Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1973, Blaðsíða 29

Frjáls verslun - 01.12.1973, Blaðsíða 29
Á vegum biskupsembættisins er m. a. unnið að útgáfustarfsemi. Á skrifstofu embættisins hefur starfsliði ekki verið fjölgað undanfarin 30 ár. og það ástand, sem orðið er langvinnt hér í borg, hlýtur að hafa neikvæð áhrif í þessu. — Nú er komin til ný og fullkomin tækni í fjölmiðlun. Er líklegt, að kirkjan gæti not- fært sér hana í ríkari mæli en þegar er orðið, — að h'ugs- anlega verði þær breytingar á starfi kirkjunnar, að það flytj- ist að langmestu leyti út úr kirkjubyggingunum sjálfum og að kenningar Krists verði frek- ara boðaðar í fjölmiðlum? Eru þjónar kirkjunnar búnir undir slíka formsbreytingu? — Kirkjan lifir í heimi, sem hver nútíð skapar og bregst við staðreyndum eins og þær liggja fyrir. Útvarp og sjónvarp eru tiltölulega nýleg tæki og eftir er að sjá hvað mannkyn- inu verður úr tækninni. Hér á landi er sjónvarpið að mín- um dómi mjög vannotað og misnotað. Það er ekki notað sem skyldi til fræðslu en flest efni þar, í hvaða þáttum sem það birtist, er svo lélegt að gæðum, að það er nánast til- ræði við menningu og menntir í landinu. Trúarlífið gæti aldrei að öllu leyti flutzt yfir í fjölmiðlana. Þáttur í boðuninni gæti farið þar fram að því tilskildu að kirkjan hefði yfirráð yfir viss- um dagskrártíma, sem til þessa yrði notaður. En eins og sakir standa á kirkjan vægast sagt mjög takmarkaðan aðgang að þessum ríkisreknu fjölmiðlum og frekar hefur verið þrengt að henni upp á síðkastið en hitt. Okkur hefur t. d. ekki lánast að fá samþykki fyrir örstuttri kvöldbæn í lok dag- skrár útvarps og sjónvarps, þó að látnar hafi verið í ljós margítrekaðar óskir þar að lútandi og þó að við höfum fyrir okkur dæmi um þetta frá erlendum stöðvum. — Hve margar eru sóknirn- ar í landinu og hvað margir gegna embættum í þágu kirkj- unnar? — í landinu eru nú 300 sókn- ir og sóknarprestaembætti eru 111 talsins. Auk þess er einn farprestur, æskulýðsfulltrúi og aðstoðarmaður hans, prestur í Kaupmannahöfn, sjúkrahúsa- prestur og söngmálastjóri. Á fjárlögum næsta árs er hins vegar ekki gert ráð fyrir fjár- veitingu vegna sjúkrahúsa- prests né aðstoðaræskulýðsfull- trúa. Nú eru 8 prestaköll í land- inu óskipuð og er það með minnsta móti miðað við það sem verið hefur síðustu árin. Undanfarin 30 ár hefur ver- ið óbreyttur starfsmannafjöldi hér á skrifstofu biskups, þ. e. a. s. biskupsritari og ein aðstoðarstúlka, þó að vinnu- álagið hafi aukizt um 75% að minnsta kosti. — Hverra kjara njóta prest- ar, hver eru hlunnindi þeirra og hvaða reglur gilda um þóknun fyrir einstök prests- verk? — Pi-estar eru í 20. launa- flokki ríkisstarfsmanna og byrjunarlaunin samkvæmt honum gera um 50.000 kr. á mánuði frá 1. desember 1973. Það eru rýr mánaðarlaun þeg- ar tillit er tekið til þess, að guðfræðinám tekur venjulega 6 ár. Utan Reykjavíkur er prestum séð fyrir húsnæði, sem þeir greiða þó leigu fyrir. Hún er misjöfn og fer eftir mati á húsinu á hvaða tíma það er reist og hvernig það er á sig komið. Varðandi þóknun fyrir ein- stök prestsverk, þá ber presti þóknun fyrir skráningu nafns í kirkjubækur en ekki fyrir skírnina sem slíka. Fyrir ferm- ingu, hjónavígslu og greftrun geta prestar líka tekið þóknun en þegar á heildina er litið er þetta mest á pappírum, því að í þorra prestakalla er um svo fá prestsverk að ræða. í þétt- býli geta þessar tekjur prest- anna þó orðið allverulegar en þær innheimtast engan veginn sjálfkrafa. Um aldir hafa prest- ar haft uppeldi sitt af eigin afla. Þeir höfðu ágóða af ábýli. Sumir geta enn gert sér búdrýgindi með þeim hætti. Prestar stunduðu líka margir heimakennslu meðan skólar voru fáir og enn er mik- ið leitað til þeirra um kennslu í skólum Þá eru greiddir bíla- styrkir til presta samkvæmt mati á stærð prestakalla. Er það vissulega mikil hjálp og er greiðslan miðuð við há- marksakstur 7000 kílómetra á ári. — Er fyrirhuguð einhver breyting á skipun prestakalla með tilliti til bættra sam- gangna og lægri íbúatölu víða í dreifbýli? — Um þetta voru sett ný lög árið 1970, þannig að enn frekari endurskoðun stendur ekki fyrir dyrum. En með breytingunni var prófastsdæm- um fækkað úr 21 í 15 og fámennustu prestaköllum var steypt saman. í sumum tilvik- um er einn og sami prestur lát- inn þjóna allt upp í sex kirkj- um. Þar sem sóknir eru fá- mennastar eru vegalengdir oft- ast miklar T. d. um þetta má FV 12 1973 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.