Frjáls verslun - 01.04.1977, Blaðsíða 73
Fyrirtaeki, Iramleiðsla
Sundaborg:
i nábýlinu bera menn saman
bækur sínar og leita
ráða hvor bjá öðrum
— Höfuðmarkmið akkar er að ná hagkvæmni stórrekstursins
inn í smáreksturinn og það er að’ takast hér í Sundaborg.
Þetta sagði Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri í Frum h.f.
og Heild h.f., sem eru til húsa í Sundaborg í Reykjavík, þegar
Frjáls verslun leit þar inn fyrir skömmu.
Tildrögin að því að þessi tvö
hlutafélög voru stofnuð eru
þau að árið 1971 stofnuðu 20
félagsmenn í Félagi íslenskra
stórkaupmanna með sér hluta-
félagið Heild um byggingu
rekstrarhúsnæðis. Reisti félag-
ið 40.000 rúmmetra húsnæði
við Sundahöfn og er það notað
undir skrifstofur og vöru-
geymslur.
Jafnframt var hugmyndin sú
að þeir aðilar, sem ættu hlut-
deild i Sundaborg, kæmu upp
samstarfi sín á milli í sem
flestum atriðum, svo sem sam-
eiginlegri útkeyrslu á vörum,
sorphreinsun, póstafgreiðslu og
fleira. Fljótlega kom þó í ljós
að hluthafarnir höfðu ólika
skoðun á þessari sameiginlegu
þjónustu og leiddi það til þess
áð árið 1976 var stofnað nýtt
hlutafélag, það var Frum h.f.,
sem annast skyldi ýmis konar
þjónustustarfsemi. Eru hluthaf-
ar í Frum 10, en hluthafar í
Heild eru aftur á móti 20 tals-
ins, en það hlutafélag er nú
nánast nokkurs konar húsfélag
og starfssvið þess er rekstur
hússins Sundaborgar, gæsla
þess og umsjón allra fram-
kvæmda við húsið.
MENN BERA SAMAN
BÆKUR SÍNAR
Við inntum Árna fyrst eftir
starfseminni í Heild h.f. Hann
sagði að húseign fyrirtækisins
hefði frá upphafi verið hugsuð
sem húsnæði fyrir heildversl-
anir og hentaði því mjög vel
sem slíkt. Húseigninni er skipt
niður í misstórar einingar, sem
er ráðstafað í samræmi við
hlutdeild hvers hluthafa í fyr-
irtækinu. Árni sagði ennfrem-
ur að það hefði komið í ljós
að það hefði augljósa kosti fyr-
ir hina einstöku heildsala að
vera í nábýli eins og í Sunda-
borg. Menn bæru mikið saman
bækur sínar, leituðu ráða og
lærðu af mistökum hvers ann-
ars.
— Margir spáðu þessu sam-
býli stórkaupmannanna illa, en
þær hrakspár hafa alls ekki
Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Hcildar hf. og Frum hf. fyr-
ir framan Sundaborg.
PV 4 1977
73