Frjáls verslun - 01.04.1991, Blaðsíða 115
TÆKNI
Með lokuðum sandblæstri opnast
möguleikar á að beita þessari virku aðferð
til hreinsunar á ýmsum stöðum þar sem
áður kom ekki til greina að nota
sandblástur vegna rykmengunar. Hér er
sandblásið með nýrri tækni á Kleppsspítala
í Reykjavík.
BYLTING í
SANDBLÁSTURSTÆKNI?
Stærsti ókostur sandblásturs,
við hreinsun véla og mann-
virkja, er sá óþrifnaður sem hef-
ur fylgt framkvæmdunum. Ný
tækni virðist hafa leyst þetta
vandamál.
Fyrirtækið Steinprýði hf. í Reykja-
vík er um þessar mundir að kynna
nýjan tækjabúnað sem gerir kleift að
beita sandblæstri á nýjan og þrifalegri
hátt. Steinprýði, sem um árabil hefur
sérhæft sig í innflutningi á ýmsum
tækniefnum varðandi steinsteypu,
hefur í vaxandi mæli tekið að sér, í
samvinnu við sjálfstæða verktaka,
viðgerðir á gólfum í framleiðslu- og
þjónustufyrirtækjum. Þessi þjónusta
byggist á ELGO-gólfefninu sem
Steinprýði hefur selt sl. 20 ár en það
er yfirborðsefni blandað stáli eða
kvartsi sem hefur gríðarlegt slitþol.
ELGO-efnið hefur verið lagt á eldri
gólf í fyrirtækjum. í slíkum tilfellum
er mikilvægt að gamalt yfirborð sé
hreinsað á virkan hátt. Sandblástur er
ein virkasta aðferðin en fram að þessu
hafa fylgt honum rykmengun og
óhreinindi.
Steinprýði hefur nú leyst þetta
vandamál með nýrri tækjasamstæðu
frá Hollenska fyrirtækinu Acodeq.
Með þessum tækjum fer sandblástur
fram í lokaðri hringrás þannig að ekk-
ert ryk eða affall fylgir verkinu. Um
leið er gert kleift að beita sandblæstri
innanhúss, þar sem það var óhugs-
andi áður, og vinna þannig ýmis verk
með margföldum afköstum á ör-
skömmum tíma.
Fyrir þá, sem vinna verkið, þýðir
þessi nýja tækni gjörþreyttar vinnu-
aðstæður. Með lokuðum sandblæstri
minnkar undirbúnings- og frágangs-
vinna verulega. Nú þarf ekki að eyða
löngum tíma og fyrirhöfn í að koma
fyrir hlífum eða í að klæða af við-
kvæma hluti og því er hægt að beita
sandblæstri með þessari nýju tækni
nánast hvar sem er.
,Jet-Vac“, en svo nefnist þessi
tækni, er lokað kerfi, knúið með loft-
þrýstingi. Sandur er í lokuðum þrýsti-
geymi og er þlásið á flöt með sér-
stakri byssu. Yst á hringlaga blásturs-
stútnum er myndað mjög sterkt
loftsog með sk. jektor þannig að allt
laust efni, sandur og affall, sem
myndast í miðpunkti, sogast til baka
og er aðskilið í hvirfilsíu. Affallið fer í
sérstakan geymi en sandurinn fer aft-
ur í þrýstigeyminn eftir að hafa verið
þurrkaður. A meðan á verki stendur
er stöðug hringrás sands. Þessi
tækni gerir m.a. kleift að nýta sér-
hæfðan sand til fullnustu þar sem
hann tapast ekki út í umhverfið.
Vinnuþrýstingur er um 6 bör og
tækjasamstæðan er það öflug að hún
getur flutt um 1750 kg af efni á klst.
miðað við rúmþyngd allt að 1580 kg/
rúmmetra. Auk þess að flytja þessi
tæki inn mun Steinprýði bjóða þjón-
ustu með þessum tækjum.
TEXTI: LEÓ M. JÓNSSON MYND: GUNNAR GUNNARSSON
115