Frjáls verslun - 01.04.1991, Blaðsíða 77
HEILBRIGÐARIAÐSTÆÐUR
- SEGIR PÁLL SIGURJÓNSSON HJÁ ÍSTAKIHF.
„Við hjá ístaki þurfum ekki að
kvarta undan verkefnaskorti því
allt frá stofnun fyrirtækisins
fyrir tuttugu árum höfum við
verið í stöðugum verkefnum,
stórum og smáum. Þetta hefur
verið mikill framkvæmdatími og
má segja bylting í verklegum
framkvæmdum hér á Iandi. Það
hefur verið ánægjulegt að fá
tækifæri til að taka þátt í þessari
byltingu,“ sagði Páll Sigurjóns-
son, framkvæmdastjóri Istaks
hf, eins umsvifamesta verktaka-
fyrirtækis landsins á undanförn-
um árum.
ístak var nýlega í fréttum eftir að
hafa verið með lægsta tilboð í hin risa-
vöxnu Vestfjarðagöng undir Breiða-
dals- og Botnsheiðar. Þar var Istak
um boðið í samvinnu við norska og
sænska aðila og hafði þá sérstöðu
meðal íslenskra bjóðenda að vera í
forsvari fyrir tilboðinu. Páll Sigur-
jónsson er ekki með öllu ókunnugur
jarðgangagerð því hann starfaði sem
ungur maður við byggingu jarðganga í
Færeyjum. Við báðum Pál um að
segja okkur frá helstu verkefnum ís-
taks á byggingarsviðinu um þessar
mundir.
„Okkar verkefni hafa oft á undan-
fömum árum tengst stórum mann-
virkjum og má í því sambandi nefna
virkjanir og vegagerð. Af einstökum
byggingum, sem við vinnum við
núna, má nefna Ráðhús Reykjavíkur
en þar vorum við með grunnvinnuna
og uppsteypu hússins en höfum síðan
verið aðalverktakar, en verkið að
mestu framkvæmt af undirverktök-
um undir okkar stjórn.
Af öðrum verkum má nefna endur-
. 'i'
flB2*
= nni
| ii m
Páll Sigurjónsson: Okkar verkefni hafa mest tengst stórum mannvirkjum af
ýmsu tagi.
byggingu Þjóðleikhússins og hafin er
bygging fisksjúkdómahúss á Keldum,
en þar er um alverktöku að ræða. Þá
erum við að byggja lager- og skrif-
stofubyggingu við Héðinsgötu, stór-
hýsi Bókmenntafélagsins við Lækjar-
götu 4 er í byggingu og loks höfum við
allnokkur verkefni við Blönduvirkjun.
Þar erum við í samvinnu við sænskt
fyrirtæki urn byggingu Gilsárstíflu og
innréttingu stöðvarhúss.“
„Mörg íslensk verktakafyrirtæki
hafa farið flatt á stórum verkefnum
því hætta er á að meðan á þeim stend-
ur missi menn tengsl við markaðinn
og dagi uppi þegar þeim lýkur. Þess
vegna er afar mikilvægt að sinna
áfram smáum verkum því þau treysta
undirstöðuna á hverjum tíma.“
Páll sagði að fyrsta stórverkefni
ístaks hf. hafi verið lagning Suður-
landsvegar yfir Hellisheiði.
„Það var árið 1971 og var gífurlega
77