Frjáls verslun - 01.04.1977, Síða 67
upp. Við ætlum að bjóða upp á
ihestaferðir héðan og hefur
ferðask.rifstofum litist vel á
iþær. Svo er ætlunin að staekka
húsnæðið hérna einhvern tím-
ann í framtíðinni, en aðeins
helmingur hússins er risinn
samkvæmt teikningu. Svo má
geta þess að við höfum aðstöðu
á Iþremur stöðum úti í bæ til að
bjóða 25 manns gistingu.
VERSLUN ARREKSTUR
Mosfell sf. rekur verslun á
Hellu og er þar verslað með
.rafmagns- og útvarpsvörur, skó-
fatnað, leikföng og snyrtivörur.
— Það eru nokkuð drjúg við-
skipti í þessari verslun ef litið
er á upphæðirnar, sagði Einar.
— Hins vegar er þetta allt lág
álagningarvara. Við hefðum
meira upp úr því, að selja
brjóstsykur fyrir sömu upp-
hæðir. Vörurnar höfum við á
sama verði og út úr búð í
Reykjavík og stærri vörurkeyr-
um við heim, viðskiptavininum
að kostnaðarlausu. Flutnings-
kostnaðinn tökum við á okkur
til þess að geta boðið upp á
betri þjónustu.
Þá er ótalinn rekstur sauma-
stofu, sem Mosfell stendur að.
Þar eru framleiddir vinnuvett-
lingar og smávegis af vinnu-
sloppum og trésmiðasvuntum.
— Uppistaðan í framleiðslunni
eru þessir sígildu gulu vinnu-
vettlingar, sagði Einar. Það
voru framleidd um 80 þúsund
pör af þeirn hjá okkur á síðasta
ári, en 5 starfsmenn vinna við
þessa framleiðslu. Við höfum
það þannig með allar fram-
leiðsluvörur beggja fyrirtækj-
anna, að við fáum aðila í
Reykjavík til að sjá um dreif-
ingu. Mér finnst framleiðsla og
sölumennska ekki fara vel sam-
an, það er betra að geta snúið
sér óskiptur að öðru hvoru.
Að sögn Einars er Hella
þægilegur staður fyrir smærri
iðnað. — Við erum mátulega
langt frá Reykjavík, sagði
hann, — til að þægilegt sé að
flytja vörur til og frá. Hins
vegar vantar okkur fjölbreytt-
ari iðnað hingað, bæði til að
nýta það vinnuafl sem til er á
staðnum og til að laða fleira
fólk hingað.
Húsgagnaiðja
Kaupfélags Rangæinga:
Sérhæfir
sig í
sófa-
settum
Einn liður í margslungnum
rekstri Kaupfélags Rangæinga
er starfsemi Húsgagnaiðjunnar.
Því fyrirtæki stjórnar Gunnar
Guðjónsson og hafði Frjáls
verslun tal af honum.
Gunnar Guðjónsson.
— í upphafi var þetta bara
lítið þjónustuverkstæði, sagði
Gunnar, — en 1972 var það
stækkað og farið af stað meö
framleiðslu bólstraðra hús-
gagna. Það voru fengnir sér-
fræðingar frá Noregi til að
koma þessu af stað og komu
þeir okkur í samband við hús-
gagnaverksmiðjuna Ekornes i
Noregi. Þaðan höfum við svo
fengið mjög góða hjálp og fram-
leiðum við svo til eingöngu eft-
ir einkaleyfum frá þeim. Þetta
er mest verksmiðjuvinna, sem
hér fer fram, staðlaðar eining-
ar, sem framleiddar eru í vél-
um, en 16 rnanns vinna hér
núna.
SEX GERÐIR AF SÓFA-
SETTUM
Fyrst í stað framleiddi Hús-
gagnaiðjan aðeins eina gerð af
sófasettum, en nú er talsvert
meiri breidd í framleiðslunni.
— Við erum núna með 6 gerð-
ir af settum, sagði Gunnar, —
og erum að bæta við okkur
fleiri gerðum. Það má segja að
framleiðslan sé svo til eingöngu
sófasett, en þó er alltaf svo-
lítið gert af svefnsófum og stök
um stólum. Við framleiðum
þetta 450-500 sófasett á ári,
enda mun Húsgagnaiðjan vera
einn stærsti framleiðandinn á
þessu sviði hér á landi. Mesti
hlutinn af sófasettunum fer á
markað í Reykjavík, en 16 sölu-
aðilar úti um land eru með vör-
ur frá okkur. Hvað verð snert-
ir þá stöndum við vel að vígi
gagnvart innflutningi og við
reynum alltaf að halda verðinu
niðri. Þegar við komum með
fyrstu settin á markað 1972
voru þau talsvert ódýrari en
innflutt vara, svo það mætti
segja mér að við hefðum haft
áhrif til lækkunar á húsgagna-
markaðinum.
HAFA EKKI UNDAN AÐ
FRAMLEIÐA
Að sögn Gunnars er það ekki
nein yfirlýst stefna hjá Hús-
gagnaiðjunni að framleiða bara
sófasett. — Ef við rekumst á
einhverjar góðar innlendar hug-
myndir erum við alveg til í
að reyna eitthvað nýtt, sagði
Gunnar. — Hins vegar höfum
við ekki undan að framleiða
sófasettin því að markaðurinn
tekur vel við. En svo erum við
í nokkuð náinni samvinnu við
tvær aðrar húsgagnagerðir, þ. e.
Kaupfélags Árnesinga og Kaup-
félags Skaftfellinga. Þessar
húsgagnagerðir eru þekktar
undir nafninu 3K. Samstarfið
felst m. a. í því að framleiða
ekki sömu hlutina, svo ekki
verði um innbyrðis samkeppni
að ræða. Við saumum svo
áklæði fyrir KS og á Selfossi
eru framleiddir svefnsófar, sem
við fengum þá til að taka fyr-
ir okkur. Þá erum við með sölu-
samstarf og rekum sameigin-
lega húsgagnaverslunina 3K í
Reykjavík.
FV 4 1977
67