Frjáls verslun - 01.09.1988, Page 137
BRÉF FRÁ ÚTGEFANDA
EFNAHAGS-
VANDINN
ER HEIMA-
TILBUINN
í sunnudagsblaði Morgunblaðsins 20. nóvember sl. var
fréttaskýringaþáttur er bar heitið KREPPA? Þar var leitað
álits og skýringa nokkurra sérfræðinga á ástandi því sem nú
ríkir í efnahagsmálum fslendinga og um horfur á næstunni.
Ætla má að ástandið sé nú hið alvarlegasta a.m.k. ef vitnað
er til orða forsætisráðherra sem oftar en einu sinni hefur
talað opinberlega um þjóðargjaldþrot og líkt afleiðingum
fjárfestinga í landinu við brunarústir Evrópu eftir seinni
heimsstyrjöldina. Til þess að slík samlíking eigi við þarf
ástandið að vera mjög alvarlegt því eins og allir sem komnir
eru til vits og ára vita þá leiddi seinni heimsstyrjöldin til
meiri hörmunga í Evrópu en dæmi eru um í mannkynssög-
unni.
En hversu mikil er efnahagskreppan sem íslendingar eru
nú að ganga í gegnum? Er hún eins skelfileg og stjórnmála-
leiðtogarnir vilja vera Iáta? Við því fást svör í umræddri
fréttaskýringagrein Morgunblaðsins. Þar er bent á að þótt
árið 1988 verði ekki eins hagstætt íslendingum og árið 1987
þá sé það samt betra en árið 1986 og þó að spáð sé versnandi
afkomu þjóðarbúsins á næsta ári verði það ár samt ekki
verra en 1986. „Ytri skilyrði hafa aðeins slaknað á síðustu
misserum eða frá því um þetta leyti á síðasta ári, en það er
langt frá því að ytri kjör séu slæm. Þvert á móti eru þau með
því besta sem við höfum kynnst,“ er haft eftir Sigurði B.
Stefánssyni framkvæmdastjóra en hann er maður sem um
árabil hefur fylgst náið með efnahagsþróuninni og hefur þar
glögga yfirsýn. Blaðið hefur einnig eftir Þorvaldi Gylfasyni
prófessor að uppgangurinn í efnahagslífi íslendinga á und-
anförnum árum hafi verið svo mikill að það væri með hrein-
um ólíkindum ef kreppa skylli á nú.
Þeir sem Iáta álit sitt í ljósi í nefndri fréttaskýringagrein
eru sammála um að efnahagsvandi íslendinga nú sé heima-
tilbúinn - afleiðing mikillar verðbólgu og þenslustefnu sem
ráðið hefur ríkjum undanfarin ár. Fram kemur hjá þeim að
miklu mun ráða hver framvindan verður á næstu mánuðum,
t.d. hver verður niðurstaða kjarasamninga þegar þeir koma
næst til. „Undanlátssemi rfkisvaldsins bæði við fyrirtæki og
við launþegahreyfinguna í gegnum tíðina hefur alltaf verið
það mikil að líkur eru fyrir því að gengið verði fellt og verð-
bólgan sett af stað, þegar í harðbakkann slær,“ er haft eftir
Þorvaldi Gylfasyni.
Undanfarið hefur ríkt stöðugleiki og verðbólgan hefur
minnkað mjög mikið. Það eru fyrstu raunverulegu merki um
vilja til þess að taka á vandanum og gera sér grein fyrir því
hverjar rætur hans eru. Þær aðgerðir sem gripið var til voru
óneitanlega bráðabirgðaaðgerðir og því spurning hvaða
kjark stjórnvöld hafa þegar að alvörunni kemur. - Spurning
um það hvort reynt verði af festu að kveða niður verðbólgu-
drauginn eða hvort honum verði gefinn laus taumur að nýju.
Það er ómótmælanleg staðreynd að útflutningsatvinnu-
vegir okkar eiga í miklum erfiðleikum um þessar mundir -
þær atvinnugreinar þar sem óhugsandi hefur verið að velta
kostnaðinum út í verðlagið. Það þarf vitanlega að grípa til
aðgerða til þess að skapa þeim eðlilegan rekstrargrundvöll.
Það á að vera hægt að gera án þess að áhrifin verði svo
sársaukafull að þau leiði til almennrar kreppu í efnahagslíf-
inu. Á árunum 1967-1969 var um raunverulega kreppu hér-
lendis að ræða en okkur tókst þá að vinna okkur út úr henni á
ótrúlega skömmum tíma, mest fyrir ákveðni og röggsemi
stjórnvalda.
Af umræddri grein í Morgunblaðinu er augljóslega hægt að
ráða að orðið KREPPA á alls ekki við um þessar mundir.
Samdráttur er réttara orð og það er ekkert sem réttlætir tal
um þjóðargjaldþrot og brunarústir. Vert er að taka undir þau
orð sem höfð eru eftir Birni Björnssyni bankastjóra Alþýðu-
bankans í blaðinu en hann varar þar við krepputali og bendir
á að það eitt út af fyrir sig geti orðið til þess að auka á
fyrirsjáanlegan samdrátt.
Með þessu blaði verða ritstjóraskipti á Frjálsri verslun.
Kjartan Stefánsson sem verið hefur ritstjóri blaðsins undan-
farin þrjú ár lætur af því starfi og tekur við ritstjórn Sjón-
varpsvísis Stöðvar 2 sem Frjálst framtak gefur einnig út og
er nú útbreiddasta tímarit landsins. Frjálst framtak þakkar
Kjartani farsæl störf sem ritstjóri Frjálsrar verslunar. Jafn-
framt er Helgi Magnússon boðinn velkominn til starfa. Mik-
ils er vænst af störfum hans.
137