Frjáls verslun - 01.12.1973, Síða 53
Fyrlrtacki.vörur.
þjóuusia
Starfsemi IBIU:
Úrvinnslumiðstöð IBM
á Islandi
Einn þáttur í starfsemi IBM
fyrirtækisins er rekstur úr-
vinnslumiðstöðva bess. Þess
háttar rekstur fer fram í á
annað hundruð löndum og er
með svipuðu sniði hvarvetna,
þótt vélakostur og mannafli
ráðist að sjálfsögðu af stærð
og þörfum atvinnulífsins í
landi hverj'u.
Hér á landi hefur slík þjón-
ustumiðstöð verið rekin á veg-
um IBM á íslandi frá stofnun
fyrirtækisins á árinu 1967. Áð-
ur hafði þáverandi umboðs-
maður IBM, Ottó A. Michelsen,
rekið slíka úrvinnslumiðstöð
frá ársbyrjun 1964 í eigin
nafni, þannig að um þessar
mundir er 10 ára afmæli þessa
þáttar í starfsemi IBM hér-
lendis.
ÞJÓNUSTA VIÐ
VIÐSKIPTAMENN
Rekstur úrvinnslumiðstöðvar
byggist á þjónustu við við-
skiptamenn á sviði gagna-
vinnslu. Stór tölva stendur í
húsakynnum fyrirtækisins til
afnota eða fyrir þá viðskipta-
menn, sem þess óska, eða til
úrlausnar á þeim verkefnum,
sem fyrirtækið hefur tekið að
sér að leysa fyrir hinar ýmsu
greinar atvinnulífsins. Er það
síðarnefnda hinn hefðbundni
háttur úrvinnsluþjónustu.
Skulu honum gerð hér nánari
skil í örstuttu máli.
Fyrirtæki eða stofnun, sem
á við vandamál að stríða, er
leyst kynnu að verða með að-
ferðum tölvutækninnar, fá
kerfisþjónustu við skipulagn-
ingu og gerð útboðslýsingar
fyrir verkefni það, sem um
ræðir. Á grundvelli hennar er
gert tilboð í stofnundirbúning,
svo sem gerð forskrifta fyrir
verkið. Ennfremur er gert til-
boð í úrvinnslu..
Sé grundvöllur fyrir frekari
þjónustu, hefst forskriftagerð
og að henni lokinni úrvinnslur
þær, sem samið hefur verið
um. Er þetta hvort tveggja
unnið af starfsfólki IBM og á
ábyrgð fyrirtækisins.
SKIPT ÁBYRGÐ
Önnur tegund af þjónustu,
sem veitt er á vegum fyrir-
tækisins er hin svonefnda þjón-
usta með skiptri ábyrgð. Þar
er miðað við að viðskiptavin-
urinn hafi gert forskriftir sín-
ar og undirbúið úrvinnslugögn
sín sjálfur og beri ábyrgð á
notkun þeirra. Ábyrgð IBM
miðast hins vegar við að láta
í té vélar, hugbúnað og tölvu-
stjóra, til að vinna verkið á
vélarnar. Þessi tegund þjón-
ustu hefur rutt sér mjög til
rúms á síðari árum, enda verð-
skilmálar hagstæðari, en ef um
þá tegund þjónustu er að ræða,
þar sem IBM ber fulla ábyrgð.
MEÐ ST/ERSTU TÖLVUM
HÉRLENDIS
Kostir úrvinnslumiðstöðvai'
sem þessarar eru öðru fremur
þeir, að viðskiptamenn eru
lausir undan þeirri ábyrgð,
sem fylgir af reka slíkt í eigin
nafni. Þess háttar rekstri fylg-
ir mikil sérhæfing starfsfólks-
ins á sviði tölvutækni. Margir
kjósa hinsvegar, að sérþekking
í hinum ýmsu atvinnugreinum
miðist við þá grein, sem hvert
fyrirtæki starfar í. Önnur atr-
iði ráða þó nokkru um mörk
þess hagkvæma, svo sem stærð
fyrirtækjanna.
IBM hefur í dag til afnota í
úrvinnsludeild sinni að Klapp-
arstíg 27 í Reykjavík eina af
stærstu tölvum, sem í landinu
eru. Með því móti getur fyrir-
tækið á sem hagkvæmastan
hátt mætt vaxandi þörfum við-
skiptamanna sinna. Er það mál
margra, að kostir stórreksturs
á þessu sviði séu mjög afger-
andi vegna forskriftaúrvals,
fyrirfram gerðra kerfa og sér-
þekkingar, sem viðskiptaaðilar
slíkra stórra miðstöðva njóta
aðgang að.
í úrvinnsluþjónustudeild IBM
á íslandi starfa nú 14 manns.
Deildarstjóri er Sverrir Ólafs-
son, viðskiptafræðingur.
ÁSKRIFTASÍIVIAR
82300 - 82302
FV 12 1973
45