Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1990, Síða 37

Frjáls verslun - 01.08.1990, Síða 37
AUGLYSINGAR FYRIR UTAN MÖRK VELSÆMIS? Það er ekki oft sem auglýsing- ar á íslandi valda slíkum deilum að til kasta Siðanefndar SIA eða Verðlagsstofnunar komi. Slík mál eru oftast leyst bak við tjöldin og snerta sjaldnast al- menning. Þó kemur það ein- staka sinnum fyrir að auglýs- ingastofur og fyrirtæki fá á sig kæru vegna auglýsingaherferð- ar. Eitt þekktasta dæmið um þetta átti sér stað í fyrra, þegar Visa ísland kærði Auglýsingaþjónustu GBB (nú Hvíta húsið) og Eurocard á íslandi fyrir meint brot á lögum um órétt- mæta viðskiptahætti. Deiluefnið var auglýsingaherferð, sem GBB hannaði fyrir dagblöð, sjónvarp og útvarp. Slagorð herferðarinnar var: „Láttu ekki vísa þér á brott.“ Þetta slagorð, ásamt fleiri atriðum í herferðinni fóru svo fyrir brjóstið á samkeppnisaðilan- um að hann kærði hana til Siðanefndar SÍA og til Verðlagsstofnunar. Úrskurður SÍA var sá að aðstand- endur herferðarinnar hefðu gengið fram á ystu brún velsæmis, en þó ekki steypt sér fram af henni. Verð- lagsstofnun brást ívið harðar við, en málinu var lokið með sátt áður en til frekari deilna kom. Engin sekt var greidd en Eurocard lét hinsvegar stöðva herferðina. Þetta mál vakti ómælda athygli fjölmiðla á sínum tíma og vilja sumir meina að það hafi verið hin besta auglýsing fyrir Eurocard. Þess má svo geta að á árlegri auglýs- ingahátíð sinni veitti íslenski mark- aðsklúbburinn eða ÍMARK, Auglýs- ingaþjónustu GBB verðlaun fyrir um- deilda herferð sína. Það er hinsvegar mun algengara að deilur komi upp milli auglýsenda og birtingaraðila um siðsemi þeirra aug- lýsinga, sem ætlunin er að birta, held- ur en að kærumál gangi á víxl til Siða- nefndar SÍA og Verðlagsstofnunar. Slíkar deilur varða oftast túlkun manna á því hvað sé innan velsæmis- eða siðferðislegra marka. Gott dæmi um hið fyrmefnda er auglýsing sem Auglýsingastofan Svona gemm við framleiddi fyrir Landlæknisembætt- ið. Tilgangur auglýsingarinnar var að benda almenningi á alnæmishættuna sem stafar af óábyrgu kynlffi. í þeim tilgangi innihélt auglýsingin mynd af nöktu pari sem var í kynlífsstelling- um. DV birti auglýsinguna án athuga- semda en Morgunblaðið neitaði að birta hana á þeim forsendum að hún væri fyrir utan mörk almenns vel- sæmis. Auglýsingunni var breytt þannig að parið var tekið út og auður blettur skilinn eftir. Þannig birtist hún í mest lesna blaði okkar landsmanna. Þetta mál vakti einnig mikla athygli, bæði innanlands og utan, en á alþjóð- 37
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.