Frjáls verslun - 01.04.1991, Side 5
RITSTJORNARGREIN
PÁLMIJÓNSSON
Með Pálma Jónssyni í Hagkaup, sem lést nýlega, er
genginn einhver merkasti brautryðjandi í atvinnulífi
Islendinga á þessari öld.
Pálmi hrinti í framkvæmd breytingum á viðskipta-
háttum hér á landi sem hafa haft gífurleg áhrif til góðs.
Það hefur jafnvel verið nefnt að sú lækkun vöruverðs,
sem Hagkaup hefur haft í för með sér, hafi skilað al-
menningi meiri kjarabótum en starf verkalýðshreyf-
ingarinnar um árabil.
Pálmi Jónsson naut mikillar virðingar í viðskiptalíf-
inu og meðal almennings. í lok síðasta árs völdu Stöð 2
og Frjáls verslun hann Mann ársins 1990 í viðskiptalíf-
inu á Islandi. Það var samdóma álit manna að hann hafi
verið vel að þeirri viðurkenningu kominn. Nú, fáeinum
mánuðum síðar er æfi hans öll.
Þótt Pálmi Jónsson sé horfinn héðan munu verk
hans lifa um ókomin ár.
Frjáls verslun vottar eiginkonu hans, börnum og
öðrum ættingjum og vinum dýpstu samúð.
SKRIÐUR Á ÍSLANDSBANKA
Ljóst er að sameining bankanna fjögurra í Islands-
banka hefur heppnast betur en bjartsýnir menn þorðu
að vona og hún hefur gengið hraðar fyrir sig en við var
búist.
A aðalfundi bankans í aprílmánuði var gerð grein
fyrir fyrsta starfsári bankans. Rekstrarárangur er
mjög góður og tekist hefur að koma í veg fyrir að til
innlánsminnkunar kæmi við sameininguna, sem þó
hefði mátt teljast eðlilegt miðað við það erfiða verkefni
sem sameining fjögurra banka hlýtur að vera.
Athygli vekur að hagnaður íslandsbanka er meiri en
hinna viðskiptabankanna tveggja, Landsbanka og
Búnaðarbanka, þó svo sameiningin hafi tekið mikinn
tíma starfsmanna og stjórnenda bankans.
Islandsbanki fer vel af stað og engin ástæða er til að
ætla annað en að tilkoma svo öflugs banka muni
hleypa enn frekara lífi í fjármagnsmarkaðinn hér á
landi sem þó hefur tekið stakkaskiptum á undanförn-
um árum. Samkeppni viðskiptabankanna ætti að geta
orðið mikil á næstu árum. Þess er vænst að sú sam-
keppni komi viðskiptavinunum til góða. Það er sú
krafa sem markaðurinn mun gera til bankanna.
* 1
ISSN 1017-3544
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Helgi Magnússon - RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Valþór Hlöðversson -
AU GLÝ SING ASTJ ÓRAR: Sjöfn Sigurgeirsdóttir og Kristrín Eggertsdóttir — LJÓSMYNDARAR: Grímur Bjamason, Gunnar
Gunnarsson, og Kristján Einarsson — UTGEFANDI: Fróði hf. — Tímaritið er gefið út í samvinnu við samtök í verslun og viðskiptum —
SKRIFSTOFA OG AFGREIÐSLA: Ármúli 18, súni 82300, Auglýsingasími 685380 — RITSTJÓRN: Bíldshöfði 18, sími 685380 —
STJÓRNARFORMAÐUR: Magnús Hreggviðsson — AÐALRITSTJÓRI: SteinarJ. Lúðvíksson — FRAMKVÆMDASTJÓRI: Halldóra
Viktorsdóttir - ÁSKRIFTARVERÐ: 2.490 kr. (415 kr. á eintak) - LAUSASÖLUVERÐ: 499 kr. - SETNING, TÖLVUUMBROT,
PRENTUN OG BÓKBAND: G. Ben. prentstofa hf. - LITGREININGAR: Prentmyndastofan hf.
Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir
5