Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1991, Page 108

Frjáls verslun - 01.04.1991, Page 108
Stöðugt rannsóknar- og þróunarstarf fer fram í íslenskum málningariðnaði. Það er skilyrði þess að standast erlendri samkeppni snúning. Þessa dagana er Harpa að kynna fjórar nýjar tegundir af málningu sem þróuð er af verkfræðingum verksmiðjunnar. að þörfum okkar og uppfyllir allar kröfur um hollustuhætti á vinnustað og mengunarvarnir sem m.a. gerir það að verkum að vinnuaðstaða starfsmanna verður öll önnur og betri en áður var. Við byggingu hússins gættu stjóm- endur Hörpu þess að ráðast ekki í offjárfestingu, eins og orðið hefur mörgum íslenskum iðnfyrirtækjum fjötur um fót. Einnig stóð Harpa vel að vígi því fyrirtækið átti húseignir og aðrar eignir sem unnt var að ráðstafa til að mæta byggingarkostnaði að hluta þannig að ekki þurfti að taka óeðlilega mikil lán til framkvæmd- anna. Segja má að það ætti að vera sjálfsagt mál að fyrirtæki, sem starfað hefur í meira en hálfa öld, geti byggt yfir starfsemina án þess að lenda í vandræðum. En því miður er þetta ekki alltaf svona í atvinnurekstrinum hér á landi.“ STERK MARKAÐSSTAÐA Hvernig er samkeppnisstaða ykkar á málningarmarkaðnum? „Samkeppni á þessum markaði er mikil. En staða Hörpu er sterk. I landinu starfa fjórar málningar- verksmiðjur sem keppa af fullum krafti sín á milli. Þessi íslenski iðnað- ur á svo í mikilli samkeppni við inn- fluttar vörur, þannig að óhætt er að segja að íslenskir notendur málningar og skyldrar vöru hafi úr miklu að velja. Samkeppnin er mest milli inn- lendu framleiðendanna en innflutning- ur er einnig mjög mikill og veitir inn- lendu framleiðslunni öfluga sam- keppni. íslenskur málningariðnaður stend- ur engu að síður vel að vígi. Verk- smiðjurnar hafa þróað framleiðsluna miðað við íslenskar aðstæður um ára- tuga skeið en íslenskt veður er svo sérstakt að taka verður tillit til þess við framleiðslu útimálningar ef hún á að standa undir gæðakröfum. Engu að síður þarf þessi iðngrein að vera vel á verði, t.d. þegar íslendingar tengjast Evrópubandalaginu með ein- um eða öðrum hætti. FJÓRAR NÝJAR TEGUNDIR Harpa framleiðir eingöngu eftir eigin uppskriftum en kaupir ekki að framleiðsluleyfi frá útlöndum. Stöðug þróun á sér stað á rannsóknarstofu fyrirtækisins og alltaf er verið að vinna að nýjungum og endurbótum. Árangur af þessu starfi er t.d. sá að þessa dagana erum við að kynna fjór- ar nýjar tegundir af málningu. Til viðbótar við framleiðslu okkar höfum við einnig farið út í innflutning og þá á vörum sem við teljum að borgi sig ekki að framleiða hér á landi. Þess Harpa hefur haft góðan byr og það er áhugavert að taka þátt í fjölmörgum áformum og verkefnum sem hér er verið að hrinda í framkvæmd. vegna veljum við að flytja inn viðar- varnarefni og spartl til að efla þjón- ustu við viðskiptavini okkar og notum til þess dreifikeríi Hörpu sem nær um allt land. Þessi innflutningur kemur frá Flúgger í Danmörku, sem er mjög öflugur framleiðandi þar í landi. Sala okkar á vörum frá Flugger hefur farið fram úr björtustu vonum og okkur sýnist að þær hafi náð fótfestu hér á markaðnum." Við biðjum Jón Bjarna Gunnarsson að segja okkur að lokum, hver séu helstu verkefni ijármálastjóra Hörpu. „Þau eru flest hefðbundin og í sam- ræmi við það sem nafnið bendir til. Fjármálastjóri hefur umsjón með því að tekjur fyrirtækisins skili sér inn í reksturinn og að greiðslur séu inntar af hendi á réttum tíma. Það að ná inn tekjum fyrirtækja er sífellt að verða vandasamara verkefni í íslensku við- skiptalífi. Gjaldþrotum hefur því mið- ur fjölgað mikið á undanförnum árum og peningaerfiðleikar aukist og þess vegna verða fjármálastjórar að vera vel á verði til að fyrirtæki þeirra tapi ekki kröfum í miklum mæli. Þetta er vandasamt vegna þess að menn geta ekki verið ósveigjanlegir í viðskiptum ef þeir vilja selja og þeir mega heldur ekki vera glannalegir í útlánum til að taka ekki of mikla áhættu. Maður þarf því sífellt að leita að hinum gullna meðalvegi í þessu þó fyrirtæki sé ekki stærra eða umfangsmeira en Harpa en hér starfa um 30 manns og heildar- veltan er um 400 milljónir króna á ári.“ 108
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.