Frjáls verslun - 01.12.1973, Blaðsíða 45
Heildartekjur ■ verzluninni rúmlega
10,3 milljarðar 1971-72
Ágrip af erindi Jons Sigurðssonar, hagrannsóknarstjora
Ráðstefna Félags ísl. storkaupmanna:
Á ráðstefnu, sem Félag' íslenzkra stórkaupmanna hélt ný-
lega, flutti Jón Sigurðsson, hagrannsóknastjóri, erindi, og
skýrði frá athugunum Hagrannsóknadeildar Framkvæmda-
stofnunar ríkisins, en stofnunin hefur að undanförnu verið
að vinna fyrstu áætlanir sínar um rekstur og afkomu heild-
söluverzlunar á Islandi. Jón upplýsti í ræðu sinni, að nú
fyrir jól væri væntanleg yfirlitsskýrsla um rekstur verzlun-
arinnar í heild árið 1971 og 1972, en fyrirhugað er, að út-
gáfa þessarar skýrslu verði árviss viðburður, svo sem aðrar
atvinnuvegaskýrslur stofnunarinnar.
Jón skýrði í upphafi máls
síns frá verkefni Hagrann-
sóknadeildarinnar, sem væri
að fylgjast með árferði þjóðar-
búsins, vinna að hagrannsókn-
um og hagskýrslugerð, veita
upplýsingaþjónustu á sviði
efnahagsmála og vera ríkis-
stjórninni til ráðuneytis í efna-
hagsmálum. Eitt meginverk-
efni deildarinnar er að athuga
þróun framleiðslu og afkomu
atvinnuveganna, en hann kvað
enn skorta mjög á, að til þess
starfs væri nægur vinnukraft-
ur. Slík skýrslugerð sagði
hann, að væri mjög tímafrek
og líkti henni einna helzt við
skógrækt — þ. e. reglulegur
ársarður skilaði sér ekki fyrr
en eftir mörg ár. Af einstök-
um atvinnuvegum eru athug-
anir á sjávarútvegi hvað lengst
komnar, og sagði Jón Sigurðs-
son, að deildin hefði notið góðs
samstarfs við samtök sjávarút-
vegsins.
FÁAR STTýRST.UR
UM REGLUR
S’ðan sagði Jón Sigurðsson:
„Það er kannski ekki minnst
börf fyrir skvrslur af bessu
tagi um verzlun og viðskinti.
En skvrslur um innanlands-
verzlunina hafa verið næsta
fáskrúðugar síðustu áratugi.
Ég held, að ég muni rétt, að
síðasta skýrsla yfir rekstur
verzlunarinnar í landinu. sem
hæet er að segia, að hafi náð
til heildarstærðar, hafi verið í
Rauðku sálugu, en nefndarálit
skipulagsnefndar atvinnumála
kom út árið 1936. Nefndin
starfaði á árunum 1934 og
1935. Við starf þessarar nefnd-
ar eru misjafnar minningar
tengdar, breytilegar eftir skoð-
unum manna, en ég held ég
fari ekki nánar út í það. Þessi
nefnd vann að mörgu leyti
merkilegt starf á sviði skýrslu-
gerðar um efnahag lands-
manna, hvort sem allar þær
ályktanir, sem af því efni voru
dregnar, voru jafn skynsam-
legar.
Þá sagði Jón Sigurðsson,
að verzlunarskýrsluathuganir
Hagrannsóknadeildarinnar um
rekstur og hag einstakra greina
verzlunarinnar hafi beinzt að
gerð heildarskýrslna, en í því
sambandi hefur verið unnið að
því í samvinnu við Hagstofuna
og skattayfirvöld, að koma upp
verzlunarskýrslum, sem eru
mikilvægar bæði sjálfra sín
vegna og fyrir greinina sjálfa,
svo sem til þess að fylgjast
með þróun eftirspurnar. Jón
sagði, að stefnt væri að því,
að yfirlit yfir stöðu verzlunar-
innar lægi fyrir síðar á þessu
ári. Hann sagðist vonast til
þess, að á næsta ári bættust
fleiri atvinnugreinar við.
Stefnt væri að því að ná
heildaryfirliti yfir þjóðarfram-
leiðslu og atvinnurekstur eft-
ir atvinnuvegum á grund-
velli reikninga fyrirtækjanna
sjálfra, að öllum líkindum á
næsta ári.
417 FYRIRTÆKI í
HEILDARÚRTAKI
Gögnin, sem úr er unnið,
eru einkum skattskil fyrirtækj-
anna, bæði ársreikninar og
launaskatts- og slysatrygginga-
skýrslur. Hefur hagrannsókna-
deildin getað notfært sér at-
vinnuvegaflokkun Hagstofunn-
ar í þessu skyni, og því ná
athuganir aðeins til þeirra
greina, sem hafa slysatrygg-
ingaskylda atvinnu. Skrá skatt-
yfirvalda yfir slysatrygginga-
gjöld mynda þannig í reynd
ramma yfir þessar athuganir
eins og raunar iðnaðarathugan-
ir deildarinnar, sem unnar eru
með svipuðum hætti.
Jón Sigurðsson, hagrann-
sóknastjóri sagði,að ársreikn-
ingar til skatts, sem ætlað
væri að þjóna skattalögum og
reglum væru ef til vill ekki
fullnægjandi til þess að lýsa
skipulega rekstri og raunveru-
legri afkomu fyrirtækjanna, en
menn yrðu að láta sér þá
nægja, þar sem ekki væri völ
á öðru betra. Þá hefði þurft
að takmarka fjölda fyrirtækj-
anna og því hefði verið horfið
að því að taka úrtak úr grein-
inni, og er það m. a. gert
vegna þess, að mjög mikil
vinna hefði legið í því að sam-
ræma reikninga hinna ýmsu
fyrirtækja.
Útflutningsverzluninni og Á-
fengis- og tóbaksverzlun ríkis-
ins hefur verið haldið utan við
athugunina. í heildarúrtakinu
eru hins vegar 417 fyrirtæki
eða um 22% af fyrirtækja-
fjöldanum. Þessi 22% eru með
á milli 60 og 65% af heildar-
atvinnunni í verzluninni og þá
væntanlega veltunni einnig. Á-
stæða þess er, að vísvitandi
eru tekin fyrirtæki úr hópi
þeirra stærri. í úrtakinu eru
yfirleitt öll fyrirtæki, sem hafa
yfir 30 ársmenn í þjónustu
sinni á árinu 1971. Þó eru í
úrtakinu um 70% þeirra fyrir-
tækja, sem höfðu á milli 5 og
30 ársmenn í vinnu, en úrtak
FV 12 1973
37