Frjáls verslun - 01.08.1975, Side 29
SanllAarmaður
Ingvi Ingvarsson, sendiherra:
„Tel tímabært að stofnuð verði
íslenzk sendiráð í
Kanada, Afríku og Asíu“
Ingvi Ingvarsson hefur gegnt mörgum mikilvægum embættum fyrir íslenzku utanríkisþjónustuna
heima og erlendis. Hann er nú sem kunnugt er fastafulltrúi fslands hjá Sameinuðu þjóðunum.
Tíðindamaður Frjálsrar verzlunar ræddi við Ingva á skrifstofu hans í New York fyrir skömmu.
F.V.: Að hvaða leyti er núver-
andi starf yðar fyrir íslenzku
utanríkisþjónustuna ólíkt þeim,
sem þér hafið áður gegnt?
Ingvi Ingvarsson: — Eg var
skipaður fulltrúi í utanríkis-
ráðuneytinu 1. júlí 1956 og
hef þvl starfað 19 ár í íslenzku
utanríkisþjónustunni. Fyrstu
tvö árin starfaði ég í viðskipta-
deild utanríkisráðuneytisins,
sem þá annaðist veitingu út-
flutningsleyfa. Frá 1. maí 1958
til ársloka 1961 var ég sendi-
ráðsritari í Moskva, en flutt-
ist þaðan til Washington og
starfaði þar sem sendiráðsritari
og ræðismaður og siðar sendi-
ráðunautur, þar til í júní 1966.
Frá 1. júlí 1966 til 1. sept.
1971 var ég varafastafulltrúi í
Norður Atlantshaf&ráðinu
(NATO), fyrst í París og síðar
í Brussel, eftir að Atlantshafs-
bandalagið flutti þangað 1967.
Hinn 11. júní 1971 var ég skip-
aður skrifstofustjóri utamúkis-
ráðuneytisins og gegndi þeim
störfum frá 1. september sama
ár, þar til að ég var tveim árum
síðar skipaður sendiherra og
þá falið að gegna stöðu fasta-
fulltrúa hjá Sameinuðu þjóð-
unum. Hef ég nú gegnt þessari
stöðu í næstum tvö ár.
f Moskva voru störfin eink-
um fólgin í því að fylgjast með
og greiða fyrir viðskiptum
milli fslands og Sovétríkjanna.
í Washington voru þau fjöl-
Ingvi Ingvarsson undirritar sáttmála um verndun diplómata.
Undirritunin fór fram í aðalstöðvum S.Þ. í kjölfar sa.mþykktar
allsherjarþingsins.
FV 8 1975
29