Frjáls verslun - 01.10.1986, Blaðsíða 17
Heimildir
Víða hefur verið leitað fanga við söfnun upplýsinga á listana yfir 1000 helstu íslensk fyrirtæki. Hér með er öllum þeim, sem aðstoðað hafa við gerð listanna, færðar þakkir fyrir. Án þeirrar aðstoðar væri ekki fært að gera hann svo úr garði, sem raun ber vitni. Upplýsingar eru fengnar frá fyrir- tækjunum sjálfum, bæði í símtölum og með athugunum á ársreikningum þeirra. Þá má nefna upplýsingar frá Tryggingareftirliti ríkisins, Bankaeft- irliti Seðlabanka íslands, Hagstofu ís- lands og launadeild fjármálaráðuneyt- isins. Einnig hafa upplýsingar úr At- vinnuvegaskýrslu Þjóðhagsstofnunar komið að góðum notum.
þróunar verðlags og vaxta á þessum
tveimur árum. Fyrra árið hækkuðu
vextir óverðtryggðra innlána og út-
lána meira en svaraði hækkun verð-
lags og einnig meira en verðbætur
og vextir af verðtryggðum innlánum
og útlánum. Þetta leiddi til þess, að
innlán fluttust í ríkum mæli frá verð-
tryggðum til óverðtryggðra reikn-
inga. Útlán héldust hinsvegar verð-
tryggð í svipuðum mæli og áður, þar
sem um þau gilda að miklu leyti
samningar til langs tíma. Af þessu
leiddi mun meiri aukning vaxta og
verðbóta af innlánum heldur en út-
lánum.
Á árinu 1985 gerðist hið gagn-
stæða. Vextir af óverðtryggðum inn-
lánum og útlánum voru lægri en
svaraði hækkun verðlags og þar með
vaxta og verðbóta af verðtryggðum
innlánum og útlánum. Vaxtamunur
fór því vaxandi og afkoman batn-
andi. Undir lok ársins 1985 hafði
þessi þróun snúist við á ný, og fyrir-
sjáanlegt var, að svo mundi verða í
enn ríkara mæli á árinu 1986.“ Erþá
lokið tilvitnun í ársskýrslu Lands-
banka Islands.
Frelsi í vaxtamálum, sveiflur í
efnahagsmálum og tiltölulega van-
þróaður fjármagns- og peningamark-
aður mun væntanlega enn um sinn
sveifla nálinni á afkomuloftvog ís-
lensks bankakerfis.
Gamlir kunningjar á
loðnubylgjunni og út-
flutningur fersks fi&ks
Að frátöldum bönkum og spari-
sjóðum er venjufremur lítið um til-
færslur á innbyrðis röð fyrirtækja á
listanum um stærstu fyrirtæki árið
1985. Gamlir kunningjar, Síldar-
verksmiðjur ríkisins og hraðfrysti-
hús Eskifjarðar hf., taka á rás upp
listann að þessu sinni. Þar má
merkja meiri loðnuvinnslu en árið
árið.
Einnig eru fyrirtæki, sem lagt hafa
kapp á útflutning ferskra fiskafurða
orðin áberandi á listanum um
stærstu fyrirtæki.
Sérlistar og atvinnu-
vegalistamir veita
nýjar upplýsingar
Við viljum að lokum benda á, að
allir sérlistarnir og atvinnugreina- og
kjördæmalistar, sem nú birtast í
fyrsta skipti gera allar vangaveltur
um hag fyrirtækjanna og afkomu
enn auðveldari og réttari en áður.
Stefnt er að auka enn á upplýsingar
að ári og einnig fjölga þeim fyrir-
tækjum, sem víðtækar upplýsingar
eru veittar um.
17