Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1990, Qupperneq 51

Frjáls verslun - 01.08.1990, Qupperneq 51
í kring, stóð jukust eignir Lincoln út tæpum fjórum milljörðum í fimm og hálfan. Gjaldþrot sjóðsins kostar skattgreiðendur 2.5 milljarða og þar af má rekja 1.5 milljarða til þessara tuttugu mánaða. Keating, eigandi sjóðsins, hefur verið ákærður fyrir íjársvik og blekkingar í sölu verð- bréfa. Siðanefnd öndungadeildarinnar er nú að rannsaka hvort aðgerðir fimmmenninganna hafi stangast á við lög og reglur. En það er meira óhreint mjöl í pok- anum hjá demókrötum. Langflestir þingmenn hafa þegið íjárframlög frá sparisjóðum á undanfömum árum og það varð einum leiðtoga demókrata, Tony Coelho, að falli nýlega að hon- um láðist að gefa upp fimmtíu þúsund dala lán ffá sparisjóði í heimafylki sínu, Kaliformu. Segja má að fyrrum formaður bankanefndar fulltrúadeild- arinnar, demókratinn Fernard St. Germain, hafí beinlínis verið í vasan- um á sparisjóðnum; hann þáði af þeim ferðalög og ýmiss konar risnu og hafði forgöngu um að tryggingarhámark á innistæðum var hækkað úr fjörutíu þúsund dölum í hundrað þúsund, nán- ast í skjóli nætur, enda fóru engar umræður fram í nefnd hans um þessa ákvörðun áður en hún var tekin. Svona mætti lengi telja, en þingmenn keppast nú við að skila fjárframlögum frá sparisjóðum og bönkum áður en lagt er í kosningabaráttu haustsins. Þannig ætlar áðumefndur Donald Riegle að skila 120 þúsund dölum til ríkisins, en líklega er það heldur seint í rassinn gripið. STÆRSTA KOSNINGAMÁLIÐ Ef að líkum lætur verða það repúblikanar en ekki demókratar sem fá mesta skellinn hjá kjósendum vegna sparisjóðamálsins. Einstakir þingmenn demókrata verða hugsan- lega fyrir skakkaföllum vegna upp- ljóstrana á borð við þær sem hér voru raktar. Þó er slíkt ótrúlega fljótt að gleymast í fárviðri nýrra kostnaðar- talna og spillingarmála. Þeir em þann- ig fáir sem muna lengur hverjir Keat- ing-fimmmenningarnir eru. Demó- krötum hefur tekist að ná undirtökunum með störfum sínum í þinginu og tekist að koma Bush- stjóminni í vöm í óverjandi máli. í flokki repúblikana hafa ekki marg- ir einstakir þingmenn verið bendlaðir beint við spillingu en málið hefur þó fest við flokkinn sem heild. Þar flétt- ast nokkrir þættir saman; hrakfalla- saga Neil Bush, ítrekaðar tilraunir Bush-stjómarinnar til að gera minna úr vandanum en efni standa til og ný- leg sinnaskipti forsetans gagnvart skattahækkunum. Kjósendur hafa nú fengið á tilfinninguna að þeir hafi verið plataðir, að nú sé komið að því að greiða reikninginn frá stjómarárum Reagans og Bush, sem einkenndust m.a. af fjárlagahalla og geysilegri skuldasöfnun. Það er þetta sem mun koma repúblikönum í koll, þótt einstakir þingmenn beri e.t.v. litla eða enga ábyrgð á því hvernig komið er. Það mun koma í ljós í þingkosningunum í nóvember og demókratar eru þegar farnir að leggja línumar fyrir forseta- kosningar 1992. Þeir em í betri stöðu pólitískt séð og vantar nú ekkert nema frambærilegan frambjóðanda. MEÐ NYJA UNDRATÆKINU FRA bfOther - ERU ALLAR MERKINGAR LEIKUR EINN! Þetta tæki er kærkomið þeim, sem hafa snyrti- legar og góðar merkingar á öllu, sem þeir vinna með. Á nýja tækinu getur þú valið um: fimm leturgerðir fimm leturstærðir prentun lárétt og lóðrétt síðustu prentun aftur einfalda leiðréttingu liti á prentborðum Láttu ekki W v * W merkingar s! valda þér Wsjm HH vandræðum. Wr c__________■ Kynntu þér kosti Brother undratækisins. Merkilegt tæki! NÝBÝLAVEGI 28, 200 KÓPAVOGUR. S. 44443 & 44666. FAX 44102.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.