Frjáls verslun - 01.08.1990, Page 15
FRETTIR
RAFEINDA-
STÝRÐUR
HALLAMÆLIR
Nýr, stafrænn halla-
mælir, sem nýtir tölvu-
búnað til fjarlægðar- og
hæðarmælinga, hefur
vakið gífurlega athygli
þeirra, sem fást við land-
mælingar jafnt og mæl-
ingar á byggingarsvæð-
um.
Hér er um að ræða
WILD NA2000 mælinn
sem er hannaður af sér-
fræðingum svissneska
fyrirtækisins WILD
LEITZ Ltd. í Heerbrugg. í
staðinn fyrir hefðbundna
mælistöng kemur strika-
merkt stöng. Með atbeina
rafeindaspeglunar skynj-
ar tækið þá hæðar- og
fjarlægðarpunkta, sem
mælingin beinist að, með
mjög mikilli nákvæmni.
Upplýsingar þessar
breytast síðan sjálfkrafa í
tölur sem lesa má af skjá
tækisins.
Framleiðandinn telur
að tímasparnaður með
þessari nýju mælingar-
tækni geti numið allt að
50% miðað við hefð-
bundnar aðferðir.
FRÓÐIHF.:
NÝR
MARKAÐS-
STJÓRI
Nýlega tók Björn Jóns-
son við starfi markaðs-
stjóra hjá útgáfufyrirtæk-
inu Fróða hf. Björn er 29
ára að aldri. Hann út-
skrifaðist sem viðskipta-
fræðingur frá Háskóla ís-
lands árið 1986 og stund-
aði síðan nám í þýsku og
viðskiptafræði í Universi-
tat in Bremen í Vestur-
Þýskalandi.
Björn Jónsson starfaði
hjá Pósti og síma og vann
m.a. við að stofnsetja
markaðsdeild stofnunar-
innar og skipuleggja starf
hennar. Þá starfaði hann
einnig um skeið hjá Basel
Björn Jónsson.
Kantonalbank í Basel í
Sviss.
Björn er kunnur
íþróttamaður. Hann hef-
ur verið fyrirliði hand-
knattleiksliðs Breiða-
bliks og leikið nokkra
landsleiki í handknatt-
leik, auk þess að hafa
leikið handknattleik
bæði í Vestur-Þýskalandi
og í Sviss.
Björn er kvæntur
Helgu Sigurðardóttur og
eiga þau eitt barn.
Bátsf’riUr í Viðey:
KC. 18.00
Ki 19.00
KL 19.90
VIÐEYIAESTOFA'
Bátsferðir í larut
KL 22.00
KL 23.00
KL 23.30
KL 20.00 Borðpantanir og upplýsingar í síma 681045 og 28470. Opið 1. júní - 30. septemBer.