðsíða 28
Biskup: „Óhætt er að fullyrða, að engar samkomur og engin
samkomuhús í landinu hafa fleiri gesti yfir árið en messur í
kirkjum, þegar frá eru talin skemmtihús.“
ii
Byggingaframkvæmdir við kirkju í Ásprestakalli. Fjármögnun
slíkra framkvæmda hvílir að mestu á herðum safnaðanna sjálfra
og í þeim efnum hefur Grettistaki verið lyfit á síðustu árum.
Safnaðarheimili í Langholtssókn. Þar er stundað margþætt fé-
Iagsstarf með íbúum Langholts- og Vogahverfis.
um landið, gefa ekki tæmandi
vísbendingu um almennt við-
horf þjóðarinnar til kirkju og
kristni né heldur er það ein-
hlítt til greiningar á trúarlífi.
En hér er þó um að ræða ekki
svo fámennan hóp landsmanna,
og þeir eru ekki síðri fulltrúar
þjóðarinnar en hver annar
hópur af sambærilegri stærð.
— Teljið þér, að frásagnir
um dræma kirkjusókn á hin-
um hefðbundna messutíma gefi
til kynna, að íslendingar séu
í vaxandi mæli að snúa baki
við kirkjunni?
— Það liggja því miður ekki
fyrir tölur, sem skeri úr um
þróunina í þessum efnum. Og
ekki er einsætt að benda á
mælikvarða, sem hægt væri að
leggja til grundvallar úrskurði
um það, hvort kirkjusókn sé
dræm eða ekki. Ef þér eigið
við með þessu orðalagi, að
kirkjusókn hafi hnignað er
vert að hafa í huga við hvaða
tíma er miðað. Ef farið væri
50-70 ár aftur í tímann þá er
vafalaust að færri sækja messu
nú reglulega og hlutfallslega.
En samanburður er villandi
vegna þess að allir mannfund-
ir voru meira sóttir í þá daga
en nú. Þá þurftu stjórnmála-
menn ekki að beita öngla sína
með skemmtiatriðum til þess
að fá fólk til að koma á stjórn-
málafundi. Þeir þóttu nógu
skemmtilegir sjálfir einkum ef
fleiri áttust við. Þá var öruggt,
að hver miðlungsfyrirlesari
átti vísa aðsókn. Þá var ekki
útvarp, framboð á skemmtun-
um og afþreyingu var tak-
markað. Með öðrum orðum er
það út í bláinn að bera saman
kirkjusókn á þessum tíma og
nú. En sé miðað við t. d. síð-
ustu 20 eða 25 ár þá eru eng-
in rök fyrir því að kirkjusókn
hafi farið þverrandi. Þvert á
móti. Ég tel óhætt að full-
yrða að engar samkomur og
engin samkomuhús í landinu
hafa fleiri gesti yfir árið en
messur í kirkjum, þegar frá
eru talin skemmtihús. Engin
menningarstarfsemi í landinu
getur keppt við kirkjuna um
almenna þátttöku. Þetta er ó-
hætt að fullyrða, þó að hitt
sé jafnvíst, að alltof margir
vanrækja kirkjuna, sérstaklega
í hinum fjölmennu söfnuðum.
Reykjavík er ekki öðrum
byggðarlögum fremri í þessu
nema síður sé enda eru hér
færri kirkjur og færri prestar
að tiltölu en nokkurs staðar
20
FV 12 1973