Frjáls verslun - 01.02.1987, Page 5
Gunnar H. Hansson.
Atvinnuhúsnæöi.
Blómakaup.
Stofnfundur Útflutningsráðs FÍS.
RITSTJÓRNARGREIN 7
FRÉTTIR 9
IBM Á ÍSLANDI 14
hefur verið áberandi í íslensku þjóðlífi að undanförnu og nægir þar
að nefna skákmótið, sem fyrirtækið gekkst nýlega fyrir, myndlist-
arsýningu á verkum ungra myndlistarmanna og hugbúnaðarsam-
keppni. Gunnar M. Hansson er forstjóri IBM á Islandi. Hann tók
ungur við forstjórastarfi og hefur getið sér gott orð sem framsæk-
inn stjórnandi enda hefur vöxtur IBM á íslandi verið ör þrátt fyrir
vaxandi og harðnandi samkeppni. Gunnar er samtíðarmaður
Frjálsrar verslunar að þessu sinni.
í NÝJUM STÖRFUM 27
Vilhjálmur Guðmundsson tók nýlega við starfi framkvæmdastjóra
Vogalax, hafbeitarstöðinn á Vatnsleysuströnd. Veruleg stækkun er
fyrirhuguð á stöðinni.
MIKIL GRÓSKA 30
er í byggingu atvinnuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu. Frjáls
verslun fór á stúfuna og kannaði kostnað við byggingu pr. fer-
metra. Jafnframt var leiguverð á atvinnuhúsnæði kannað.
MIKLAR VONIR 34
hafa verið bundnar við töluvæðinguna og víst hefur hún skilað
árangri á mörgum sviðum. Á hinn bóginn hefur mjög misjafnlega
verið staðið að tölvuvæðingu í fyrirtækjum og hún hefur ekki alls
staðar skilað þeirri framleiðniaukningu sem vænst var.
EIMSKIP í HAMBORG 37
Rætt við Svein Pétursson forstöðumann Eimskip í Hamborg.
ÍSLENSKIBLÓMAMARKAÐURINN 39
veltir um 450 milljónum og Islendingar skipa sér í 4.-6. sæti yfir
mestu blómakaupendur í heiminum.
ÚTFLYTJENDUR 46
utan sölusamtaka hafa stofnað með sér samtök, Útflutningsráð
FIS sem vinnur að því að fá útflutning gefinn frjálsan.
SKYNDIBITASTÖÐUM
hefur fjölgað á höfuðborgarsvæðinu og samkeppnin hefur harðnað
milli þeirra. Margir búast við uppstokkun á markaðnum.
ERLENT 58
BRÉF FRÁ ÚTGEFANDA 60