Frjáls verslun - 01.08.1990, Síða 68
VINNUSTAÐURINN
að vera til svara, sé á fundi eða upp-
tekinn. Ahersla er lögð á greiða leið
viðskiptavinanna að starfsmönnum
fyrirtækisins og gildir einu hvar þeir
standa í mannvirðingarstiganum.
Eins og áður sagði gegnir glerið
stóru hlutverki í aðalstöðvum SAS.
Samtals þekur það 37.000 fermetra
eða sem svarar fimm fótboltavöllum!
Með glerinu fást fram þau áhrif að
fyrirtækið sé opið og birtan utan frá
nái inn í sem flestar vistarverur. Með
því er einnig minnt á það rými sem
umlykur þá sem njóta þjónustu flug-
félags: Víðfeðmi og óhefta birtu há-
loftanna.
Það var á starfsfólki SAS að heyra,
að það væri býsna ánægt með aðstöð-
una í Frösundavik - og undrar svo
sem engan. Mikil ásókn er í að fá
vinnu hjá SAS og afar fátítt að fólk
hætti þar störfum. Þetta hefur leitt af
sér betra starfslið með áralanga þjálf-
un og reynslu í að þjóna viðskiptavin-
unum.
í Frösundavik er ekki aðeins lögð
áhersla á gott samband starfsmanna
innbyrðis, heldur hefur arkitektunum
tekist að tengja afar vel saman þessar
risavöxnu byggingar annars vegar og
náttúrulegt umhverfi þeirra hins veg-
ar. Vegna glerveggjanna, sem ein-
kenna byggingamar, er bein sjónlína
við umhverfið oft til staðar og sérstök
áhersla er lögð á þetta atriði úr af-
þreyingarrými bygginganna. Við
enda göngugötunnar er t.d. falleg
tjöm, sem gestir og gangandi geta
virt fyrir sér innandyra ellegar gengið
umhverfis og virt fyrir sér fuglalífið.
TVÖ ÁR í BYGGINGU
Vegna vandaðs undirbúnings (og
væntanlega nægra fjárráða SAS) tók
sjálf bygging aðalstöðvanna í Frös-
undavik tiltölulega skamman tíma.
Það var sumarið 1984 sem efnt var til
alþjóðlegrar samkeppni um bygging-
una, en í henni tóku þátt um 150
manns. Stjóm SAS ákvað að ráða 8
arkitektastofur til að spreyta sig á
nánari útfærslu og að því loknu voru
Norðmaðurinn Niels Torp og 70
starfsmenn hans, ráðnir til verksins.
Fyrsta skóflustungan var svo tekin
í lok nóvember árið 1985. Nákvæm-
lega tveimur árum síðar fluttu fyrstu
starfsmennimir í húsin og þau voru öll
komin í fulla notkun fyrir miðjan jan-
úar 1988.
Við byggingu hússins var notuð öll
sú tækni og það hugvit sem sænskir
byggingameistarar hafa yfir að ráða.
Við getum borið byggingatímann
saman við það sem stundum tíðkast
hér á landi, en stjómendum SAS var
það fullljóst að tíminn kostar peninga
og að hagkvæmni byggingarinnar yrði
rokin út í veður og vind, ef hún dræg-
ist á langinn.
Til að gefa nokkra hugmynd um
stærð Frösundahússins skulu nefnd-
ar nokkrar tölur: Flytja varð 9000
vörubílshlöss af grjóti og jarðvegi
þegar gmnnurinn var tekinn. Glerið í
húsunum þekur álíka stórt svæði og 5
fótboltavellir. í aðalstöðvum SAS eru
samtals 1400 starfsmenn undir einu
þaki. Lengd tölvukapla er samtals um
500 kílómetrar, en það er álíka löng
leið og frá Austfjörðum til Snæfells-
jökuls. Ljós og lampar í þessari björtu
byggingu em 12.700 talsins.
BETRA LOFT
Þessi rör köllum viö loftræstistokka. Þessir stokkar
eru hluti af loftræstikerfum frá Blikk & Stál. Blikk &
Stál framleiðir loftræstikerfi í ýmsum stærðum og
gerðum, sem henta hvaða húsnæði sem er. Ekki þarf
að fjölyrða um þörfina fyrir gott loft á vinnustað.
Rannsóknir hafa sýnt að bein tengsl eru milli
vinnugleði og afkasta starfsfólks og loftræstingar
(fjölda loftskipta) á vinnustað.
Hafðu samband við sölu- og tæknideildina.
Ráðgjöf - hönnun - áætlanir - tilboð
r^Tc?] Blikk&Stál
iA Bíldshöfða 12 S 686666 Rvik.
68