Frjáls verslun - 01.08.1990, Qupperneq 74
VINNUSTAÐURINN
, Já, vissulega því þótt þau sé ekki
að finna geta aðrar aðstæður gert öfl-
uga loftræstingu nauðsynlega. A
skrifstofum er mikið unnið með papp-
ír. Hann þurrkar inniloftið úr hófi og
gerir það að verkum að útilokað er að
starfa nema nýju lofti sé jafnóðum
dælt inn og það gamla losað út fyrir
vegg. Reynslan kennir okkur að ekki
síst á slíkum vinnustöðum, er gjarnan
kvartað undan óheilnæmu lofti.
Á grófari stöðum, sérstaklega þar
sem mengandi efni eru til staðar, get-
ur verið beinlínis lífshættulegt að
starfa án góðrar loftræstingar. í því
sambandi nægir að nefna bílaverk-
stæði eða þar sem mikið er unnið í
rafsuðu."
í úttekt sem Vinnueftirlitið gerði á
síðasta ári, kom í ljós að ástand loft-
ræstingar á bílaverkstæðum á höfuð-
borgarsvæðinu, reyndst afleitt. Út-
tektin náði til 128 fyrirtækja og reynd-
ist almennri loftræstingu ábótavant
og sama var að segja um afsog frá
útblæstri bifreiða svo og frá suðu- og
logskurðarvinnu. í 53% tilfella þurfti
að gera alvarlegar athugasemdir
varðandi loftræstinguna.
VELDUR OFNÆMI
í síðasta tölublaði Vinnuverndar
segir frá skýrslu um loftmengun á
Loftræsting á bifvélaverkstæðum er
víða í ólagi en hjá Bifreiðum og land-
búnaðarvélum eru þau mál til fyrir-
myndar.
vinnustöðum í Noregi. Kemur þar
fram að mengun innahúss kunni að
vera ein meginorsök aukinna ofnæm-
iseinkenna hjá norsku þjóðinni. Því
virðist svo fylgja minna mótstöðuafl
gegn algengum öndunarfærasjúk-
dómum, kvefi, bólgu í kinnholum,
hálsbólgu og lungnakvefi. Þá er það
alkunna að slæmt inniloft er talið geta
dregið stórlega úr afköstum manna á
vinnustað.
í norsku skýrslunni er yfirlit yfir
starfshópa þar sem óvenjumikið ber á
ofnæmi og astma, þótt ekki sé með-
fæddu ofnæmi til að dreifa. Flestir
þessara hópa finnast hér á landi, að
sögn Vinnuverndar. Nefndir eru hóp-
ar eins og starfsfólk í málningar- og
plastiðnaði, á hárgreiðslustofum, í
tréiðnaði og minnst er á logsuðu-
menn, bændur og starfsfólk á ljós-
mynda- og röntgenvinnustofum.
Norðmennirnir nefna nokkur ráð til
úrbóta. Fyrst er minnt á góða loft-
ræstingu og að ráðist sé á mengun
strax við upptök hennar. Þá er varað
við meira en 40% raka í lofti og að hiti
innandyra fari ekki upp fyrir 22 gráð-
ur. Sérstaklega er varað við teppum á
gólfum og veggklæðningu úr ofnum
efnum, svo fátt eitt sé nefnt.
FAGMENN AÐ VERKI
Félag blikksmiðjueigenda hefur að
undanfömu staðið fyrir auglýsinga-
herferð, þar sem lögð er áhersla á að
menntaðir fagmenn annist hvers kon-
ar blikksmíðavinnu. I því skyni að efla
möguleika almennings á að greina
fagfólk frá fúskurum, voru útbúnir
sérstakir koparskildir með merki fé-
lagsins og áletruninni: Fagmenn að
verki. Eru þeir uppsettir í öllum
blikksmiðjum sem uppfylla kröfur um
verk- og tæknilega getu.
En hvað á forsvarsmaður fyrirtæk-
is að gera ef hann vill bæta úr lélegri
loftræstingu á sínum vinnustað?
„Um það hvert hann Ieitar hefur
hann oftast samráð við hönnuð
nýbyggingar en almenna reglan er sú
að hann fær löggiltan blikksmíða-
meistara til liðs við sig og í samein-
ingu er reiknað út hvers konar loft-
ræstikerfi þarf að smíða í húsið.
Teikning af kerfinu fer til samþykktar
hjá byggingarfulltrúa og að því loknu
getur smíði hafist.
Ef um stór og flókin kerfi er að
ræða, getur smíði tekið talsverðan
tíma og gott loftræstikerfi er talsverð
fjárfesting. Einmitt vegna þess, er
svo nauðsynlegt að viðhald sé gott og
þar með tryggt að tækið skili því sem
af því er ætlast. í þessu skyni höfum
við um skeið boðið upp á þá þjónustu
að annast kerfisbundið viðhald og eft-
irlit loftræstikerfa. Slíkt viðhald er
nauðsynlegt eða hvaða manni dytti í
hug að aka um á bifreið í 5-10 ár eftir
að hún var fyrst tekin í notkun, án
þess að líta nokkurn tíma undir vélar-
hlífina?.“
Eldvarnarmiðstöð Norðurlands s/f
Strandgötu 53 (að austan, húsi Bílavals),
sími 96-27197, heimasími 96-27920.
Norðlendingar!
Eldvarnarmiðstöð Norðurlands sér
um sölu og viðhald á öllum stærum
og gerðum handslökkvitækja.
Sala
Hleðsla
★ Handslökkvitæki ★ Duft
★ Brunaslöngur ★ Kolsýra
★ Reykskynjarar ★ Vatn
★ Eldvarnarteppi ★ Halogen
★ Brunastigar o.fl.
Sækjum og sendum
Opið frá kl. 13.00 - 17.00
74