Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1990, Síða 80

Frjáls verslun - 01.08.1990, Síða 80
VINNUSTAÐURINN HVAÐfl LAMPA Á AÐ KAUPA? AFAR MISMUNANDIVARA Á BODSTÓLUM í VERSLUNUM RÆTT VID EGIL SKÚLAINGIBERGSSON FORMANN LJÓSTÆKNIFÉLAGS ÍSLANDS Egill Skúli Ingibergsson formaður Ljóstæknifélagsins: Því miður hefur al- menningur litla möguleika á að meta ljóstæknileg gæði lampa í verslunum en það stendur til bóta. Ekki er langt um liðið síðan skipulag lýsingar í heimahúsum eða á vinnustöðum fólst í því að draga homalínur herbergis og teikna einn lampa á miðju lofti. Lýsing var þá einungis hugsuð til að birta upp skyggða fleti og ljósin einföld að allri gerð. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjáv- ar og í dag em mun meiri kröfur gerðar til lýsingar og hönnunar lampanna sem notast er við. Ljóstækni er orðin sérstök vís- indagrein og þeir sem fást við hönnun lýsingar og lampa styðj- ast við margvíslegar rannsóknir sem skila sér til almennings í formi bættra skilyrða í daglegu umhverfi. Til er félagsskapur hér á landi sem heitir Ljóstæknifélag íslands. Þetta er orðið gamalgróinn félagsskapur, stofnaður haustið 1954 og segir í lög- um þess að markmiðið sé að „stuðla að betri lýsingu og sjónskilyrðum og veita almenna, hlutlausa fræðslu um allt er varðar lýsingu og sjónstarf". Egill Skúli Ingibergsson verkfræð- ingur er núverandi formaður Ljós- tæknifélagsins og hann var fyrst beð- inn að lýsa í stuttu máli þeirri starf- semi sem fram fer í félaginu. „Ef við grípum niður í ársskýrslu fyrir tímabilið 1989-90 kemur í ljós að allnokkur starfsemi er í þessu fá- menna áhugamannafélagi. Má nefna fræðslufund um lýsingu í leikhúsum, einkum nýja Borgarleikhúsinu, en þar var fundurinn einmitt haldinn. Við stóðum fyrir námskeiði um nýjungar í lömpum og ljósgjöfum og var það ætl- að rafverktökum og starfsmönnum þeirra. Á árinu kom út 2. tölublað Ljóss, en það er tímarit okkar og birt- ir margvíslegt efni, ætlað almenningi og sérfræðingum. Átta félagar úr Gífurlegt úrval lampa er á boðstól- um en hvernig á að greina kjarnann frá hisminu? Ljóstæknifélaginu sóttu Norræna lýsingarþingið í Þrándheimi á síðasta sumri og voru þar flutt 3 erindi af íslands hálfu. Síðast en ekki síst er vert að nefna sýninguna Líf í réttu ljósi, sem við efndum til ásamt Sjón- stöð íslands sl. haust. Undirbúningur þessarar sýningar hafði staðið yfir í mörg ár en hún fjallaði um lýsingu fyrir aldraða og sjónskerta. Eins og segir í lögum félagsins er markmið þess fyrst og fremst að stuðla að betri lýsingu og veita fræðslu um allt er hana varðar. Eins og ég sagði er þetta áhugamannafélag en þrátt fyrir lítið fjárhagslegt bol- magn hefur ýmislegt verið gert, eink- um á útgáfusviðinu og mörg verkefni eru á prjónunum“, sagði Egill Skúli. MISMUNANDIAÐSTÆÐUR Egill Skúli sagði í spjalli við Frjálsa 80
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.