Frjáls verslun - 01.08.1991, Page 6
5 RITSTJORNARGREIN
8 FRÉTTIR
14 FORSÍÐUGREIN
Fjallað er um Bifreiðaskoðun Islands hf.
sem talsvert hefur verið í sviðsljósinu
allt frá stofnun. Fyrirtækið tók við af
Bifreiðaeftirliti ríkisins og er að hálfu
leyti í eigu ríkisins en að hálfu í eigu
vátryggingarfélaga, bifreiðaumboða og
annarra innan bílgreinarinnar.
Mikill hagnaður fyrirtækisins hefur vakið
athygli og umræður hafa spunnist um
það hvort hann megi rekja til frábærs
rekstrar eða of hárra þjónustugjalda í
skjóli einokunar. Um þetta eru menn
ekki á eitt sáttir. Neytendasamtökin hafa
látið málefni fyrirtækisins til sín taka og
gert kröfur um lækkun á gjaldskrám
Bifreiðaskoðunar íslands. Sl. vor varð
dómsmálaráðherra við óskum
Neytendasamtakanna og beitti sér fyrir
lækkuðum þjónustugjöldum hjá
fyrirtækinu. Við þeim óskum var orðið.
Ekki er deilt um það að öryggi og gæði
vegna eftirlits með ökutækjum hafa
aukist með tilkomu Bifreiðaskoðunar
íslands hf. En um ýmsa aðra þætti eru
menn ekki á eitt sáttir. Málið er rakið frá
báðum hliðum og m.a. rætt við Karl
Ragnars, framkvæmdastjóra
fyrirtækisins og Jóhannes Gunnarsson,
formann Neytendasamtakanna.
24 TEKJUR
Frjáls verslun hefur kannað tekjur
rúmlega 300 íslendinga árið 1990. Þeir
tilheyra 19 mismunandi hópum. Með
könnun þessari má fá vissa vísbendingu
um tekjur í þeim hópum sem þetta fólk
tilheyrir. Margt forvitnilegt kemur fram.
Almennt hafa tekjur manna ekki hækkað
mikið að raungildi frá árinu á undan. Þó
eru undantekningar frá því. Þannig hafa
tekjur lyfsala hækkað um 26% frá árinu á
undan. Sú hækkun er í ósamræmi við
tekjubreytingar flestra annarra hópa.
Einnig vekur athygli hve miklum tekjum
vissir hópar ná. Tannlæknar, einkum
þeir sem fást við tannréttingar, eru þar
framarlega í flokki ásamt lyfsölum og
sumum fógetum og sýslumönnum.
Sumir þessara manna eru aðeins eina
viku að vinna fyrir mánaðarlaunum
forsætisráðherra. Enn á ný kemur fram
að stjórnmálamenn eru illa launaðir
miðað við ábyrgð.
41 TÖLVUR
46 BÆKUR
49 PÓSTVERSLUN
Póstverslun er fastur þáttur í
verslunarstarfsemi hér á landi. Talið er
að heildarvelta í póstversluninni sé um
500 milljónir króna á ári. Engu að síður
er þessi tegund verslunar ekki nærri
eins útbreidd hér og víða á
Vesturlöndum. Fjallað er um þessa
starfsemi og rætt við Lárus Ólafsson,
framkvæmdastjóra eins
póstverslunarfyrirtækisins.
35 TÆKNI
38 ALMANNAVÆÐING
Þór Sigfússon, hagfræðingur, ritar um
einn þátt einkavæðingar sem hann nefnir
almannavæðingu. Þá er um að ræða að
gengið sé mjög langt í því að koma
opinberum fyrirtækjum í hendur
almennings, jafnvel með því að afhenda
hlutabréf án endurgjalds.
56 ERLENT
Nemendum sem útskrifast úr
bandarískum viðskiptaháskólum gengur
sífellt verr að fá störf við sitt hæfi að
námi loknu. Ymsar skýringar eru
nefndar við þessu. M.a. þær að námið
sé ekki nógu markvisst og
háskólakennararnir séu ekki í tengslum
við þann raunveruleika sem blasir við úti
í sjálfum fyrirtækjunum. Bandarísk
fyrirtæki hafa gripið til sinna ráða við að
þjálfa og mennta það fólk sem starfar í
fyrirtækjunum. Þá er stundum gripið til
óhefðbundinna aðferða.
59 SKÓLAKERFIÁ
VILLIGÖTUM?
Sífellt fleiri verða stúdentar hér á landi
og fjöldi háskólanema eykst stöðugt.
Skólakerfið virðist beina ungu fólki í
háskólanám á sama tíma og vöntun er á
fólki til margvíslegra starfa í
þjóðfélaginu. Þetta ástand veldur víða
vanda. í þessari grein er skoðað hvort
íslenskt skólakerfi sé á villigötum og
hvaða leiðir séu til að ná jafnvægi á
þessu sviði.
67 ATHAFNAMENN
Rætt er við fjóra kunna athafnamenn
sem allir hafa látið af forstjórastörfum í
stórum fyrirtækjum, en gegna engu að
síður margvíslegum ábyrgðarstörfum
áfram. Hér er um að ræða Árna
Gestsson, stjórnarformana Glóbus hf.,
Erlend Einarsson, fyrrverandi forstjóra
SÍS, Indriða Pálsson, stjórnarformann
Skeljungs hf. og Ragnar Halldórsson,
stjórnarformann ISAL.
74 BRÉF FRÁ ÚTGEFANDA
6