Frjáls verslun - 01.08.1990, Síða 57
SAMSPIL ÓLÍKRA PÁTTA
„Sannleikurinn er sá að of lítið er
vitað um tíðni atvinnusjúkdóma hér á
landi því tilkynningum er mjög ábóta-
vant auk þess sem oft er látið hjá líða
að skrá upptök einhverra kvilla sem
upp koma. Getum má hins vegar leiða
að því að ný tilfelli atvinnusjúkdóma
eða atvinnutengdra sjúkdóma skipti
hundruðum á hveiju ári hér á landi.
Heymarskaði af völdum hávaða er
mjög algengur atvinnusjúkdómur og
geysimörg tilfelli af húðsjúkdómum
og stoðkerfiskvillum koma upp ár-
lega.
Þegar litið er á þá sjúkdóma sem
við greindum á tímabilinu 1985-89
kemur í ljós að ýmiss konar húðsjúk-
dómar eru langalgengastir og senni-
lega kemur sú niðurstaða ýmsum á
óvart. Það skal strax tekið fram að
hér er ekki um alhliða úttekt að ræða
heldur eru þetta niðurstöður úr at-
hugunum sem við höfum gert á ýms-
um starfshópum og vinnustöðum.
Hins vegar tel ég margt benda til að
húðsjúkdómar séu býsna algengir og
það stafar m.a. af óvarlegri notkun
kemískra efna, t.d. þvottaefna og
sótthreinsiefna og aukinni notkun
gúmmíhanska. A fyrrgreindu tímabili
reyndust 22% greindra sjúklinga hjá
okkur hafa ofnæmisexem, 19% ert-
ingarexem og 5% voru með aðra húð-
sjúkdóma.
Kemísku efnin valda fleiri sjúkdóm-
um, t.d. í lungum, en því miður er
víða pottur brotinn varðandi loftræst-
ingu í vinnurými þar sem slík efni eru
meðhöndluð. í þessu sambandi er
vert að benda á að hér á landi eru
menn skammt á veg komnir með að
þróa upp vamir gegn fóstursköðum af
völdum kemískra efna. Slíkar hættur
eru vissulega ekki á hverju strái en þó
er aldrei of varlega farið. Almennt séð
verður fólk að hafa í huga að kemísk
efni eiga tiltölulega greiða leið inn í
blóðrás manna nema sérstakar vamir
séu hafðar uppi en merkjanleg áhrif á
líkamann eru mjög mismunandi eftir
einstaklingum.“
Helgi Guðbergsson nefndi fleiri al-
genga sjúkdóma. Til dæmis em
lungnasjúkdómar nokkuð algengir hjá
bökurum og hárgreiðslufólki og skrif-
stofufólk þjáist mjög oft af stoðkerfis-
Góð aðstaða á vinnustað gerir starfsmenn ánægða og laðar að viðskiptavini.
Þessi mynd er tekin á díeselvélaverkstæði H.P. Hermanns í Reykjavík.
sjúkdómum, m.a. vegna rangra
vinnustellinga.
Sjúkdómar eins og vöðvagigt eða
vöðvabólga eru tíðir hér á landi og
valda gífurlegum skaða og skerðingu
á starfsorku fólks. En hvað geta
menn helst gert til vamar slíkum
kvillum?
„Fyrst og fremst þarf fólk að vera
vel meðvitað um heilsu sína og gæta
þess að nota vinnustellingar sem
hæfa eigin skrokki. Mér finnst alltof
mikið bera á oftrú manna á tæknilega
„SJÚKDÓMAR EINSOG
VÖÐVAGIGT EÐA VÖÐVABÓLGA
ERU TÍÐIR HÉRÁLANDIOG
VALDA GÍFURLEGUM SKAÐAOG
SKERÐINGU Á STARFSORKU
FÓLKS. ENHVAÐGETAMENN
HELST GERT TIL AÐ VARAST
SLÍKUM KVILLUM?"
útbúna stóla eða önnur háþróuð hjálp-
artæki. Miklu mikilvægara er að
menn hafi í huga að stóllinn sem þeir
sitja á, lienti þeirra líkamsbyggingu
og þá skiptir ekki öllu máli hvort hann
er einfaldur eða flókinn, dýr eða ódýr.
Hann þarf einnig að henta við þá vinnu
sem unnin er hverju sinni.
Hinu má svo auðvitað ekki gleyma
að flestir atvinnusjúkdómar koma upp
vegna samspils ólíkra þátta. Þar
skiptir gerð einstaklingsins miklu
máli, hegðun hans í vinnunni og loks
þær aðstæður sem honum em bún-
ar“, sagði Helgi ennfremur.
MARGVÍSLEG STARFSEMI
Starfsemi atvinnusjúkdómadeildar
er margvísleg enda þótt starfsmenn
séu ekki nema þrír í hlutastarfi. Hún
annast hóprannsóknir, svo sem leit
að atvinnusjúkdómum eða magni
hættulegra efna í líkama manna. Ein-
staklingar sem leita til deildarinnar
eru rannsakaðir ef grunur leikur á um
atvinnusjúkdóm af einhverju tagi.
Ýmiss konar ráðgjöf er veitt, t.d.
varðandi meðferð efna, vamir gegn
57