Frjáls verslun - 01.10.1986, Blaðsíða 18
100 stærstu
Breytingar á listunum
Miklar breytingar hafa
orðið á gerð og uppsetn-
ingu listanna. Er óhætt að
segja að í þeim efnum hafi
orðið algjör bylting.
í fyrsta lagi eru nú gefnar upplýs-
ingar um eittþúsund — 1000 — ís-
lensk fyrirtæki. Til samanburðar má
geta þess, að í fyrra voru gefnar upp-
lýsingar um rúmlega fjögur hundruð
fyrirtæki á listanum um stærstu fyr-
irtæki. Var það þá veruleg fjölgun frá
árinu áður.
Eins og áður eru upplýsingar um
fyrirtækin misjafnlega viðamiklar.
Enn er það svo, að upplýsingar um
starfsmannafjölda, heildarlaun og
meðallaun starfsmanna, eru þær
fregnir, sem við höfum af flestum
fyrirtækjunum. Við vekjum þó sér-
staka athygli á vaxandi fjölda upp-
lýsinga, sem gefnar eru um flest
stærstu fyrirtæki og allmörg önnur.
Fjölgun þeirra sést best á því, að í
fyrra voru dálkar á aðallista tíu tals-
ins. í ár eru þeir hvorki meira né
minna en 23. Má segja að hjá þeim
fyrirtækjum, sem fylla þennan flokk,
sé gefið allþokkalegt yfirlit yfir rekst-
ur þeirra og efnahag.
Á aðallista, þar sem fyrirtækjum
er raðað eftir brúttó veltu þeirra í
krónum talið eru 162 fyrirtæki.
Neðstu fyrirtækin þar eru með 200
milljón króna veltu. Allar þær upp-
lýsingar, sem á annað borð eru birtar
koma fram á aðallistanum.
Oll fyrirtækin og stofnanirnar,
sem fram koma að þessu sinni eru
einnig á sérstökum atvinnugreina-
listum. Þeir hafa einnig verið mjög
endurbættir frá því sem áður var.
Fyrirtæki, sem eru á aðallistanum
yfir stærstu fyrirtæki er að þessu
sinni einnig á atvinnuvegaskránum.
Við þetta fæst mun betra yfirlit yfir
stærstu fyrirtækin í einstökum at-
vinnugreinum en áður.
Þeirri venju er haldið að raða fyrir-
tækjum eftir starfsmannafjölda á at-
vinnuvegalistana. Upplýsingar um
veltu þeirra fyrirtækja, sem hana
hafa gefið upp, koma einnig fram á
listunum og auk þess röð þeirra á
aðallista.
Við þessar endurbætur á listun
fyrirtækja í hinum einstöku atvinnu-
greinum mun gildi þeirra vaxa mikið.
Er það auðsætt strax í byrjun en
gildi þessara lista mun verða enn
meira þegar að fram í sækir.
Samanburður skyldra fyrirtækja er
að mörgu leyti mun áhugaverðari en
Upplýsingar eru gefnar um eitt þús
und fyrirtæki.
óskyldra fyrirtækja innbyrðis. Menn
hafa alltaf tilhneygingu til þess að
bera sig saman við fyrirtæki sem
rekin eru í sömu atvinnugrein og
þeir stunda sjálfir.
Þau stærstu í hverju
kjördæmi
Enn ein nýjungin að þessu sinni
er, að birtir eru listar um stærstu fyr-
irtæki í hverju kjördæmi. Þeim er í
fyrsta lagi raðað eftir veltu fyrirtækj-
anna. Auk þess eru fyrirtæki, sem
eru með fleiri en 40 starfsmenn að
meðaltali í sinni þjónustu í flestum
tilvikum talin með. Stærðarskipting
og fjöldi stærri fyrirtækja í hverju
kjördæmi er athyglisverð lesning, þó
svo fátt komi kunnugum á óvart.
Fjórða tegund lista og ekki sú
ómerkasta er röðun fyrirtækja eftir
ýmsum hlutföllum og upplýsingum
um árangur af rekstri þeirra sem við
höfum kosið að nefna kennitölur. Er
hér upplýst um:
Mestu hlutfallslega aukningu frá
fyrra ári.
Mesta hagnað í krónum talið.
Mesta hagnað sem (%) hlutfall af
veltu.
Mesta hagnað sem (%) hlutfall af eig-
infé.
Mesta eigið fé í krónum talið.
Besta eiginfjárhlutfallið.
Besta veltufjárhlutfallið.
Stærstu vinnuveitendur.
Hæstu launagreiðendur.
Stærstu útflytjendur.
Af samanburði þessara talna úr
rekstri fyrirtækjanna fást margar og
merkilegar upplýsingar. Auðvitað
ber að taka þeim með nokkurri var-
úð. Sambærileiki talna liggur ekki
alltaf í augum uppi en þó er hægt að
fullyrða að mikið gagn er af þessum
upplýsingum. Það gagn á eftir að
aukast við vaxandi fjölda þeirra fyr-
irtækja, sem upplýsa munu um
rekstur sinn.
Sá galli, sem hér var nefndur um
að upplýsingar séu ekki sambærileg-
ar hjá óskyldum fyrirtækjum er ekki
fyrir hendi á þeim listum, sem við
bendum á að síðustu.
Fimm af atvinnugreinalistunum
eru fullkomnari en aðrir. Þeir ná yfir
opnu í blaðinu og á þeim koma fram
allar þær upplýsingar, sem birtar eru
á aðallista. Þetta eru listarnir yfir
banka og aðrar peningastofnanir,
olíufélögin, orkuveiturnar, trygging-
arfélögin og kaupfélögin.
Á þessum listum er um mun sam-
bærilegri rekstur að ræða en á
öðrum listum. Þess vegna hlýtur
samanburður á hlutföllum og öðrum
rekstrarupplýsingum að vera mark-
tækari á þessum listum en öðrum.
Að lokum er rétt að nota tækifær-
ið og þakka þær góðu viðtökur, sem
oftast fást þegar leitað er eftir upp-
lýsingum vegna listans um stærstu
fyrirtæki í FRJÁLSA VERSLUN.
Þeir sem að þessum lista standa gera
sér manna best ljóst, að hann má
endurbæta enn meir en þegar hefur
verið gert. Því starfi verður haldið
áfram með góðri aðstoð forráða-
manna fyrirtækjanna.
18