Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1990, Side 56

Frjáls verslun - 01.08.1990, Side 56
VINNUSTAÐURINN ATVINNUSIÚKDÓMAR Á ÍSLANDI: HUNDRUÐ TILFELLA ARLEGA STÓRAUKA ÞARF EFTIRLIT MEÐ ÁHÆTTUHÓPUM Á VINNUMARKAÐITIL AÐ DRAGA ÚR TJÓNIAF VÖLDUM ATVINNUSJÚKDÓMA, SEGIR HELGI GUÐBERGSSON YFIRLÆKNIR ATVINNUSJÚKDÓMADEILDAR HEILSUVERNDARSTÖÐVARINNAR í REYKJAVÍK. Helgi Guðbergsson yfirlæknir atvinnusjúkdómadeildar Heilsuverndar- stöðvarinnar í Reykjavík: Aðstæður á vinnustað hafa mikil áhrif á tíðni atvinnusjúkdóma. Á síðustu árum hefur athygli manna í síauknum mæli beinst að því umhverfi sem við lifum og störfum í stóran hluta ævinnar, þ.e. vinnustaðnum. Við verjum býsna drjúgum hluta æviskeiðs- ins utan heimilis, gjarnan við erfiðar aðstæður og það setur mark á heilsuna, hvort sem um er að ræða skrifstofustörf eða þau sem unnin eru við erfið lík- amleg skilyrði. Innan heilbrigð- isgeirans hafa þróast sérsvið þar sem fengist er við iðjufræði- leg efni, menn sækja æ meira í margs konar þjálfun til að hamla gegn líkamlegri hrörnun og öll umræða um áhrif vinnuum- hverfis á heilsuna eykst ár frá ári. Þessi aukni gaumur sem við gefum vinnustaðnum hefur leitt til þess meðal annars að stjómendur fyrir- tækja og aðrir starfsmenn gera sér æ betur grein fyrir því að víða er pottur brotinn. Hönnun vinnustaða er oft ábótavant, lýsing er handahófskennd, loftræsting óvirk, mengun of mikil, húsgögn ekki af því tagi sem vera þyrfti og svo mætti lengi telja. Síðast en ekki síst hefur komið í ljós að hug- arfari starfsmanna þarf að breyta og aukinnar fræðslu er þörf hvað varðar vinnustellingar, meðferð hættulegra efna, persónuhlífar, vamir gegn háv- aðamengun o.fl. o.fl. Við snerum okkur til Helga Guð- bergssonar yfirlæknis atvinnusjúk- dómadeildar hjá Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur og hann var fyrst spurð- ur hverjir væru algengustu atvinnu- sjúkdómar um þessar mundir. TEXTI: VALÞÓR HLÖÐVERSSON. MYNDIR: GRÍMUR BJARNASON O.FL. 56

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.