Frjáls verslun - 01.08.1990, Side 70
ERTÖLVAN
HÆTTULEG?
AF ÍTARLEGUM RANNSÓKNUM MÁ RÁÐA AÐ EKKERT BENDITIL AÐ
ÚTGEISLUN FRÁ TÖLVUSKJÁM ÞURFIAÐ VALDA VARANLEGUM SKAÐA. EN
AUGUN ÞREYTAST FYRR EN ELLA OG OF LANGAR SETUR VIÐ TÖLVU LEIÐA AF
SÉR ÝMSA KVILLA
Vísindamenn hafa um langt
árabil rannsakað áhrif frá tölvu-
skermum á mannslíkamann þar
sem hætta var talin á að útgeisl-
un gæti valdið skaða, m.a. á
fóstri vanfærra kvenna eða á
augum manna. Niðurstöður
þessara rannsókna benda ekki
til að um slík áhrif geti verið að
ræða og þess vegna hefur ekki
verið talið nauðsynlegt að verja
starfsfólk fyrir geislun. I þessu
sambandi er rétt að minna á um-
ræðuna þegar síminn kom til
sögu. Margir voru þess fullvissir
að hann væri hinn mesti skað-
valdur og þegar bifreiðar urðu
almannaeign, höfðu virtir vís-
indamenn áhyggjur af því að 15-
20 km hraði gæti valdið ómældu
tjóni á líkamanum!
Hvað tölvurnar áhrærir hefur það
eitt komið í ljós að kringum þær er að
finna segulsvið, rétt eins og umhverf-
is öll rafmagnstæki. Það er hægt að
draga úr þessum áhrifum með því að
jarðtengja lyklaborð tölvunnar og
með því að jarðtengja skjásíu hennar.
Fátt bendir hins vegar til að þessi
geislun hafi áhrif á h'ðan fólks. Einnig
hafa menn óttast áhrif skjávinnu á
TEXTI: VALÞÓR HLÖÐVERSSON.
húðina, en ekkert bendir til að sú til-
gáta eigi við rök að styðjast.
Og er þá einhver ástæða til að
gjalda varhug við mikilli vinnu fyrir
ffaman tölvuskjái? Jú, álag á sjónina
er mikið við skjávinnu. Hins vegar er
ekki alltaf við sjálfan skjáinn að sakast
því þættir eins og rangar vinnustell-
ingar, slæm lýsing, mikið vinnuálag
og vöðvaspenna, geta haft þau áhrif
að augun verða fyrir óþægindum.
HOLLRÁÐ UM TÖLVUR
Með örri tækniþróun hefur á
skömmum tíma tekist að sníða van-
kantana af tölvunum, þ.e. að því er
varðar álag á líkama þeirra sem við
þær starfa. Hins vegar er full ástæða
til að benda fólki á nokkur atriði sem
vert er að hafa í huga þegar tölvan,
sem vinnutæki, er metin.
• Mjög æskilegt er talið að skjár
og lyklaborð séu aðskilin, svo
hægt sé að stilla þau hvort um
sig. Skjánum þarf að vera hægt
að snúa og færa frá augum
starfsmanns eins og þurfa þykir.
• Hæð lyklaborðsins ætti ekki að
vera nema 2 cm frá borðplötu,
mælt við aðra lyklaröð. Halli
þess skal vera um 5 gráður.
• Borðrými þarf að vera nægilegt
miðað við þau verkefni sem unn-
in eru. Nægt rými þarf að vera
fyrir fætur undir borðinu.
• Flestir tölvuskjáir eru dökkir og
nauðsynlegt að dempa lýsingu
til að auðveldara sé að lesa af
honum. Reiknað er með að yfir
500 lúx þurfi við venjulega skrif-
stofuvinnu en 300-500 lúx við
tölvuvinnu. Jafnframt þarf bein
lýsing á handrit og lyklaborð að
vera næg.
• Besta staðsetning tölvuskjás er
þannig að dagsbirtan komi frá
hlið en ekki framan eða aftan frá.
Gæta verður þess að ljósgjafi
speglist ekki í tölvuskjánum.
• Starfsmaður við tölvuskjá þarf
að hafa næði við vinnu sína.
Æskilegt er að hávaði umhverfis
hann fari ekki upp fyrir 55 dB.
Hávaða frá tölvuprentara ber að
dempa með öllum tiltækum ráð-
um.
• Tölvari verður að gæta þess að
taka stutt vinnuhlé með reglu-
legu millibili. í samningum skjá-
vinnufólks í prentiðnaði eru
ákvæði um 10 mínútna hvfld á
hverri klukkustund.
70